Bloggfærslur mánaðarins, júní 2007

Úff púff

Svei mér þá ef það er ekki bara býsna gaman að tölta um hálendið!  Kom aftur í bæinn á fimmtudaginn, keppti á fjallahjóli á föstudagskvöldið og vann ekki!!!! (það er samt bara af því að það sprakk hjá mér, tæknilega vann ég samt því það var enginn annar í kvennaflokki hrrgrump, fékk m.a.s. "þátttökumedalíu"), svo er messa í fyrramálið, skjótast austur að skoða ör-sumarbústaðinn sem Ágúst og tengdapabbi eru búnir að smíða eins og herforingjar og aftur af stað á mánudagsmorgun með þrettán þýska göngulinga...

Bæjó spæjó

Farin til Slóveníu með Graduale.  Fer svo beint að gæda þegar ég kem heim.  Allt of flókið að pakka fyrir tvennt í einu!

Æsispennandi heimsóknir

Heimsókn no. 1

Ég og Mamma og Elín og Selma heimsóttum Kötu frænku systurdóttur Mömmu í gær (dóttur Helgu systur Mömmu sem við heimsóttum um helgina, svona til að þið hafið þetta á hreinu).  Kata og Maggi hennar maður eiga þvílíka barnahrúgu, <1 árs tvíbura, 1 stóran bróður á leikskólaaldri og svo stóru systur í 6 ára bekk.  Stanslaust stuð á heimilinu! Reyndar var einn vinur stóru systur í heimsókn og honum blöskraði svo hamagangurinn (aðallega í stóru systurinni) að hann var að hugsa um að fara bara heim til systkinanna sinna sex...  En litlu tvíburasysturnar eru algjörar rúsínubollur, Selma var nú hálfskelkuð við þær til að byrja með en var farin að þora að rífa af þeim dótið undir lok heimsóknarinnar, dugleg stelpa.

Heimsókn no. 2

Dagbjört vinkona mín úr læknisfræðinni kom í heimsókn til mín í gærkvöldi.  Elín kom með Selmu í pössun til mín og ætlaði aðeins að stoppa, þá hringdi gönguferða-atvinnuveitandinn minn í mig og talaði heillengi (og skipti í miðju samtali yfir í þýsku, svona af því að ég er að fara að gæda á þýsku fyrir hann, weeeiiiird) svo Elín beið, þá mætti Dagbjört og hafði bara selskap af Elínu og Selmu meðan ég malaði á þýsku í símann endalaust lengi.  Svo gat ég loksins farið að elda hafragraut ofan í Selmustelpuna, þá hringdi tengdapabbi og malaði um byggingaframkvæmdir, nú svo loksins gat Selma fengið grautinn sinn, þá fór hún bara að æla út um allt (ég meina út um allt) svo allt fór í panik og Dagbjört fór að þrífa gólfið (sagði það ágætis tilbreytingu frá því að þrífa blóð og legvatn í vinnunni sinni á kvennadeild, nema það væri reyndar ekki svona vond lykt af því).  Elín hætti við að skilja Selmu eftir í pössun og ég keyrði þær heim (Elín sat við hliðina á Selmu tilbúin með dallinn) og Dagbjört elti til að keyra mig heim aftur.  Svo sýndi ég Dagbjörtu kjólana sem ég var að fá í fyrirfram arf eftir ömmu og ýmislegt fleira dásamlega fínt og þá var bara kominn háttatími og Dagbjört fór heim.  Vilja ekki allir koma í svona dæmigerða heimsókn til mín? Það leiðist allavegana engum hjá mér...


Einstakt tækifæri??

Læknafélag Íslands var að senda mér hátíðlegt bréf þar sem mér er boðið (ásamt maka) í kandídatamóttöku þar sem ég mun undirrita eiðstafinn, læknaeiðinn altså.  Á ég ekki bara að slá til? Þá get ég orðið læknir án þess að hanga í skóla í mörg ár, ég er nú svo mikill náttúrutalent, þeir hafa sjálfsagt séð það og þess vegna sent mér bréfið.  Svo eru líka veitingar í móttökunni.

Selma og sjómannadagurinn

Spilaði í sjómannadagsmessu í Langholtskirkju í gær, við fengum harmonikkuleikara til að halda uppi fjöri fyrir og eftir messu og svo tók hann líka lagið eftir predikun, geðveikt fjör! Mesta stuðið var í kaffinu eftir messu, endaði með því að við vorum farin að syngja í röddum og sátum heillengi.  Það eina sem vantaði var fleira fólk, þori ekki einu sinni að segja hvað voru margir.

Síðan fórum við Mamma, Elín og Selma í kaffi til Helgu systur mömmu á Flúðum.  Selma klappaði hoho:

Selma á Flúðum 06.07 001

Síðan fann hún þessa fínu drullupolla:

Copy of Selma á Flúðum 06.07 016Copy of Selma á Flúðum 06.07 017Copy of Selma á Flúðum 06.07 027Copy of Selma á Flúðum 06.07 028


Drangajökull um síðustu helgi

 

Hér er leiðin, fórum fyrsta daginn (rautt) fram og til baka á Snæfjallaströndinni (rautt), 2. daginn (blátt) yfir jökulinn með viðkomu á Jökulbungu (hæsti punktur) og Hrolleifsborg niður í Reykjarfjörð á Ströndum, 3. daginn yfir NA-hornið á jöklinum niður í Hrafnfjörð í Jökulfjörðum og vorum sótt þangað á báti.

Drangajökull 250 000

Útsýnið yfir Djúpið frá Snæfjallaströndinni

P5260122

Gengum inn dalinn upp af Kaldalóninu hans Sigvalda til að komast upp á Drangajökul

 P5270133

Haukur makar á sig sólvörn, Kaldalón og Djúpið í baksýn

P5270140

Útsýnið af Jökulbungu, sést niður í Jökulfirði

P5270151

Komin upp á Hrolleifsborg, Reykjarfjörður fyrir miðri mynd

P5270168

Sveitt, þreytt og sólbrunnin, enda var þetta 12 tíma rölt.

P5270182

Haukur alsæll í sundi í Reykjarfirði, Hrolleifsborg sést í fjarska milli húsanna.  Í Reykjarfirði var byggð fram undir 1960 og talsvert af húsum, bæði gömul og líka ný sumarhús, og að sjálfsögðu þessi fína sundlaug.

P5270185

Hrolleifsborg um miðja nótt

P5280197

Síðan töltum við til baka yfir jökulinn.  Svona fer maður að því að fá sér nesti, ég gróf þessa fínu holu undir rassinn á mér og notaði bakpokann sem skjól.  Haukur varð hálfsvekktur þegar hann sá að ég hafði bara grafið einbreiða holu...

P5280209

Síðan beið báturinn eftir okkur í Hrafnfirði

P5280220


Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband