Sýnist ykkur þessi piltur eitthvað hvekktur?

Lok apríl 055

Það er svo agalega erfitt að vera smábarn, Ágúst Ísleifur þjáist af tanntöku og eyrnabólgu þessa dagana. Tönn nr. 5 og 6 komu síðustu helgi (uppi) og okkur grunar að það styttist í 7 og 8 (niðri).  En tannmálin eru yfirstíganleg, verra með eyrnabólguna, búinn að vera endalaus pirringur í okkar manni leeeeeengi, fórum með hann dýrvitlausan (ok smá, ýkjur þó hann hafi vissulega orgað mikið um nóttina) á læknavaktina síðustu helgi (fyrir rúmri viku semsagt) og jújú smá roði í öðru eyranu og síðan aftur á þriðjudaginn og þá var mældur þrýstingurinn í miðeyra og gutlar allt í vökva báðum megin.  En hann hefur ekkert verið lasinn með hita og það sést enginn roði núna svo það á bara að skoða aftur eftir 3 vikur.  Panodil-stílar skaffa svefnfrið á nóttunni.

Svo má til gamans geta að þetta hálffullorðna barn var löngu búið að missa áhugann á brjóstajapli, drakk bara smá af einskærri skyldurækni þegar var troðið upp í hann, helst ef hann var hálfsofandi.  Ég ákvað bara að holde op með þessa mjólkurkúgun og hætti að gefa honum á 10 mánaða afmælisdaginn og hann hefur ekki tekið eftir því enn þá...

Og ekki má gleyma að ég gerðist tvíburamóðir í gær án þess að blikka auga, passaði Emilíu Glóð vinkonu Ágústar Ísleifs, öllu heldur pössuðu þau hvort annað og ég sá bara um að keyra vagninn.

IMG_2450[1]


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Þá geturðu nú aldeilis farið að bryðja lyf og drekka alkóhól eins og þig lystir! Heppin

Hrafnhildur (IP-tala skráð) 28.4.2009 kl. 12:34

2 Smámynd: Lára Bryndís Eggertsdóttir

Það skal engan undra að ég drakk veeel af rauðvíni með steikinni á afmælisdaginn og fór svo að bryðja þörunga-vítamín-undrapillur við hárlosi

Lára Bryndís Eggertsdóttir, 29.4.2009 kl. 09:04

3 identicon

Hipphipp! Mikið öfunda ég ykkur annars af veðráttunni !!!!!!  

Sigga Pé (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 09:18

4 identicon

hihi... ekkert smá flottur Ísleifurinn! og bara byrjaður í leikfimi úti í stóra garðinum sínum

Hallveig frænka (IP-tala skráð) 29.4.2009 kl. 17:59

5 identicon

sælar :)

Vá hvað minn stækkar:) Hann lætur sko alveg hafa fyrir sér þessi elska svoleiðis á það líka að vera.. En já ég held að ég þurfi nú að fara gera eitthvað í þessu með heimsóknina til ykkar... En núna verðum við bara fara gera deit á þetta hjá okkur;O)  Hvernig er vikan hjá ykkur????

 kv.Magga Sör og bumbubúinn ;)

Magga Sör (IP-tala skráð) 2.5.2009 kl. 21:38

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband