Já ungabörnin anga svo yndislega

Svo lengi sem mamma þeirra mokar ekki í sig guacamole með alltof miklum hvítlauk og sullar yfir barnið.  Og grey drengurinn ef satt er að bragðið af því sem móðirin lætur ofan í sig smitist yfir í móðurmjólkina, þá fær hann hræring af hvítlauk, harðfiski, súkkulaði, geitaosti, mygluosti og ég veit ekki hvað, ógeðsdrykkir hvað!!!

Reyndar er hlutfallslega lítið af súkkulaði í blöndunni því ÁGÚST FALDI SÚKKULAÐIÐ!!!! Til að tryggja það að hann gæti borðað eitthvað af heimilisbirgðunum sjálfur þá greip hann til þessa örþrifaráðs.  Síðan þarf ég reglulega að reyna að blíðka hann til að fá smá bita.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

aha svo  hann sonur minn er laumu sælgætisgrís hmm 

af hverju gerir þú ekki bara það sama kær tengdadóttir

kv tengdó

Hallveig Guðný Kolsöe (IP-tala skráð) 19.9.2008 kl. 18:52

2 identicon

Já ég styð hugmynd Hallveigar, bara að verða sér úti um eigið súkkulaði og eiginn felustað ;)

Auður Agla (IP-tala skráð) 22.9.2008 kl. 13:45

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband