Færsluflokkur: Bloggar
20.12.2007 | 18:33
Hátindi skassferilsins náð!
Undirrituð náði þeim merka áfanga í dag að vera rekin úr kór fyrir að vera með kjaft! Hef reyndar aldrei verið í þessum tiltekna kór, en ónefnd vinkona narraði mig til að hlaupa í skarðið fyrir sig í eitt gigg, tvenna tónleika í gærkvöldi og í kvöld. Ekki var nú æft sérstaklega mikið fyrir tónleikana en kórverkið hékk samt nokkurn veginn saman og við komumst í snyrtilega í gegnum það. Sama fannst mér ekki um orgeleinleik og -meðleik og blöskraði svo gjörsamlega að ég tók stjórnandann/organistann á teppið eftir tónleikana og sagði hitt og þetta (t.d. æfa sig heima etc.). Viðkomandi var ekki par ánægður, hringdi í söngmálastjóra og kvartaði og rak mig svo úr kórnum. Hinn sópraninn í röddinni minni treystir sér reyndar ekki til að syngja rulluna ein í kvöld og hálfraddlaus, spennandi hvernig þetta fer... Þrátt fyrir nokkuð víðtæka skoðanakönnun hef ég ekki fundið neinn sem var viðstaddur í gær sem er ekki sammála mér, sem betur fer voru ekki mikið fleiri en flytjendurnir sjálfir á tónleikunum og hananú.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
14.12.2007 | 10:50
Af ófærð og annarri vitleysu
Það var meira og minna ófært fyrir gangandi vegfarendur á Akureyri allan tímann sem ég var þar, þvílík manndrápshálka að ég vissi ekki hvort ég átti að hlæja eða gráta þegar ég kjagaði milli staða. Una frænka er að læra lögfræði í Háskólanum á Akureyri og hleypti mér sko aldeilis ekki óstuddri niður útitröppurnar hjá sér, ætlaði sko ekki að láta mig lögsækja sig ef ég dytti (var nýbúin að taka kúrs um skaðabótakröfur...).
Síðan kom að heimferðinni, búið að spá freeeeekar vondu veðri á miðvikudagskvöldið og spurning hvort vélin slyppi suður. Ekki er ég nú flughrædd, en hins vegar flugveikust (og bílveikust og sjóveikust og m.a.s. vindsængur- og tívolítækjaveikust) í heimi. Og hvað gera lyfjaheildsalar? Klikka á því að eiga lager af bílveikipillum. Bílveikipillur eru uppseldar á landinu!!!! Það er að vísu til önnur tegund en ég nota (brúka koffínátín), þ.e. postafen, en það gerir nákvæmlega ekki neitt fyrir mig, komst að því mér til mikillar skelfingar í 12 tíma flugi til Afríku. Ég bjóst því við hinu versta þegar ég steig inn í vélina, og það rættist. Ældi hérumbil alla leið í hristingi dauðans og hélt áfram eftir að vélin lenti. Flugfreyjan hafði nóg að gera við að taka á móti ælupokum og afhenda nýja (þurfti 3). Vildi til að ég sat ein aftast þannig að það þurfti enginn að kveljast með mér...
Og svo kemur vonda veðrið aftur og grey mamma sem ætlaði til Elínar í morgun situr úti á Leifsstöð og gæti þurft að bíða lengi! Reyndi að hringja í hana áðan til að biðja hana um að tékka hvort leynist koffínátín í apótekinu í fríhöfninni, en hún er greinilega svo niðursokkin í að nota tímann vel í búðunum að hún svarar ekki.
En það "gerðist" líka dásamlega skemmtilegur misskilningur áðan, ég ætlaði að senda Gísla hennar mömmu sms og spyrja hvort frúin hefði komist skammlaust út á völl, en ákvað svo að kíkja fyrst á netið hvort vélin hefði farið. Hlustaði á meðan á fréttirnar um brjálaða veðrið í borginni og ákvað að senda eiginmanninum sms um að ég yrði greinilega föst heima að taka til í dag, ekkert ferðaveður. Nema hvað, var búin að setja inn númerið hjá Gísla og hann fékk óvart tiltektar-sms-ið. Hann las það og gerði í fljótheitum ráð fyrir að það væri frá mömmu og sendi um hæl "á ég að sækja þig?" Ég hringdi nú í hann og sagði að hann þyrfti allavegana ekki að sækja mig og við hlógum vel og lengi...
Það rifjaðist líka upp fyrir mér þegar ég ætlaði að senda einni Auði í söngskólanum sms um að sækja einhverjar nótur á einhvern stað í söngskólanum, henni gekk illa að skilja hvað ég átti við, ég reyndi að útskýra betur, ekki skildi hún betur, svo kom að lokum sms "þetta er Auður Agla" sem er allt önnur Auður, var snarvitlausu Auðina farið að gruna að það væri einhver maðkur í mysunni. Ég fór náttúrulega að skellihlæja og hringdi strax í hana til að útskýra misskilninginn og romsaði heil ósköp, en þá skildi Auður ekki neitt hvað ég var að blaðra, enda hafði ég þá óvart hringt í söngskóla-Auðina sem kom alveg af fjöllum, gaaaahhhh.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
11.12.2007 | 15:52
Jólasnjórinn er á Akureyri!!!
Kominn norður í sæluna undir því yfirskini að fara í orgeltíma til Eyþórs en er í raun að heimsækja allt frænkustóðið og fara á skíði (Eyþór ekki lesa þetta!). Svo er líka nauðsynlegt að rölta um bæinn og ég viðurkenni að debetkortið mitt hitnaði aðeins áðan, seinómor.
En að allt öðru, hvenær er eðlilegt að maður berji mann? Heyrði nefnilega um daginn frásögn manns sem var kýldur í klessu um hérumbil hábjartan dag inni á tiltölulega virðulegri stofnun fyrir framan helling af börnum og opinberum starfsmönnum, þetta fannst engum eðlilegt. En annar maður sem heyrði frásögnina sagði "ég hef nú verið laminn svona, en það var við eðlilegar aðstæður - það var á balli!"
En nú er ég farin að skemmta mér á skíðum, trallala!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
5.12.2007 | 16:19
Orsök og afleiðing?
Orsök: Aðeins of bissí helgi
Gekk á þrjú fjöll á laugardaginn (reyndar hvert öðru ómerkilegra), spændi um alla Heiðmörk á hjólaæfingu á sunnudagsmorgni og í ræktina á eftir, fór svo á jólatónleika að hlusta á Ágúst syngja og stjórnaði þar á eftir einum kvennakór á aðventukvöldi, svo kórstjórnartími á mánudagsmorgni og eftir það var kominn tími á að leggja sig en endaði samt í Kringlunni með mömmu að kaupa jólagjöf handa væntanlegu systurdótturinni og skar svo út laufabrauð allt kvöldið. Ágúst spurði mig hvort eitt fjall hefði ekki verið nóg, ég ætla ekki að svara þessu.
Afleiðing: Hausverkur dauðans
Lá allan þriðjudaginn heima með hausverk (nema þegar ég skrapp að spila með sama kvennakórnum á kvenfélagsfundi) og er enn þá volandi á miðvikudegi :(
En:
Fjallgöngurnar voru mjög skemmtilegar, hjólaæfingin var mjög skemmtileg, laufabrauðið er mjög gott. Sérstaklega með reyktum magál, mmm...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
29.11.2007 | 11:49
Er einhver að vandræðast með hillur?
Frú leigusali gerði sér lítið fyrir og innréttaði þvottahús á efri hæðinni og við fáum þvottahúsið og geymsluna fyrir okkur, júpsajei. Engar fleiri þvottahúsheimsóknir á ólíklegustu tímum. Ég er líka að fara í búðina á eftir að kaupa mér þvottavél á þvílíka e2-korts-tilboðinu, gott að ég sá það fyrir mánaðarmótin, er alveg að renna út.
En svo vantar mig líka hillu- og skápapláss, hef nú hent helling af hillum og skápum gegnum tíðina og vantar nú loksins sjálf að nota soleis, er einhver akkúrat að fara að losa sig við hillur?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
27.11.2007 | 20:01
Stuð á nóttunni
Komin heim í kotið, gott að sofa í rúminu sínu og dreyma fallega. Dreymdi m.a. í nótt að ég var að fara á árshátíð í rauðum kjól og ætlaði engan veginn að geta komist af stað því ég gat ekki ákveðið í hvaða skóm ég ætti að vera (þetta var EKKI martröð). Uppgötvaði m.a. fullt af skóm í skápnum sem ég hafði keypt á útsölu nýlega en verið búin að steingleyma. Alls konar æðislegir skór, rauðir skór með demöntum, silfurskór, mmm....
Dreymdi líka að ég var að sigla með Norrænu, en eins og allir vita er hún í raun risastórt tankskip, og hvað skyldi vera í tanknum annað en súpan sem farþegarnir éta á leiðinni. Súpan í þessari ferð var svona köld mexíkósk grænmetissúpa, mjög góð (hef samt aldrei smakkað svoleiðis). Reyndi mikið að rifja upp hvernig súpa hefði verið þegar Gradualekórinn sigldi með Norrænu árið 1996.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
21.11.2007 | 21:10
Hreiðurgerð í Muggensturm
Elín stóra systir er alveg að springa úr óléttu og getur ekki ákveðið hvort hún á að fæða barnið strax og hafa það grenjandi yfir sér eða bíða þar til það á að koma rétt fyrir jól. Eiginlega má hún ekki vera að því að fæða það strax því það er svo margt sem hún þarf að gera fyrst, en sem betur fer er ég í heimsókn til að hjálpa henni að baka jólasmákökurnar (og borða þær) og gera ýmislegt fleira ótrúlega gagnlegt. Nú til dæmis fórum við í búðina í Karlsruhe og Elín keypti sér pils sem nær utan um bæði hana og barnið í maganum, ég þurfti ekki alveg eins stór föt.
Síðan á Hansi stóri bróðir Ágústar (ha á Ágúst stóran bróður?) fertugsafmæli um helgina og þá mætir Ágúst með foreldra sína til landsins, Hallveig eldri litla systirin kemur frá Belgíu en þjófstartar aðeins með því að koma fyrst til Karlsruhe að heimsækja Bjargeyju vinkonu allra (þ.ám. Elínar og Ágústar og mína og Hallveigar) og við ætlum einmitt að hittast allar kellurnar á morgun fimmtudag. Svo verðum við Hallveig samfó með lestinni á flugvöllinn á föstudaginn að hitta Ágúst og tm&pm og brunum á bílaleigubíl þaðan til Hansa, heví fjölskylduferð omg.
Nú og þess má til gamans geta að Selma er langmesta krúttið, en það eru allir sammála um að hún sé krúttlegri á morgnana. Ein kenningin er sú að þá er svo langt síðan hún var síðast óþekk að það séu allir búnir að gleyma því.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.11.2007 | 21:29
Lokahnykkurinn á lítillætisleysinu
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
12.11.2007 | 17:45
Vöfflur vs. pönnukökur
Hef lengi haft mikið dálæti á vöfflum og vöfflubakstri. Mamma gaf mér forláta vöfflujárn fyrir nokkrum árum og eftir smávægilega byrjunarörðugleika náði ég frábærum tökum á vöfflugerðarlistinni og snara fram dýrindis vöfflum við ýmis tækifæri. Draumurinn um að færa mig upp á skaftið og reyna mig við pönnukökubakstur hefur þó lengi blundað í mér, en sakir skorts á pönnukökupönnuleysi (eða soleis) hefur lítið gerst í þeim efnum. En viti menn, Elín stóra sys sendi mig heim með pönnukökupönnuna sína frá Muggensturm því hún getur ekki notaða hana á fansý smansý spansuðueldavélinni sinni. Elín hefur lengi verið þekkt fyrir að vera snyrtileg með afbrigðum og einhvern veginn dettur mér í hug Soffía barnapía þeirra Jóns Odds og Jóns Bjarna í hug (sem hreinsaði vandlega allt vaxið af fínu kertastjakaflöskunni stóru systurinnar) þegar ég horfi á stífbónaða pönnukökupönnuna hennar Elínar, en eins og allir vita þá á aldrei að þrífa pönnukökupönnur.
Og svo fór ég að baka í gær, jeminn hvað það gekk skelfilega. Ágúst sat spenntur með diskinn sinn og beið eftir að moka rjóma og sultu á fallega kringlótta mátulega bakaða þunna og lekkera pönnuköku en þannig fór það ekki, onei. Og svo á ég ekki einu sinni pönnukökuspaða, það jók enn á dísasterinn. Hjaaaaaáááálp. Ógn og skelfing. Að lokum dró ég bara fram vöfflujárnið, þykkti deigið aðeins og gömlu góðu vöfflurnar glöddu bæði augu og bragðlauka.
Og talandi um vöfflur, hvaða erkigerpi fann upp vöfflujárn með 5 laufum? Það eiga að vera 4 lauf og hana nú. Þetta veit móðir mín og var heillengi að finna rétta vöfflujárnið mitt. Það er líka ástæðan fyrir því að ég hafði ekki tímt að kaupa mér vöfflujárn sjálf, því 4-laufa-vöfflujárnin eru undantekningarlaust miklu vandaðri (og dýrari) en 5-laufa-plebbavöfflujárnin, enda alvöru-tæki fyrir alvöru-fólk.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
10.11.2007 | 17:35
Allt í drasli
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)