Tveggja ára gutti!

Þessi káti strákur varð tveggja ára 24. júní!

2 ára 24.jún 032 (Large) 

Við héldum upp á daginn með því að fara í udflugt í "Den økologiske have" í næsta bæ og skoða dýrin og blómin. Ágúst Ísleifur og pabbi klöppuðu asnanum:

2 ára 24.jún 022 (Large)

Ágúst Ísleifur las á skiltinu hjá geitunum að geithafurinn stangaði, það reyndist alveg rétt.

2 ára 24.jún 009 (Large)    2 ára 24.jún 003 (Large)   

 Mamma kunni nú á honum lagið, bara klóra honum bak við eyrað...

2 ára 24.jún 008 (Large)

Síðan fengum við okkur nesti, Ágúst Ísleifur hámaði í sig vínber af bestu lyst:

2 ára 24.jún 037 (Large)     2 ára 24.jún 042 (Large)

Við sungum Jesús er besti vinur barnanna, stráksi er mjög góður í hreyfingum, alltaf er hann hjá mér, aldrei fer hann frá mér...

2 ára 24.jún 045 (Large)     2 ára 24.jún 046 (Large)

Við erum að sjálfsögðu að vinna í því að kenna honum að setja tvo putta upp í loft þegar við spyrjum "hvað ertu gamall?" Það er allt að koma (koma til skiptis einn og þrír puttar) en það kemur alltaf þetta dæmalaust krúttlega bros þegar við spyrjum:

2 ára 24.jún 041 (Large)

Ágúst Ísleifur var svo ljónheppinn að fá nýtt hjól í afmælisgjöf frá pabba og mömmu, en það er bara svo mikið að gera við að smíða girðingu og endurnýja grasflötina að það er ekki enn búið að taka mynd af því! Það stendur til bóta...


« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Athugasemdir

1 identicon

Gaman að sjá skemmtilegar myndir af ykkur öllum :) Kveðja til Horsens.

Dagbjört (IP-tala skráð) 26.6.2010 kl. 23:25

2 identicon

Innilega til lukku með frumburðinn! Frábærar myndir, augljóslega góður afmælisdagur! Já og múttan orðin myndarleg

Sigga Pé (IP-tala skráð) 27.6.2010 kl. 11:48

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband