Lára organisti seiseijá

Ég geng um dags daglega og segist vera organisti (allavegana "aðallega organisti" og svo kemur einhver furðuleg útskýringarræða) en spila samt ekkert sérstaklega mikið, mæti á hjólaæfingar á sunnudagsmorgnum eða (oftar núorðið) ligg bara í bælinu og hlusta á útvarpsmessu og hía á alla organistana sem þurfa að spila á hverjum sunnudegi.

En úbbosa nú ég á aldrei framar frí á sunnudögum. 

Í fyrsta lagi þá er ég að leysa Eyþór af á Akureyri nokkra sunnudaga í janúar og febrúar og spila líka fyrir sunnan inn á milli. 

Í öðru lagi þá var ég að ráða mig í Grafarvogskirkju, tek við kirkjukórnum strax í næstu viku og messunum þegar ég hef lokið mér af á Akureyri.  Vill einhver reyna að giska hvað ég ætla að spila yfir mörgum fermingarbörnum í vor?  Svo verð ég bara í Grafarvoginum þar til ég rúlla af orgelbekknum og fæði barn, og þá sef ég ábyggilega ekki út á sunnudögum framar.


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Vá það er aldeilis!!  Innilega til lukku með þetta allt saman  

Sibba (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 23:10

2 identicon

Ég er viss um að engin hefur fætt á orgelbekk.  Það myndi nú vera táknrænt fyrir áhuga ykkar hjóna á orgelum að taka orgelbekk með á fæðingarstofuna.  Aldrei velt því fyrir ykkur?

Eyþór (IP-tala skráð) 19.1.2008 kl. 23:26

3 Smámynd: Hildigunnur Rúnarsdóttir

Er Hörður að hætta? :o Vona hann sé ekki veikur. Passaðig á fermingarmessunum, Hörður einmitt yfirkeyrði sig á þeim í fyrra...

(til hamingju, annars :D)

Hildigunnur Rúnarsdóttir, 20.1.2008 kl. 16:52

4 Smámynd: Lára Bryndís Eggertsdóttir

Eruði rugluð að óska mér til hamingju!? Ég með mína fastráðningafælni er alveg miður mín yfir þessu...   En kannski bankareikningurinn kætist.

Lára Bryndís Eggertsdóttir, 20.1.2008 kl. 17:44

5 identicon

Til hamingju eða hvað sem það er sem þú vilt að ég segi

Sumar konur mæta með fæðingarstóla á fæðingardeildina - þið getið mætt með orgelbekk.

Dagbjört (IP-tala skráð) 24.1.2008 kl. 02:10

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband