Mín hinsta jarðarför

Já ég söng mitt síðasta í gær, veit ekki hvað ég var eiginlega að reyna en þóttist syngja í einni jarðarför en beilaði á þeirri seinni og fór heim í bælið og hef verið þar síðan.  Ljósan sagði í gær að ég ætti að minnka við mig vinnu (hmm.. segir ekki) en ég fer til læknis á mánudaginn og hann segir þá kannski hvað ég sé mörg prósent ónýt...  Veit samt ekki alveg hvernig þetta virkar með verktakavinnu (er nebla verktaki í Grafarvoginum eins og öllu öðru), vona allavegana að fæðingarorlofssjóður (uppáhaldsstofnunin mín) fáist til að borga mér einhver lúsar-veikindalaun sem duga fyrir poppinu og kókinu yfir öllu imbaglápinu þessa dagana.  Auðvitað fúlt að missa af tekjum og allt það, en þessi krakki á hvorteðer eftir að vera svo brjálæðislega dýr að þetta munar engu.  Hugsa sér öll hjólin sem þarf að kaupa undir hann (götuhjól, keppnishjól, fjallahjól, æfingahjól), einkatímar á orgel og öll möguleg hljóðfæri, bankareikningurinn minn verður bara hræddur ef ég held áfram.

Dagskráin samt búin að vera ótrúlega stíf í dag, heilir 2 organistar búnir að koma í heimsókn út af Biskupsstofu-/Söngvasjóðsmálum (Múhameð og fjallið - ekki fer ég út að hitta neinn) og svo er ég búin með heilmarga Scrubs-þætti og sauma svolítið út þess á milli...

Mamma ætlar síðan að tryggja það að við belgverjinn verðum stór og feit og sjóða kjötsúpu í kvöld, namminamm.  Kannski ég reyni að hafa einhver áhrif á það sem fram fer í pottinum úr því að ég geri nú einu sinni bestu kjötsúpu í heimi, allavegana finnst okkur Ágústi það!  Mamma verður alltaf jafnhissa þegar ég tel upp allt sem ég set í súpuna og hváir sérstaklega yfir hvítlauknum (oft, oft, í mörg ár).  Í beinu framhaldi má minna á að ég geri líka besta saltkjöt og baunir í heimi (líka með hvítlauk).

Já og loksins getur mamma soðið kjötsúpu skammlaust, fékk svaka flottan 10 lítra pott í snemmbúna sumargjöf frá Gísla og hann trónir stoltur á eldavélinni og getur ekki beðið eftir að komast í gagnið.  Hefur verið hálfneyðarlegt fyrir húsmóðurina hana Sigríði Teitsdóttur að þurfa að fá lánaðan pott hjá börnunum!


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Ég sé Gísla ljóslifandi fyrir mér þar sem hann trónir stoltur á eldavélinni óg bíður eftir að komast í gagnið. Segi svo sem ekki meira um það ;)

Auður Agla (IP-tala skráð) 19.4.2008 kl. 16:26

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband