Bloggfærslur mánaðarins, mars 2008

Formæður vorar

Ég held að það hljóti að vera miklu erfiðara á vorum dögum að vera ólétt en í gamla daga, allavegana heyrir maður ekki neinar sögur af því hvað langömmur okkar áttu bágt og þurftu að fara vel með sig og fara í jóga og slökun og meðgöngunudd og nota nógu fínt bumbukrem og spangarkrem já og muna spangarnuddið (nýbúin að komast að því hvað það er, ef þið vitið það ekki þá er ágætt að halda því þannig) og stuðningsbelti og stuðningssokka og passa líkamsstöðuna og sofa með kodda milli fóta og við bumbuna og fara í sérstaka óléttuleikfimi og gera réttar æfingar og passa grindarbotninn maður og borða rétt og taka öll vítamínin (en bara þau réttu) og omg finna rétta barnavagninn og bílstólinn og fara á foreldranámskeið og brjóstagjafanámskeið og uppeldisnámskeið og lesa heilt bókasafn um hvert skeið meðgöngunnar og undirbúa fæðinguna og læra öndun og horfa á fæðingarmyndbönd og æfa fæðingarstöður með makanum og gera barnaherbergið fínt og setja krúttípúttí veggfóður í réttum lit og finna nógu frumlegt (og væmið) nafn og kaupa nógu fín óléttuföt og óléttute og ráða einhvern til að taka vídjó í fæðingunni (nei hættu nú alveg) og já helst að vera búin að taka afstöðu til þess fyrirfram hvort eigi að öskra í fæðingunni eða vera pen og segja bara ái og annaðhvort vilja allt náttúrulegt og æðislegt og engar deyfingar og barnið verður hamingjusamt og fallegt eða panta mænudeyfingu fyrirfram já ef maður pantar ekki bara keisara fyrirfram eins og fræga fólkið og á að nota taubleiur eða pappírs (hugsaðu um umhverfið manneskja) og er svindl að kíkja í pakkann (dj.. þoli ég ekki athugasemdir um það) og er siðferðilega rangt að fara í fósturgreiningu og er ég að þyngjast akkúrat mátulega mikið og er bumban mátulega stór kannski ég hætti núna...

Kannski vissu langömmurnar bara að það mundi enginn nenna að hlusta á þær kvarta, ekki víst að þær hafi verið neitt sérstaklega sprækar síóléttar (nýyrði) með barnaskarann í pilsfaldinum og meira en nóg að gera og enginn tími til að spá of mikið í hlutina.  Og ekki kvörtuðu þær eftirá sem létust af barnsförum og hugsa sér hvað þær misstu sumar mörg börn í fæðingu eða á unga aldri.  Ég held að ég hafi það bara mjööööög gott.  Ætla að hvíla mig aðeins núna og fara svo í barnavagnabúðina Whistling


Grasekkjan komin heim

Ekki nóg með að ég vorkenndi mér sjálf heldur voru aðrir farnir að vorkenna mér og slegist um að sækja mig á völlinn, ekki hægt að láta þessa svekktu og óléttu og kvartandi grasekkju taka rútu eins og almúginn.  Gísli hreppti hnossið og byrjaði á því að tilkynna mér að mamma væri að baka hjónabandssælu, svona af því að mín hjónabandssæla er eitthvað tæp þegar við hjónakornin erum í sitthvoru landinu?  Síðan var byrjað á að fóðra mig á kakói og köku, svo lá ég í leti uppí sófa (n.b. enginn sófi í Sjafnargötunni, varð að nota tækifærið) og ætlaði nú einhvern tímann heim, mamma stakk upp á að horfa á vídjó, svo var spaugstofan að byrja, svo kom þessi fína mynd í sjónvarpinu..  Einhvern veginn var líka ekkert sérstakt sem dró mig heim, enda ekkert þar!Tounge

En frá Danmörkinni er það að frétta að Ágúst og Haukur tæmdu gáminn í gær með aðstoð heillar hrúgu af Íslendingum, ég hafði greinilega staðið mig þvílíkt vel í almannatengslum! Og það án þess að hitta nokkurna mann, svona er tölvuvæðingin...  Ágúst sagði síðan að við ættum alveg yfirdrifið af búslóð/húsgögnum í húsið, áhugavert með tilliti til þess að húsið er meira en helmingi stærra en íbúðin í Sjafnargötunni!!! (fannst einhvern tímann einhverjum að það væri svolítið troðið í stofunni??) Já og nágrannarnir komu með blóm, helvíti eru danirnir næs! ég mein voða eru þeir hyggeligir.

Haukur er svo á heimleið og Ágúst einn eftir á farfuglaheimilinu, grasekkill á gistiheimili, það hljómar hálf-trist...  Já btw hann er kominn með danskan gsm +45 27 19 61 40 (og ef ég þekki hann rétt er hann ekki búinn að segja nokkrum manni frá því Wink og öll sms og hringingar til hans síðustu daga hafa bara brotlent í Atlantshafinu)

En ég vaknaði óvart allt of snemma (á dönskum tíma), búin að lesa fullt af blöðum og borða morgunmat 2x og ætla núna að skella mér í að spila 2 stk. fermingar í Grafarvoginum, bæjó spæjó.


Harmsaga í Horsens, 4. kapítuli

Setustofan á Farfuglaheimilinu í Horsens er orðin ákaflega heimilisleg, Ágúst stakk reyndar upp á því að við slepptum bara húsinu, hér er allt sem við þurfum - stór stofa, sjónvarp, píanó, internet, eldhús (engin uppþvottavél samt), kojur (vondar dýnur samt), hvað þurfum við svosem meira?

Þurfum samt eitthvað að gera við búslóðina úr því að hún er mætt til Horsens, Samskip fengu nefnilega nóg af þessu hringli og frestunum með gáminn og vildu fara að losna við hann.  Ágústi tókst að láta fasteignasalann díla við seljandann um að opna fyrir okkur húsið og leyfa okkur að tæma gáminn, svo skellir hann í lás aftur.  Já og N.B. þarf að standa yfir okkur allan tímann, annars aldrei að vita hvað svona skreiðarétandi glæponar gera af sér.  Þess vegna er ekki hægt að gera þetta fyrr en á morgun laugardag (þegar ég er farin aftur heim) því seljandinn hefur ekki tíma fyrr en þá.  Jibbíjei og allt það, næ ekki einu sinni að stinga annarri nösinni inn í húsið sem ég mætti til að flytja inn í.  Engin beiskja, engin beiskja... Alien  En búið að skella gámnum við innkeyrsluna á Lindeparken og verður svo bara tekinn (tómur vonandi) á mánudag.

Alveg að rætast úr þessum greiðslum, meirihlutinn kominn til Danmerkur, en seljandinn lætur lykilinn ekki af hendi fyrr en hver einasta króna er komin og hananú.  Yfir og út.


Af afturfótunum niðrá rass

Jájá allt runnið á rassinn, fínt farfuglaheimili maður.


Afturfætur 2 - Haukur hetja

Haukur bróðir fékk brunasár í eyrun þegar ég útskýrði stöðuna fyrir honum því það byrjaði að rjúka svo mikið úr eyrunum, hann sagðist bara mæta og redda þessu no problemo...  Hann mætti því eins og til stóð um miðja nótt, reyndar töskulaus því taskan (sem var aðallega full af dóti frá okkur, hann millilenti í Kastrup á leið til Brussel á fund og ferjaði út tösku fyrir okkur og geymdi á Kastrup) læstist inni á Kastrup af því að fluginu hans frá Brussel seinkaði, Danir fara svo snemma í háttinn.

Allavegana er hann að reyna að redda einhverju skammtímaláni t.a. dekka útborgunina svo að húseigandinn fáist til að hleypa okkur inn!  Erum nógu bjartsýn til að vera búin að tékka okkur út af vandræðaheimilinu og færa okkur yfir í setustofuna (svaka munur), sitjum þar þrjú með tölvurnar að nördast og skiptumst á að nota innstungurnar tvær sem finnast í húsinu, er styttra síðan rafmagn var fundið upp í Danmörku en annars staðar?

M.a.s. búið að finna dreng í Köben sem ætlar að skjótast út á Kastrup og senda töskuna til Horsens svo Haukur þurfi ekki að vera í jakkafötunum það sem eftir er.

Nú og einar magnaðar fréttir, Ágúst hefur hafið innreið sína á msn-lendur (agusagu@yahoo.com) og svo minnist ég þess að hafa þekkt miklu fleiri á msn í gamla daga áður en tölvan mín hrundi síðast, viljiði kannski adda mér (laraegg@yahoo.com) ef þið nennið að tala við mig? Mér leiðist.


Afturfæturnir maður

Það þykir alltaf voðalega merkilegt og jákvætt þegar dýr (já og börn) geta gengið á afturfótunum, en hins vegar er alls ekki jákvætt þegar allt gengur á afturfótunum, eins og það gerir einmitt núna hjá okkur í Horsens.  Fyrsta vísbendingin um að ekki sé allt eins og það á að vera er að ég sit núna uppí rúmi á Horsens Vandrerhjem en ekki í Lindeparken 3, hmm...  Sem sagt smá vandræði við að fá húsið afhent, af því að einhverjir blýantanagandi enskir bankadrengir klúðruðu því gjörsamlega í tætlur að koma peningum sem pabbi var að skaffa okkur fyrir útborgun frá London til Danmerkur, væri of löng og fáránleg saga að útskýra hvernig böns af peningum getur týnst í bankakerfinu, ætli það tengist því að skoskar rottur eru alltaf að naga sundur sæstrengi?

Af svona sæmilega skiljanlegum ástæðum þá langar tilvonandi fyrrverandi húseiganda ekki að afhenda vafasömum kaupendum af yfirtöku-þjóðerni húsið án þess að fá einhvern pening, og þess vegna erum við enn húslaus, húsið eitt og yfirgefið, pabbi í London að tala yfir hausamótunum á sedrusviðarætunum, og bankalingarnir að hamast við að afsaka sig og segja pabba og okkur og fasteignasalanum að þetta sé allt að koma, nefin á þeim eru sífellt að lengjast.

Ég sem hafði mestar áhyggjur af því að við fengjum gáminn ekki afhentan á skikkanlegum tíma, búið að segja okkur að það myndi ábyggilega ekkert gerast fyrr en við hefðum samband á þriðjudegi (í gær) út af páskahelginni, en við hringdum samt til Árósa fyrir helgi og þeir sögðu þar að kannski hugsanlega gætum við fengið gáminn í allra fyrsta lagi í hádeginu á miðvikudegi.  Og hringir svo ekki gámakeyrslumaðurinn í mig kl 13 í gær þriðjudag og spyr hvort ég sé ekki ábyggilega til taks að taka á móti gámnum, kolruglað lið.  Ég sat bara á McDonalds á Hovedbane í Köben og átti ekki einu sinni hús undir dótið í gámnum.

Veit semsagt ekki alveg hvað ég er að gera í Horsens.  Hugsanlegt að dæmið gangi upp á morgun fimmtudag og þá hefði ég allavegana föstudaginn t.a. raða dóti áður en ég fer eldsnemma á laugardag.  Til að kóróna allt þá mætir Haukur bró til Horsens í kvöld t.a. hjálpa okkur að koma okkur fyrir, hann fær að kúra á milli okkar á farfuglaheimilinu og vonandi eitthvað tækifæri til að gera gagn!  Æ ég er ekkert mjög kát yfir þessu.


10!!!!!

Ágúst gerði sér lítið fyrir og þrusaði í gegn svakalegasta lokaprófi sem hefur verið tekið frá hinum víðfræga Tónskóla Þjóðkirkjunnar, sló út einkunnamet eiginkonunnar og fékk 10.0 takk fyrir.  Hann var líka búinn að vinna hörðum höndum (og fótum) að þessu í allan vetur og eiginlega miklu lengur, sum stykkin hefur hann verið að stúdera í nokkur ár!  Vann 50% í vetur og æfði sig eins og dj...ll, svo þegar kom alltíeinu í ljós að við værum að flytja og hann þyrfti að flýta prófinu fékk hann að hætta í vinnunni og æfði sig þá fáááááránlega mikið, mættur upp í kirkju fyrir 7 á morgnana og svo aftur eftir lokun fram á kvöld, púff.  Þetta tókst allavegana sæmilega...

Smá galli við þetta allt saman að ólétta eiginkonan þurfti að sjá um allt annað, smáatriði eins og að pakka búslóð (og gekk pínulítið fram af sér, ég viðurkenni allt) og svo var ég líka mjööööög dugleg að undirbúa fína veislu eftir tónleikana, hef eiginlega aldrei séð mig fyrir mér í snittugerð en það æxlaðist samt einhvern veginn þannig að ég töfraði fram dýrindis rétti (fyrir ca. 500 manns held ég)með dyggri aðstoð mömmu og tengdamömmu.  Kvarta svo ekki yfir afgöngunum, mokaði í mig ávöxtum og berjum og snittum og gúmmelaði í gær og á enn eftir slatta af bláberjum og sit núna uppí rúmi með hníf og gaffal og 1/4 af sætustu og safaríkustu vatnsmelónu í heimi (reyndar slæm hugmynd, út af þessu hvað hún er safarík).

Já ég var reyndar kannski aðeins of dugleg í eldhúsinu föstudag og laugardag því það endaði með því að eftir samkvæmið voru lappirnar ónýtar (þurfa að bera 10 aukakíló þessa dagana) og lífbeinið að klofna, það er eiginlega ekki nógu gott.  Já og pínu samdrættir líka, hmm...  Lét mér líka nægja að spila 2 messur á páskadag, slapp við þá þriðju og lá í staðinn í bælinu eftir hádegi með páskaegg (frá Hafliða chocolatier, omg hvað nammið inní því er gott, takk Kata frænka!) og bláber, fór svo til mömmu og lagðist í baðkerið og sófann og svo var hún með fínan páskamat og við átum á okkur gat og svo hélt ég áfram að liggja í sófanum...

Fermdi svo nokkur börn í Grafarvogskirkju í dag í 2 messum og lagðist svo aftur í bælið, fann reyndar ekki páskaeggið (ágúst hafði laumað því inn á skrifstofu en þóttist reynar ekkert hafa falið það, ég bara hafði ekki rænu á að gá) svo ég borðaði bara venjulegt nammi.

Svo erum við bara farin út í fyrramálið!  Horsens hír ví kom ég meina her kommer vi.  Eini munurinn að ég kem til baka en Ágúst ekki.  Bæjó.


Útskriftartónleikar Ágústar og í leiðinni kveðjuhóf Danmerkurfara

Kæru ættingjar og vinir
Eins og mörg ykkar vita hefur Ágúst minn ektamaður verið að stunda nám í einleiksáfanga á orgel við Tónskóla Þjóðkirkjunnar í vetur en þeim lýkur með prófi í formi útskriftartónleika.  Upphaflega stóð til að hann lyki þessu prófi í maí en þar sem hann er nokkuð skyndilega á leið til sérnáms í Danmörku - og byrjar þar að vinna 1. apríl - verður hann að ljúka þessu nú í mars.
Tónleikarnir verða þann 22. mars nk. kl. 17.30 (laugardaginn fyrir Páska) í Hallgrímskirkju.  Aðgangur er ókeypis og takið endilega með alla þá gesti sem hefðu áhuga. Efnisskráin er vægast sagt glæsileg og mikið fjör að fylgjast með drengnum, ég held að hann slái jafnvel undirritaðri við í fótafimi.
Eftir tónleikana hans Ágústar verður smá móttaka í sal kirkjunnar og þar fögnum við bæði glæsilegum tónleikum og kveðjum þá sem mæta.  (Ég sjálf er þó ekki alfarin fyrr en 20. maí en skrepp samt út með Ágústi 25. mars til að sýna honum húsið sem ég keypti handa honum og taka á móti gámnum)
Okkur þætti vænt um að sjá ykkur sem flest.
Kær kveðja,
Lára og Ágúst

Passio eftir Arvo Pärt í Hallgrímskirkju á skírdag kl. 17

Listvinafélag Hallgrímskirkju stendur fyrir tónleikum á skírdag, 20. mars kl. 17, þar sem Schola cantorum og kammerhópurinn CAPUT ásamt einsöngvurum flytja Jóhannesarpassíu eistneska tónskáldsins Arvo Pärt. Stjórnandi er Hörður Áskelsson.
Jóhannesarpassía Pärts er talin til höfuðverka tónskáldsins, grípandi og áhrifamikil óratóría. Hún er nú flutt í fyrsta sinn á Íslandi.

"Passio" eftir Arvo Pärt flytur píslarsöguna með orðum Jóhannesarguðspjalls á latínu. Tómas Tómasson bassi syngur hlutverk Jesú, Þorbjörn Rúnarsson tenór er í hlutverki Pílatusar, einsöngvarakvartett skipaður Margréti Sigurðardóttur sópran, Guðrúnu Eddu Gunnarsdóttur alt, Braga Bergþórssyni tenór og Benedikt Ingólfssyni bassa flytur orð guðspjallamannsins og kammerkórinn Schola cantorum túlkar prestana, lýðinn o.fl. Hljóðfæraskipanin er látlaus: fiðla, selló, óbó, fagott og orgel. Hljóðfæraleikarar eru Hildigunnur Halldórsdóttir fiðla, Hrafnell Orri Egilsson selló, Eydís Franzdóttir óbó og Kristín Mjöll Jakobsdóttir fagott. Björn Steinar Sólbergsson leikur á orgelið.

Miðasala er hafin í Hallgrímskirkju og 12 tónum, miðaverð er kr. 3000,-  (2500 ef þið segið töfraorðið Lára Bryndís í miðasölunni)


Arvo Pärt og Passio

Arvo Pärt fæddist í nágrenni Tallinn í Eistlandi árið 1935. Hernám Sovétmanna í Eistlandi setti mjög mark sitt á æsku hans, en því lauk ekki fyrr en við upphafi tíunda áratugarins. Á unglingsárum sínum svalaði Pärt tónlistaráhuga sínum meðal annars með því að hlusta á útvarpið af mikilli áfergju. Síðar fékk hann vinnu við eistneska ríkisútvarpið sem hljóðmaður. Í þeim starfa komst hann í tæri við þá nútímatónlist sem á annað borð var leyfð í landinu.

Pärt var fyrstur eistneskra tónskálda til að nota tólftóna-tækni Schönbergs. Það gerði hann í hljómsveitarverkinu Necrolog (1960/61), sem hann samdi meðan hann var enn við nám í Tónlistarháskólanum í Tallinn. Verkið olli nokkrum titringi meðal yfirvalda, sökum meints skyldleika við úrkynjað tónmál Vesturlanda. Þó kom það ekki í veg fyrir að hann yrði meðal sigurvegara í keppni fyrir ung tónskáld innan Sovétríkjanna árið 1962.

Á sjöunda áratugnum kafaði Pärt djúpt í tónlistararf vestur Evrópu, einkum tónlist J.S. Bachs. Sömuleiðis sótti hann í vaxandi mæli í arf kristinnar trúar í lítilli þökk yfirvalda. Verk hans Credo (1968) var bannað af sovéskum yfirvöldum sem hugnaðist ekki sú blygðunarlausa játning sem fólst í orðunum ,,Ég trúi á Jesú Krist."

Eftir þetta dró Pärt sig í hlé og sökkti sér niður í rannsóknir á gregorssöng og endurreisnar- og miðaldatónlist.  Árið 1971 sendi hann þó frá sér þriðju sinfóníu sína þar sem slík áhrif koma við sögu.  Annars samdi hann mest lítið næstu árin nema kvikmyndatónlist, en henni hafði hann alla tíð sinnt meðfram öðrum tónsmíðum. 

Í sjálfskipaðri útlegð sinni frá athygli umheimsins færði Pärt sig nær grunneiningum tónmálsins og fór að leggja nýjan skilning í möguleikana sem búa í einum stökum tóni, og enn fremur mikilvægi einfaldra þríhljóma.  Út frá þessu þróaði hann eins konar lögmál sem hann nefnir tintinnabuli og kemur fyrst skýrt fram í píanóverkinu Für Alina (1976).

Árið 1980 yfirgaf fjölskylda Pärts Eistland og settist að í Berlín.  Fljótlega eftir það samdi hann Jóhannesarpassíu út frá tintinnabuli-lögmálinu og hefur hann síðan þá að mestu einbeitt sér að trúarlegri tónlist.  Meðal slíkra verka má nefna Sieben Magnificat-Antiphonen (1988), Miserere (1989), Beatitudes (1990) og Litany (1994).

Í hverju nýju verki vinnur Pärt út frá lögmálum sem leiða tónsmíðina áfram, segja til um tónhæð og nótnagildi og jafnvel uppbyggingu verksins í heild.  Hann ber þetta ferli saman við verk skaparans sjálfs og segir: „Ég horfi á það sem var fyrir stóra hvell … þegar Guð hafði þá þegar fullgert formúluna."  Enn fremur segir Pärt að í söngtónlist sé textinn aðalefniviðurinn sem hann vinnur með út frá lögmálum sínum, og segir textann vera mikilvægari en tónlistina sjálfa.  Hann leitar að því sem býr að baki sérhverju orði, hversu mikilvæg sem orðin kunna að virðast, og er útkoman stundum óvænt.  Hann rígheldur þó ekki í fastákveðin lögmál heldur sveigir þau og beygir uns lögmálin, textinn og tónverkið falla saman.

Innan kirkjunnar er aldagömul hefð fyrir því að syngja frásagnir guðspjallanna fjögurra um píslargöngu Krists í dymbilviku.  Söngformið þróaðist smám saman á þann hátt að mismunandi hlutar sögunnar urðu að mismunandi sönghlutverkum; prestur söng orð Jesú, djákni fór með hlutverk sögumanns og lægra settur kirkjunnar maður söng fyrir aðrar sögupersónur, þ.á.m. Pílatus, Pétur og mannfjöldann.  Á tímum J.S. Bach höfðu tónsetningar píslarsögunnar síðan fest sig í sessi sem stór tónverk með aríum, sálmalögum og kórhlutum, allt á móðurmálinu, þar sem túlkun tilfinninga er gefinn mikinn gaumur.

Arvo Pärt fer allt aðra leið í Jóhannesarpassíu sinni.  Hann notar latneska þýðingu, og hvert "hlutverk" fær aðeins fyrirfram ákveðna tóna og nótnagildi til að spila úr.  Jafnvel þagnirnar milli setninga eru fastákveðnar og ræðst lengdin af atkvæðafjölda síðasta orðsins á undan.

Guðspjallamaðurinn, aðalfrásagnarhlutverkið í passíunni, er sunginn af blönduðum kvartett við undirleik fiðlu, óbós, sellós og fagotts, allt út frá nótunni A.  Orð Jesú eru sungin hægar og fá því meiri tíma, bassinn flytur þau og orgelið leikur með eins konar spegilmynd af sönglínunni.  Tenórsöngvari fer með hlutverk Pílatusar ásamt orgelundirleik, og kemur tónbilið stækkuð ferund eða „tónskratti" mikið við sögu.  Kórinn fer með önnur hlutverk og byggist allur söngur hans á E-dúr þríhljómi nema upphafið og lokin, en sá texti er ekki úr guðspjallinu heldur annars vegar titillinn „Passio Domini Nostri Jesu Christi secundum Joannem" og hins vegar lokabænin í D-dúr „Qui passus es pro nobis, miserere nobis. Amen." eða "Þú sem þjáðist fyrir oss, miskunna þú oss. Amen."

Þrátt fyrir að nóturnar séu fyrirfram ákveðnar af nákvæmum og einföldum lögmálum höfundarins, þá ber tónverkið tintinnabuli-lögmálinu fagurt og magnað vitni.  Skýrt dæmi er orðið „crucifigeretur", lengsta orðið í allri passíunni.  Þar berst laglínan, samkvæmt lögmálinu, lengra frá grunntóni sínum en annars staðar, um leið og Jesú er færður til krossfestingar.

 


Bíllaust líf eður ei?

Get engan veginn ákveðið hvort við hendum grænu beyglunni (m.ö.o. mínum ástkæra súbbarú) í gám til Danmerkur eða hvort við kaupum okkur bíl þar eða hvort við barasta bara gerum eins og sumir útlendingar sem ég hef heyrt um og verðum bíllaus Gasp

Sko græna beyglan sem mér finnst voða fín er það kannski ekki í augnablikinu, enda bæði beygluð og með drynjandi ónýtt púst, það stendur reyndar til bóta (allavegana pústið).  En öllum öðrum finnst súbbi greyið drusla, þ.á.m. tengdó, en hennar bíll dó drottni sínum í síðustu viku og hún varð bara móðguð þegar ég bauð henni að kaupa súbba! Blush  Enda keypti hún miklu flottari bíl, öfundiöfundi...  En það gæti varla þurft að borga nema svo og svo mikla tolla af svona ónýtum bíl í Danmörku og það kostar ekkert agalega mikið að flytja bílinn.  Hins vegar er a.m.k. jafnógeðslegadrulludýrt að reka bíl í DK...

Svo er það hreinlega spurning hvort við þurfum bíl, búum við hliðina á vinnunni hans Ágústar og í alveg meinlausri göngufjarlægð við miðbæinn og búðina og svoleiðis, og það hefur nú t.d. sést til mín á hjóli áður, m.a.s. hef ég heyrt að í útlöndum noti fólk strætó, og hann stoppar einmitt rétt hjá húsinu.  Flækir samt kannski málin eitthvað að vera með grisling.  Og ef allt er í volli mundi nú líklega ekki gerast neitt verra en að við keyptum bíl...

Er að verða komin að þeirri niðurstöðu að leyfa súbba að búa áfram á Íslandi og sjá bara til hvort við þurfum bíl í bili.  Einhverjar aðrar tillögur?


Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband