Litli kútur lasinn og langömmuafmæli

Ágúst Ísleifur virðist hafa nælt sér í einhvers konar gubbupest Frown, kastaði heil ósköp upp í nótt og mamman þorði varla að sofna, síðan hefur bara komið ein gusa eftir morgunmatinn og við vonum að þetta sé búið.  Við mæðgin kúrum bara uppí rúmi og litli Ísleifur sefur og sefur.

En langamma Ágústar Ísleifs (amma í Barmahlíð / Lára amma) er í fínu formi og 95 ára í dag.  Það verður afmæliskaffi á Hrafnistu og hún fær ljómandi fallega mynd í ramma í afmælisgjöf frá fjölskyldunni í Lindeparken, getiði hver er á myndinni...

Hér erum við Lárurnar, ég sem Kolbeinn ungi held ég (úr Þórðar sögu Kakala, áhrif frá Hauki bró)

img309

Ég hafði ekki neitt sérstaklega gaman af þessum myndatökum.

img118       img042

Amma fylgdist alltaf grannt með tónlistarferlinum, hún og pabbi kenndu okkur systkininum fyrstu lögin á píanóið og amma gamla spilar enn sjálf á gamla píanóið úr Fögrubrekkunni þar sem það stendur í herberginu hennar á Hrafnistu.  Seinni myndin er frá burtfararprófstónleikunum mínum frá Söngskólanum 2004, amma lék við hvurn sinn fingur og hélt þrusuræðu!

img044     IMG_0414

Svo í kaupbæti tvær myndir með ömmu á Brún sem lést fyrir bráðum átta árum, hætti aldrei að sakna hennar.  Ég er í uppáhaldsjogginggallanum á báðum myndum...

img043    img028


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Til hamingju med ömmu Láru langömmu afmælið í gær!  þetta er mjög skemmtileg myndasería hjá þér í tilefni dagsins.

Og hvað litla kút, er hann orðinn frískur og kátur og til í halakörtusund með mömmu sinni?  Hvernig var það, réðst það af þínum, eða hans sundkröftum í hvaða flokk þið voruð sett...?  

Heyrðu annars mágkona og súkkulaðigerðarkona góð! Má ég fá hjá þér uppskriftina að yndislega gómsætu gúmmelaði súkkulaðikökunni þinni???  

Ég bið að heilsa Ágúst Inga og Ísleifi!! 

Hallveig (IP-tala skráð) 26.8.2008 kl. 14:54

2 identicon

Sæl og blessuð

Fínar langömmumyndir. Varstu búin að átta þig á að 3. nóv. næstkomandi hefði amma á Brún orðið níræð? Bestu kveðjur EA

Dedda (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 08:39

3 identicon

Hæ, mikið eru ömmu myndirnar fínar og sérstaklega myndirna af litla krúttinu í joggingallanum.

Kær kveðja tengdó

Tengdó (IP-tala skráð) 27.8.2008 kl. 23:25

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband