Bloggfærslur mánaðarins, ágúst 2008

Allt að gerast hjá litla kút!

Ég fór loksins á fimmtudaginn og fjárfesti í hjólavagni, skaust til Árósa að sækja hann og í leiðinni snilldarbílstól til að hafa í honum.  Hér er Ágúst Ísleifur að máta:

Ágúst í lok Ágúst 036     Ágúst í lok Ágúst 037

Flotti bílstóllinn / legubekkurinn fyllir nú eiginlega allan tveggja-barna-vagninn, ég kippti bara barnasætunum úr og festi stólinn með strekkbandi úr byggingavörubúðinni sem ég smeygi í bílbeltisfestingarnar.

Fyrsti hjólatúrinn var svo á sundæfingu í gær:

Ágúst í lok Ágúst 050

Við byrjuðum á baksundtökunum:

Ágúst í lok Ágúst 055

Annars veit ég ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir því að óléttubikiníið skuli passa svona vel...

En svo veit ég ekkert hvað ég var að hugsa þegar ég tók að mér að spila messu í Árósum á morgun! Örf, ég veit ekki einu sinni hvernig ég ætla að fara þangað...  (Messan er í Ellevang kirke, mar hefur nú aldeilis sungið þar og gott ef ekki spilað í einhverri kórferðinni).  Best ég fari að redda mér nótum og jafnvel bíl Bandit


Lahahahangbesta súkkulaðikakan og lahahahangflottustu feðgarnir

Stráksi sprækur aftur eins og sést:

IMG_0778

Og súkkulaðikakan góða frá Elínu:

Skúffukaka      

            175      g          lint smjör

            2                     egg

            4 ½      dl         sykur

            4 ½      dl         hveiti

            1          dl         dökkt kakó

            2          dl         súrmjólk

            1 ½      dl         kalt vatn

            1          tsk        salt

            3          tsk        vanillusykur

            1          tsk        matarsódi

            ½         tsk        lyftiduft

Allt sett í skál og þeytt saman í hrærivél.  Bakað í smurðri skúffu í miðjum ofni í 20 til 30 mínútur við 200 gráðu yfir- og undirhita.

 

Krem

            100      g          brætt smjör

            250      g          flórsykur (ca. 6 dl)

             1         bolli      expresso

            3 ½      msk      dökkt kakó

Kaffi og kakói hrært saman við smjörið og flórsykurinn og þynnt með vatni ef þurfa þykir.  Kreminu smurt á kökuna og skreytt með kókosmjöli, skrautsykri eða því sem hentar hverju tilefni.

 


Litli kútur lasinn og langömmuafmæli

Ágúst Ísleifur virðist hafa nælt sér í einhvers konar gubbupest Frown, kastaði heil ósköp upp í nótt og mamman þorði varla að sofna, síðan hefur bara komið ein gusa eftir morgunmatinn og við vonum að þetta sé búið.  Við mæðgin kúrum bara uppí rúmi og litli Ísleifur sefur og sefur.

En langamma Ágústar Ísleifs (amma í Barmahlíð / Lára amma) er í fínu formi og 95 ára í dag.  Það verður afmæliskaffi á Hrafnistu og hún fær ljómandi fallega mynd í ramma í afmælisgjöf frá fjölskyldunni í Lindeparken, getiði hver er á myndinni...

Hér erum við Lárurnar, ég sem Kolbeinn ungi held ég (úr Þórðar sögu Kakala, áhrif frá Hauki bró)

img309

Ég hafði ekki neitt sérstaklega gaman af þessum myndatökum.

img118       img042

Amma fylgdist alltaf grannt með tónlistarferlinum, hún og pabbi kenndu okkur systkininum fyrstu lögin á píanóið og amma gamla spilar enn sjálf á gamla píanóið úr Fögrubrekkunni þar sem það stendur í herberginu hennar á Hrafnistu.  Seinni myndin er frá burtfararprófstónleikunum mínum frá Söngskólanum 2004, amma lék við hvurn sinn fingur og hélt þrusuræðu!

img044     IMG_0414

Svo í kaupbæti tvær myndir með ömmu á Brún sem lést fyrir bráðum átta árum, hætti aldrei að sakna hennar.  Ég er í uppáhaldsjogginggallanum á báðum myndum...

img043    img028


Grrr... netleysi

Netfyrirtækið okkar heitir cybercity, aka cybershitty, seinómor.  Viðvarandi netleysi síðan á mánudag og símaleysi framan af.  Komið nokkurn veginn í lag, en samt ekki arrrg.

Fátt fréttnæmt á heimilinu, síðasta afrekið var að mála skápana á ganginum að innan og Ágúst sagaði niður hillur inn í þá.

Ágúst Ísleifur verður bara meiri hlunkur með hverjum deginum og að sjálfsögðu sífellt hæfileikaríkari.  Hann er farinn að undirbúa orgelæfingarnar með píanóæfingum.

Afi Ágúst og Hallveig ág.08 061

Síðan er ég líka búin að skrá hann á sundæfingar (í halakörtuliðið), sé nú fram á að þurfa að fylgja honum til að byrja með þangað til hann verður sjálfstæðari.

Og fyrir þá sem höfðu áhyggjur af týnda prjónasokknum, þá er hann fundinn í bílnum hjá Erlu Elínu og verður fluttur til Danmerkur í bílnum í lok mánaðarins, loksins verður stráksa aftur hlýtt á fótunum.

Að lokum til gamans: hárklippistofan við hliðina á kirkjugarðinum hinum megin við götuna heitir Final Cut mwahahaha.


Brjálað stuð!

Nóhóhóg að gera í Lindeparken þessa dagana! Tókum sem fyrr segir tengdapabba með út og hann fær aldeilis að vinna fyrir matnum sínum Whistling.  Komið parket og málning á svefnherbergið og ganginn og núna er baðinnréttingin að fara að galdrast upp.  Fengum líka liðsauka þegar Hallvegi systir Ágústar hoppaði upp í lestina frá Belgíu og var hjá okkur í nokkra daga.  Heimilið er reyndar algjörlega í rúst, hálfsamsettar innréttingar og parketbútar út um allt ásamt almennu drasli púff.  Bættist líka svo mikið inn á heimilið þegar við fórum í svakalegustu IKEA-ferð sem um getur til Árósa.  Einhvern veginn tókst okkur að komast heim á einum (bílaleigu-)bíl með þrjá Ágústa, eina mömmu, svefnsófa, baðinnréttingu og heeeellling til viðbótar.  Segi ekki að það hafi farið vel um mig með annað lærið klemmt utan í bílstól og hitt í borðplötunni á innréttinguna.

Smá sýnishorn af því hvað allir eru duglegir:

Ágúst og Ágúst  Hallveig og pabbi ad leggja parket

lára ad mála_1   lára ad mála

Ég hef farið á kostum við að hjóla heim með það sem vantar, skrýtnasta hugmyndin var kannski að kaupa vask í hinum enda bæjarins og hjóla heim með hann á bakinu á racernum (í hellirigningu), líka dáldið gaman að hjóla heim með gólflista (búin að skipta um föt og líka búið að stytta upp)

Lára rennblauta_2   Lara klara med listana_2

En aðalmaðurinn á heimilinu er að sjálfsögðu Ágúst Ísleifur, og það fer umtalsverður tími í að sinna honum, þó að sem betur fer verði hann syfjaður og leggi sig inn á milli... (Hallveig frænka tók þessar flottu myndir)

ágúst ísleifur_2   ágúst ísleifur_3

ágúst ísleifur_1   ágúst ísleifur_4

Svo hefur hann líka náð talsverðri færni á leikteppinu.

ágúst ísleifur á leikteppinu_1

ágúst ísleifur á leikteppinu_4

Hann fer líka á kostum í nýja baðbalanum (úr IKEA að sjálfsögðu)

Ágúst Ísleifur í badi_1   ágúst ísleifur í badi_2

En nú er svangur drengur farinn að kalla á mömmu sína, yfir og út.


Fréttaveitan

er ekki alveg að standa sig þessa dagana.  Best að glósa bara nokkra hápunkta meðan Ágúst Ísleifur leikur sér á leikteppinu.

  • Fórum til Íslands, ferðin gekk vel
  • Höfðum það gott á Íslandi og hittum alls konar fólk
  • Ágúst Ísleifur var skírður í beinni útsendingu í útvarpsmessu í Hallgrímskirkju
  • Skemmtileg skírnarveisla og fullt af fallegum gjöfum
  • Skruppum austur í Fljótshlíðina að sýna syninum sumarbústaðinn
  • Gistum í sumarbústaðnum hjá afa Ágústi í Borgarfirðinum um verslunarmannahelgina
  • Tókum hátt í 100 kg af farangri með til Danmerkur, eins gott að afi Ágúst flaug með
  • Tékkuðum inn Ágúst Ágústsson, Ágúst Ágústsson, Ágúst Ágústsson og svo mig
  • Ágústi Ísleifi finnst æðislegt að fara í bað og við bíðum spennt eftir að prófa nýja stóra balann
  • Kappinn er orðinn 3.9 kg og heilir 55 sentimetrar 
  • Minnstu samfellurnar eru orðnar of litlar
  • Mögnuð IKEA-ferð í gær
  • Afi ætlar að leggja parket á svefnherbergið í dag

Og ein "gömul" mynd, Ágúst Ísleifur er nú ekki svona lítill lengur, en þarna er hann í nýju fínu buxunum frá Halldóru og flottu sandölunum frá Arnbjörgu!

ÁÍÁ hittir fólk á Íslandi 067


Púff

Nóg að gera

Skýr drengur skírður

Skírnarmyndir 4.ág. 035

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband