Færsluflokkur: Bloggar

Fyrsti meðlimur í annarrar-kynslóðar-Djúsí fæddur!!

Arnbjörg (Djúsí nr. 3) og Víkingur (hennar tilvonandi eiginmaður sem er einmitt líka bróðir Halldóru)eignuðust stúlku í dag, hún ku vera dásamleg og allir í skýjunum Wizard

Þá er Halldóra orðin alsæl föðursystir og við Sigga og Lovísa að sjálfsögðu stoltar móðurdjúsísystur Grin  Ætli hún verði alt eða sópran?  En það er nú öruggt að hún er mjög fín.


Húsnæðismálin maður...

Það er allt að gerast með húsakaupin í Horsens, ég er búin að bóka flug til Danmerkur í næstu viku að rannsaka nokkur hús, og þar sem Ágúst kemst ekki með tek ég pabba með til ráðuneytis!

Heitasta húsið hjá okkur núna er ekki þriggja hæða höllin og er það aðallega komið til vegna leti.  Í fyrsta lagi nennum við ekki að hlaupa milli hæða, í öðru lagi nennum við ekki að þrífa þetta (a.m.k. ekki ég...) og í þriðja lagi nennum við ekki að vinna fyrir mismuninum á því og ódýrara húsi!

Í staðinn erum við núna að spögulera sterklega í ljómandi huggulegu 160m2 einbýlishúsi á einni hæð í dejligu rólegu úthverfi svona tiltölulega stutt frá spítalanum og skemmtilega nálægt ströndinni!

Ótrúlega flott heimkeyrsla, bílskúr fyrir öll hjólin mín og kerrurnar og attanívagnana á hjólin fyrir grislingana etc. (nei Ágúst, ég er ekki viss um að þú fáir að geyma bílinn í bílskúrnum Wink)

560_00_large

Voða fín stofa þar sem má vel troða flygli, borðstofuborði og sófasetti (stofan heldur sko áfram lengra til hægri)

510_10_large

Og náttúrulega bara geeeeðbilaður gólfdúkur í eldhúsinu, en það er allavegana nógu stórt

515_08_large

Svo er fínasta svefnherbergi með sérbaði og 3 önnur herbergi + þvottahús.  Dandalagott?


Tíhí...

 Það er alvöru barn í maganum! W00t

Kynlegar kynjapælingar - 20 vikna sónar í dag!

Þegar almenningur fór að átta sig á annarleg ástandi mínu komu gjarnan sömu tvær spurningarnar:  "Hvenær ertu sett?" og "Ætliði að fá að vita?".  Það var auðvelt að svara fyrri spurningunni (1. júlí) en ég hafði bara ekkert spáð sérstaklega í hitt.  En nú er ég orðin svo sjóuð að ég búin að komast að því að það eru aldeilis endalaust sterkar skoðanir í gangi í sambandi við "að kíkja í pakkann", jiii.. hvað ég get orðið þreytt á annarra manna skoðunum stundum, þess vegna held ég úti bloggsíðu þar sem ég get nokkurn veginn einhliða básúnað mínar skoðanir og ef þið komið með athugasemdir sem ég kaupi ekki get ég alltaf eytt þeim mwahahaha Tounge

Allavegana, meðal pakkaopnunarmótraka (þetta er nýyrði á finnsku) er

  • það er svindl
  • það verður að vera eitthvað spennandi við þetta
  • man ekki meir

En þar sem þetta er nú okkar eigið barn sem við pökkuðum sjálf inn hefði ég nú haldið að við megum kíkja þegar okkur sýnist!  Og nógu spennandi finnst mér að eiga barn, þetta er ekkert sérstaklega hversdagslegt hjá okkur.  Svo er líka hæpið að Ágúst komist hjá því að sjá hvaða tegund þetta er þegar hann horfir á skjáinn, hann er nú alveg sæmilega vanur að lesa úr sónarmyndum!  Verst ef kemur í ljós að þetta sé bara Dani...

En svo er hér mikilvæg persónuleg reynslusaga.  Lára (28) segir frá:  Ég er ekkert sérstaklega vön að sjá ferlið "ólétta-barn" "ólétta-barn" eiga sér stað, og þegar Elín stórasys varð ólétt fyrst þá var þetta raunverulega fyrsta óléttan tiltölulega nálægt mér.  Mér fannst þetta náttúrulega stórfurðulegt, óléttan nógu furðuleg ein sér og líka skemmtilega ólíklegt að hafa Elínu ólétta.  Svo spratt bara á henni bumba þarna í útlandinu, allt í lagi með það, en ég tengdi það ekkert sérstaklega við að það kæmi barn út úr þessu (sbr. ferlið "ólétta-barn").  En svo kom vendipunktur (daddaramm), Elín fór í sónar og tilkynnti að það væri lítið stelpuskinn í maganum.  Þá helltist alvara lífsins yfir mig og ég áttaði mig á því að það væri alvöru-barn í belgnum! Ekki bara einhvers konar óljóst "tilvonandi-barn" fyrirbæri, heldur alvöru stelpa. Já svona er ég einföld sál, hafði ekki verið búin að fatta að þetta væri alvöru... Shocking

Mér finnst barnið í maganum á mér ekki heldur neitt sérstaklega raunverulegt, og það þó það sé farið að dangla í mig daginn út og inn (aðallega í þvagblöðruna) og ég hafi lesið alla mína fósturfræði og viti nákvæmlega hvað er að gerast.  Þess vegna bíð ég spennt eftir að fá vitrun í dag kl. 13 þegar botninn á barninu verður skoðaður, þá kemur í ljós að þetta sé ekki bara einhver óljós tegund af verðandi barni heldur verður þetta annaðhvort alvöru-stelpa eða alvöru-strákur.  Það er auðvitað nokk sama hvort það er, foreldrarnir elska það alveg jafn mikið og allt það, ég vil bara komast að því að það sé annaðhvort!

Svo er tengdamamma líka farin að brýna prjónana hressilega og þarf að fara að spyrna í með bleikt eða blátt...


Einmitt

Gelgjan

1. apríl!!!!

Danskurinn er snemma í því að undirbúa aprílgabbið í ár, þeir gerðu sér lítið fyrir og tóku Ágúst inn í framhaldsnám í kvensjúkdómafræði í Horsens á Jótlandi og þar á hann að byrja 1. apríl, við trúum því allavegana þar til annað kemur í ljós! Whistling

Við erum búin að vera í samfelldu sjokki síðan á mánudag þegar fréttirnar komu, en dagurinn byrjaði einmitt á því að ég fletti fasteignablaðinu í kvefpestar-hálbólgu-leti-aumingjaskap mínum á Akureyri og sá auglýst þetta fína hús í Odense á fínu verði.  Ég hringdi í Ágúst og sagði honum að flott hús kostuðu ekkert svo mikið þarna úti, ættum að geta fundið okkur prýðilegt hús þegar þar að kæmi.  Svo hringir hann seinna um daginn hálf-orðlaus og segir mér að kaupa húsið, hann sé kominn með stöðu!

Staðan er reyndar ekki alveg kyrr á sama stað, fyrst er 1 1/2 ár í Horsens, svo 1 1/2 ár í Odense (100km á milli) og svo aftur til Horsens í óákveðinn tíma, jafnvel nokkur ár.  Eftir miklar pælingar um hvar væri best að búa ákváðum við að finna bara hús í Horsens og sjá svo til hvað við gerum þegar drengurinn fer að vinna í Odense.

Ég hef síðan staðið mig mjög vel í húsnæðisleit og er komin með draumahúsið rétt hjá spítalanum, þriggja hæða einbýlishús með MÖRGUM GESTAHERBERGJUM!!! (sem fyllast kannski strax af börnum, þið verðið að vera fljót að koma í heimsókn...).  Erum að vinna í því í fúlustu alvöru að kaupa hús sem fyrst, þetta er alveg rosalegt.  Já og risa-einbýlishús kostar sama og meðal-merkileg íbúð í Reykjavík!!! W00t

Sem stendur er planið þannig að Ágúst fari út á einhverjum skynsamlegum tíma, en fyrst þarf hann að láta hendur standa fram úr ermum og klára einleiksprófið á orgel með svaka tónleikum!  Hann ætlar að drífa í því að taka út sumarfrí fljótlega og einbeita sér að orgelinu.  Ég verð áfram heima til að byrja með og klára mína plikt í Grafarvogskirkju o.fl. (já og vinn mér inn peninga áfram, ekki geri ég það í Horsens), mæti bara út til að segja Ágústi hvar húsgögnin eiga að vera og læt hann svo sjá um rest hehe.  Síðan færi ég út seinnipartinn í maí (á að geta flogið vandræðalaust út maí) og er þá bara föst úti þar til unginn fæðist 1. júlí kl. 15:03 (svona sirka), eftir það vitum við ekkert hvað gerist, ef Ágúst fær sæmilegt orlof komum við heim í smátíma en annars verður bara allt að koma í ljós...

Það þýðir allavegana lítið að ég sitji heima á Íslandi og fæði meðan Ágúst er úti því ef ég er snögg að hlutunum gæti hann hreinlega misst af fjörinu, hins vegar þarf hann ekki einu sinni að koma heim úr vinnunni ef mér liggur á úti í Horsens Tounge

Hér er svo Horsens, aðalpleisið í Danmörku, þarna fyrir neðan Árósa.

untitled

 


Ættgeng græðgi?

Það bendir allt til þess að við Ágúst eignumst barn með góða matarlyst.  Móðirin gefur ekkert eftir þessa dagana.  Sat í kaffi hjá Óskari og mokaði í mig kleinum og ostum í gær og sagði honum pönnukökugræðgissöguna þegar Dedda hringdi og spurði hvort ég vildi ekki mæta í bollukaffi, ég hélt það nú og sagði henni að ég myndi að sjálfsögðu ekki segja henni að ég hefði verið á fullu í kleinunum, og að sama skapi myndi ég auðvitað ekki segja Óskari að ég væri á leið í næstu át-törn mwahaha W00t og bollurnar voru sko þrusugóðar...

Ágúst þurfti svo líka að borða fyrir tvo sunnan heiða, hann mætti sem fulltrúi okkar hjóna í mat til mömmu að heilsa upp á Elínu og dætrakrúttin, þar voru bollur í eftirmat og ég er stolt af frammistöðu míns manns!

Annars er ég aðallega að drepast úr aumingjaskap núna, öðru nafni hálsbólgu, og í staðinn fyrir að gera gagn lagðist ég upp í sófa hjá Deddu þar sem finnst ákveðinn heimilis-staðalbúnaður sem þekkist ekki á mínu heimili.  Aukaverkanirnar af þessum staðalbúnaði eru 4 fjarstýringar og ég veit aldrei hvað er hvað - sjónvarp, vídjó, dvd, sjónvarpsflakkari, e-r afruglari.  Svo eru líka 2 símar til að rugla mig endanlega.  Fann Grey's Anatomy á flakkaranum, sjáum til hvernig 1. þáttur virkar á mig, hvort ég kem suður á  miðvikudaginn eða ekki.

Og P.S. borðaði 2 bollur í morgunmat áður en ég tók til við súrmjólkina, mmm...

 


Alldaf á Agureyri

Ég gleymi stundum að reikna með þenslunni um miðbikið, sérstaklega þegar ég pakka niður náttfötum fyrir Akureyrarferðir.  Síðast kippti ég með í hugsunarleysi náttbuxum sem hafa alltaf verið í nettari kantinum, eru með klauf og tölu og ég fór næstum því að grenja úr hlátri þegar ég reyndi að ná þeim utan um mig og hneppa.  Núna er ég aftur komin norður og passaði að finna brækur sem duga, en fór í staðinn að hlæja þegar ég fór í treyjuna því hún náði ekki niður á brækurnar, ótrúlega svöl með bert á milli Cool

Verð núna í heila 6 daga, kom í gærmorgun og spilaði í helgistund í hádeginu, sat síðan inni á skrifstofu með lappirnar uppi á skrifborðinu hans Eyþórs að bora í nefið þegar átti að fara að aflýsa barnakórsæfingum á síðustu stundu vegna veikinda.  Ég kalla nú ekki allt ömmu mína eftir að hafa dílað við drengjakór Langholtskirkju og sendi grislingana auðvitað ekki aftur heim í stórhríð heldur æfði bara í tætlur með heraga hnéhnéhné.  2 barnakórar takk fyrir, var hálffegin þegar þriðji kórinn birtist að það fylgdi honum annar kórstjóri...

Ingvar Deddumaður skaust þá og náði í mig og bakaði oní mig pönnukökur við svakalega góðar undirtektir, ég held að ég hafi borðað ca. 57 pönnukökur með sykri (passaði að fá mér bara eina brauðsneið á undan því ég var enn hálfsödd eftir hádegismatinn, eða þannig?).  Ingvar missti út úr sér til við frúna í símann að hann hefði bakað, hún var að keyra í stórhríð heim úr Þistilfirði og engdist um af pönnukökutilhlökkun alla leið, en svo var barasta gesturinn búinn að éta þær allar, úbbs... Shocking


Meira um græna súbarúa

Kom út úr ræktinni, stakk lyklinum í skrána á græna súbarúnum, gekk illa að opna, helv.. frost (af hverju er samt slabb á stæðinu?), opnast, næ ekki lyklinum úr, best að ná í lásaspreyið inn í bíl, af hverju er kókómjólkin í aftursætinu en ekki framsætinu? Af hverju er áklæðið svona dökkt? Amma, af hverju ertu með svona stóran munn?

Þjóðsagan um að maður geti opnað annan gamlan bíl af sömu tegund með sama lykli er semsagt sönn.  Minn bíll var næsti við hliðiná.  Hefði kannski átt að taka þennan, hann var óbeyglaður.

P.S. tryggingarnar ætla sko ekki að borga neitt fyrir viðgerðina á bílnum og það kostar nokkur bílverð að laga hann svo hann verður bara svona beyglaður og fínn í bili, vona að það rústi ekki sjálfsmyndinni (minni).


Ferð til fjár?

Minn kæri súbbarú, sem státar einmitt af tveimur lyklum, státar einnig af tveimur hressilega beygluðum hornum.  Tilraun Ágústar til að taka fram úr rútu á Hellu fór algjörlega út um þúfur þegar kom í ljós að rútan keyrði svona hægt af því að hún var að beygja til vinstri.  Fyrst lamdist hægra framhorn í síðuna á rútunni, svo hægra afturhorn.  En við vorum á lítilli ferð (þetta gerðist nógu hægt til að ég gat bölvað mjög mikið áður en við skullum saman) og enginn meiddist nema súbbinn.

En við vorum einmitt á heimleið úr "sumarbústaðarferð".  Tveir vankantar á sumarbústaðarferðinni, annars vegar er "sumarbústaðurinn" eiginlega bara smá kofi með borði og stólum, hins vegar hugkvæmdist ónefndum eiginmanni ekki að taka með lykil (og varalykillinn undir skúrnum lööööngu fokinn út í veður og vind, og já Ágúst átti að sjá um lykilinn því ferðin var að hans frumkvæði, ég fylgdi bara með).  Já og svo urðum við líka blaut í lappirnar af því að labba að bústaðnum af því að vegurinn var ófær og nokkrir lækir á leiðinni...

Áskil mér rétt til að vera grömpí.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband