9.8.2008 | 08:12
Fréttaveitan
er ekki alveg að standa sig þessa dagana. Best að glósa bara nokkra hápunkta meðan Ágúst Ísleifur leikur sér á leikteppinu.
- Fórum til Íslands, ferðin gekk vel
- Höfðum það gott á Íslandi og hittum alls konar fólk
- Ágúst Ísleifur var skírður í beinni útsendingu í útvarpsmessu í Hallgrímskirkju
- Skemmtileg skírnarveisla og fullt af fallegum gjöfum
- Skruppum austur í Fljótshlíðina að sýna syninum sumarbústaðinn
- Gistum í sumarbústaðnum hjá afa Ágústi í Borgarfirðinum um verslunarmannahelgina
- Tókum hátt í 100 kg af farangri með til Danmerkur, eins gott að afi Ágúst flaug með
- Tékkuðum inn Ágúst Ágústsson, Ágúst Ágústsson, Ágúst Ágústsson og svo mig
- Ágústi Ísleifi finnst æðislegt að fara í bað og við bíðum spennt eftir að prófa nýja stóra balann
- Kappinn er orðinn 3.9 kg og heilir 55 sentimetrar
- Minnstu samfellurnar eru orðnar of litlar
- Mögnuð IKEA-ferð í gær
- Afi ætlar að leggja parket á svefnherbergið í dag
Og ein "gömul" mynd, Ágúst Ísleifur er nú ekki svona lítill lengur, en þarna er hann í nýju fínu buxunum frá Halldóru og flottu sandölunum frá Arnbjörgu!
Athugasemdir
En við hvern var Ágúst Ísleifur að boxa ??? ...hver vann?
Sjáumst annað kvöld !!!
Hallveig (IP-tala skráð) 9.8.2008 kl. 15:27
Oh hvað maður er mikið krútt.
amma Guðný (IP-tala skráð) 10.8.2008 kl. 21:30
aaaaaaaaaaaaðeins sætari! :) Mesta krútt! Flottastur í sandölunum!
Arnbjörg (IP-tala skráð) 15.8.2008 kl. 12:25
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.