Rabbarbarasulta og annað meðlæti

Var að moka í mig lambasteikinni með brúnni sósu og kartöflum og vææææænnni hrúgu af rabarbarasultu (frá mömmu ovkors) og þá rifjaðist upp fyrir mér hvað kjötbúðingurinn hennar ömmu á Brún var alltaf dásamlega góður með kartöflum og vel af sultu, í framhaldi af því rifjaðist svo upp fyrir mér að ég fékk einmitt uppskriftina hjá Deddu frænku í síðustu heimsókn, aldrei að vita nema verði framreidd dönsk útgáfa af ködbuding með syltetöj í Lindeparken einhvern tímann Happy.

Kjötbúðingur Ömmu á Brún: 500 g nautahakk - ½ bolli tómatsósa - ½ bolli haframjöl - ¼ bolli saxaður laukur - 1 egg - 1 tsk. salt - ½ tsk. pipar - ½ tsk. hvítlaukssalt - 1 tsk. kjötkraftur - Smjör(líkis)biti ofan á  - Bakað við 200°C í ca. 30 mín.

En svo rifjaðist líka upp fyrir mér "meðlætisrifrildi" okkar Ólafar í gærkvöldi.  Hún fór eitthvað að tala um hvað hefði nú verið gott að stappa matinn saman í gamla daga (fiskur og tómatsósa t.d.) og ég minnist á dásemdina við að grauta slátri, kartöflum rófum og öllu öðru saman á disknum og svo veeeel af uppstúf yfir.  Ólöf gat ekki dulið hneykslunina.  Uppstúf á slátur, þvílík og önnur eins vitleysa, það á að borða kartöflustöppu með slátrinu.  Uppstúf með hangikjöti.  Þá greip ég nú inn í og benti á að það á ekkert að vera sulla uppstúf á hangikjötið heldur borða kartöflustöppu með og ekkert kjaftæði.  Grundvallarágreiningur.  Bara svo að enginn fari að óttast þá skildum við Ólöf þrátt fyrir allt sem vinkonur síðar um kvöldið... Whistling


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég er nú eiginlega bara ennþá í sjokki (ha? ertu bara í einum sjokki?) eftir þessa uppstúfsvitleysu.  Ja hérna hér.  Ég legg til að hér eftir verði talað um uppstúfsmálið mikla 2008.

Ólöf skólöf (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 11:22

2 identicon

Mér hefur reynst erfitt að hafa upp á hreinni rabarbarasultu (sem inniheldur eingöngu rabarbara og sykur) hér í hinu rotna Danaveldi. Ef þú ert ekki þeim mun hrifnari af rabarbara/jarðarberjasultu (grautað saman) þá gæti verið góð hugmynd að taka með nokkrar krukkur af rabarbarasultunni hennar mömmu þinnar. Eða eitthvað.

orgelstelpa (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 12:30

3 identicon

Vá mér líst vel á þennan kjötbúðing, eg held ég hafi ekki borðað svoleiðis síðan í leikskóla, og er ég ekki að ýkja.. þannig að ég panta einn slíkan þegar ég kem í heimsókn til Danaveldis :)

Hildur (IP-tala skráð) 15.4.2008 kl. 21:32

4 Smámynd: Lára Bryndís Eggertsdóttir

Eins gott að ég á stærsta pott í heimi (kjötsúpupottinn sem tengdapabbi gaf okkur í jólagjöf um árið) til að sjóða rabbarbarasultuna með öllum kjötbúðingnum sem ég er að fara að elda í Horsens...

Lára Bryndís Eggertsdóttir, 15.4.2008 kl. 22:53

5 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Orgelstelpa, sjóða sjálf sultu, voða lítið mál :D

Hmm, búðingurinn hljómar annars vel, aldrei að vita nema maður prófi...

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.4.2008 kl. 07:49

6 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

(er þessu annars bara öllu hrært saman og bakað, laukurinn eða hakkið ekkert steikt neitt?)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.4.2008 kl. 07:51

7 Smámynd: Lára Bryndís Eggertsdóttir

Bara hræra gumsinu saman (í hrærivél minnir mig að amma gamla hafi gert), moka í eldfast form og henda í ofninn.  Amma frysti hann líka í álbökkum til að eiga tilbúinn beint í ofninn, 1944 iss piss.  Kem kannski með rúgbrauðsuppskriftina hennar ömmu líka við tækifæri (mamma á að eiga hana í einhverri eldhússkúffunni), það er í alvörunni best í heimi slef slef, bakað í súrmjólkurfernum yfir nótt.

Lára Bryndís Eggertsdóttir, 16.4.2008 kl. 09:18

8 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

ahh, svoleiðis geri ég líka, það er algjört nammi, sérstaklega heitt og nýbakað. Prófa uppskriftina bókað :)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 16.4.2008 kl. 10:33

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband