Færsluflokkur: Bloggar
7.3.2008 | 08:44
Uuu.. eru þeir að grínast?
Af mbl.is:
"Hjá netversluninni nammi.is hafa menn þróað aðferðina við að pakka inn páskaeggjum þannig að þau komist óbrotin til viðskiptavina erlendis"
Já og hvað haldiði, þeir pakka þeim í búbbluplast og dagblöð og oní kassa, þeir hefðu kannski bara átt að mæta á námskeið á Sjafnargötunni, "þróa aðferð" minn fagri afturendi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.3.2008 | 19:47
Hver þarf sjónvarp?!?!?!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
2.3.2008 | 18:40
Smá misskilningur
Það er einhver í maganum á mér sem heldur að þvagblaðran sé trampólín.
En svo fá Halldóra og Auður hrós dagsins fyrir að koma og pakka (næstum því) öllu ópakkanlega dótinu í stofunni, fullt af fílum og styttum og soleis, púff. Samt eftir nokkrir hræðilega erfiðir hlutir i stuen eins og gíraffinn Viktor (1.6m), tælenska daman (1.5m), stóri fíllinn (ekki nema 0.4m á herðakamb en svo er raninn beint upp í loft) og böns af málverkum. Held svo að ég reyni næst að klára að tæma skrifstofuna svo sé hægt að byrja að skrúfa í sundur fataskápana. Eða fari að pakka í geymslunni. Eða fari að pakka í eldhúsinu. Eða bara panikeri, það líka einn möguleiki, en kannski ekki sá skynsamlegasti svona þegar ég hugsa málið...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
1.3.2008 | 18:31
Hrós dagsins
Fær Ólöf sem kom og mooookaði kristal og postulíni oní kassa með aðstoð ca. 30 m af búbbluplasti (og ég er ekki einu sinni að ýkja með búbbluplasti, er með kvittun upp á það). Hún fékk líka fullt af konfekti og súkkulaði og sörum, já og líka hrökkbrauð með kindakæfu frá tengdapabba, þið sjáið að það er ekki amalegt að koma í pökkunarteiti á Sjafnargötunni!
Ég er aðeins bjartsýnni núna á að takist að pakka öllu, er allavegana búin að pakka meirihlutanum af bókunum og öllum kri&pos-skápnum + slatta af kristalsvösum og dótaríi, þvílíkt og annað eins sem við eigum af fínum glösum og diskum, allir að mæta í matarboð í Lindeparken!
Þá er bara eftir restin af stofunni (ýmislegt smádót og svo öll dýrin og hljóðfærin), góssið í skápunum í skrifstofunni (m.a. fullt af fínerís-erfðagóssi og svo bara ahahalllt mögulegt), allt eldhúsið, baðherbergið, geymslan, útidótið, hjóladótið, íþróttadótið... Æ nú er ég aftur hætt að vera bjartsýn iss hef nú alveg 10 daga...
En að allt öðru, veit einhver á hvaða vef er best að auglýsa til sölu teppi/risamottur úr Barmahlíðinni fyrir Elínu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
1.3.2008 | 13:40
Á einhver digital vídjóvél
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
28.2.2008 | 20:13
Omg ég þarf að pakka!!!! Hjaaaaaááááállllllp!!!!!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
26.2.2008 | 17:51
Lindeparken 3, 8700 Horsens
Jájá ég er sem sagt alveg að verða stoltur húseigandi, Ágústi finnst reynar að það stefni í að ég verði einmitt svo svakalega stoltur húseigandi að það sé fínt að hann hreiðri bara um sig í leisíboj úti í útigeymslu hehe. Verið að ganga frá öllum pappírum og smáatriðum eins og greiðslu (ahemm) en þetta er allavegana allt að gerast.
En hér kemur skýrslan um húsakaupaferðina og húsið:
Fór til Danmerkur með pabba með mér til að skoða 4 hús og kannski það 5. ef ég nennti því. Í stuttu máli þá endaði ég á því að kaupa 5. húsið sem ég rétt nennti að hafa fyrir að skoða, og segi bara engin furða að það hafi ekki verið löngu selt því það var svo ömurlega kynnt á netinu að það notla nennti ekki nokkur maður að skoða það! Ég hafði það með á listanum bara af því að það var svo fáránlega vel staðsett rétt hjá spítalanum og tiltölulega stutt frá miðbænum og öllu öðru, er eiginlega nákvæmlega eins staðsett og Sjafnargatan hvað það varðar!
Merkilegast með húsaskoðunina er hvernig húsin breytast milli 1. og 2. skoðunar, tveimur húsunum var bara ekki boðið upp á 2. skoðun en þrjú héngu enn þá inni, þar af var Lindeparken eina húsið sem batnaði milli skoðana. T.d. eyðilagðist parketið og veggirnir í húsinu með fínu innkeyrslunni sem ég bloggaði um milli skoðana!
En þá er komið að Lindeparken (Lára í Lindeparken hljómar bara vel, stuðlar skemmtilega). 150m2 týpískt múrsteinshús á 1 hæð með bílskýli og bílskúr. Hér er innkeyrslan, eldhúsdyrnar lengst til vinstri og nokkrir gluggar á eldhúsinu, ég og skiltið um að húsið sé til sölu, þarf ekkert svoleiðis lengur, aðaldyrnar á húsinu, bílskýlið og útigeymslan er inn af bílskýlinu.
Það var reyndar ekki alveg svona gott veður þegar við skoðuðum húsið (þetta er mynd af netinu), lengst til vinstri svefnherbergi og barnaherbergi, svo skaga skrifstofan og stofan lengra fram.
Og garðurinn er bara dejlig, m.a.s. í febrúar (tengdapabbi spurði hvort þetta væri gerfigras, fannst liturinn eitthvað undarlegur svona um miðjan vetur). Grislingurinn getur skottast þarna á grasflötinni og rúllar ekki burt því Danmörk er marflöt mwahahaha.
En innvolsið er nú kannski aðalmálið. Gasalega lekker forstofa með náttúrusteini blabla og fatahengi og nógu plássi fyrir tvíburavagn ef ég fylgi fjölskylduhefðinni (nr. 3 og 4 eru tvíburar, það erfist frá ömmu).
Úr forstofunni fínu er svo gengið til hægri inn í svefnálmu (jíha ég á nógu stórt hús til að það sé hægt að tala um álmur), þ.a. gangur með baðherbergi, barnaherbergi, svefnherbergi og litlu herbergi sem verður væntanlega fyllt af fataskápum og svo hægt að troða litlum svefnsófa og góðum gesti, næstum því ekki pláss fyrir fataskápa í svefnherberginu því rúmið okkar er stærst í heimi. Hér er barnaherbergið (þar verður líka svefnsófi ovkors)
Í hina áttina er svo miðrými/alrými eða hvað sem ég á að kalla það, gamla fólkið sem bjó í húsinu var bara með borðstofuborðið þar og hefur væntanlega borðað mjög snyrtilega með silfurhnífapörum þar undir kristalsljósakrónunni alla daga því það er ekkert borð í eldhúsinu, ég ætla hins vegar að tæta burt teppið og setja fínt eldhúsborð og skenk og skáp í stíl. Sést inn í eldhúsið til hægri, gestasnyrting enn þá lengra til hægri. Volvoinn fylgir ekki með.
Nú og þess má til gamans geta að vegna einstakra prútthæfileika okkar feðgina (og vegna þess að fasteignasalinn hafði talað af sér, við vissum aðeins of vel að afkomendurnir voru orðnir desperat að losna við húsið, þetta er sem sagt dánarbú, og merkilegt nokk var húsið ekkert að seljast því það kom enginn að skoða það af því það var svo illa kynnt etc.) þá var ekki nóg með að við prúttuðum verðið niður heldur nældum við í slatta af innbúinu í kaupbæti, ÉG Á ÞETTA BORÐSTOFUSETT OG KRISTALSLJÓSAKRÓNUNA!!!!!! Ógó flott antiksett mjög vel með farið, stækkanlegt borð, 6 stólar, skenkur og hliðarborð, jíha!
Og hér sést viðskiptafulltrúinn í ferðinni koma labbandi í þungum þönkum úr forstofunni, til vinstri er gengið inn í skrifstofuna/gestaherbergi (sem er reyndar stærsta herbergið í húsinu og var notuð sem hjónaherbergi en mér finnst staðsetningin ekki passa fyrir það). Ég á skenkinn til vinstri og Bang&Olufsen græjurnar á veggnum.
Eldhúsið er kannski minnst spennandi hlutinn af húsinu, langt og mjótt en með nýlegri snyrtilegri innréttingu og litlu þvottahúsi innaf. Sveitamaður einn benti reyndar á að þarna væri hægt að hafa ágætis flæðilínu t.d. í sláturgerð. Svo eru bakdyrnar mjög mikilvægar þegar kemur að því að grilla!
Svo er stofan risastór og löng með nógu plássi fyrir flygil, sófasett og borðstofusettið góða (og notla ljósakrónuna yfir) með suðurgluggum og dyrum út í garð. Dyrnar inn í miðrýmið þarna hægra megin.
Og í hina áttina. Já ég á skattholið þarna til vinstri. Og reyndar líka sófana og það allt, en þeir eru nú samt mis-lífvænlegir...
Erettekkibara doltið fínt!
Svo er nýjasta planið að hlaða í gáminn 11. eða 12. mars svo hann verði lentur í Horsens eftir páska þegar við förum út ca. 26. mars (já ég með til að segja hvernig allt á að vera...), best að fara að pakka!
Bloggar | Breytt s.d. kl. 18:40 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (8)
23.2.2008 | 21:35
Solgt!!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
21.2.2008 | 20:51
Húsakaup
Svo virðist sem eina þráðlausa netið í Horsens sé á McDonalds, búin að éta hamb&fr til að geta sent Ágústi myndir o.fl. um húsin sem hann á að búa í (þ.e. á bara að búa í einu þeirra, en fær samt myndir af nokkrum jú fatt). Ég er bara orðin geðbiluð af því að skoða hús og velja, reykspólandi í hausnum á mér núna stórt þvottahús, lítið þvottahús, engin forstofa, æðisleg forstofa, rétt við spítalann, rétt við naturpark, engin umferð, umferðarhávaði, stór stofa, lítil stofa, 1 hæð, 3 hæðir, flott eldhús, ljótt eldhús, etc. etc. etc. og út úr öllu þessu ætla ég að vera komin með eina niðurstöðu á morgun og gera tilboð, fk fk fk. Svo verð ég líka geðbiluð af því að sitja heilt kvöld og zippa myndir og dunda svo endalaust lengi við að senda þær gegnum krappí hamborgaranet. Og svo er ég m.a.s. með hamborgara. Er að senda 7. póstinn og þá er þetta komið, verst að Ágúst hefur eiginlega ekki tíma til að kíkja á þetta því hann er að æfa sig... (nær því vonandi áður en ég skrifa undir á morgun)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
17.2.2008 | 20:36
Ósamhverfa og annað ógeð
Þeir sem þekkja mig gjörla vita að ég er ósamhverf (vantar á mig mittið öðrum megin), en ég var að komast að því að miðpunktur minn, sjálfur nabbbblinnn er orðinn ósamhverfur.
Þeir sem fannst þetta of náin líkamleg lýsing verða bara að sætta sig við það. Eruði annars komin með myndina í hausinn? (Þessi setning getur verið ótrúlega skæð)
Svo lengi sem ég fer ekki að tala um tærnar á mér eða eitthvað álíka skelfilegt (t.d. finnst Elínu systur og Ágústi tærnar á mér voðalegar) þá getið þið bara hrósað happi.
Var ég búin að minnast á vörtuna á... nei spaug (spögelse på dansk erþaggi?).
Já og þeir sem þekkja Dagbjörtu og/eða lesa bloggið hennar vita nú alveg að í samanburði við hana eru mín skrif mjög pen, ég hef t.d. aldrei ritað (svo ég muni) um inngróin hár eða klósettferðir. En reyndar finnst mér samt suddalega gaman að lesa svoleiðis ógeðsblogg, kannski ég fari að stunda það? Er það litli ógeðsperrinn sem leynist í hverju sálartetri sem nýtur þess að velta sér upp úr slíku?
Kræst ég er hætt og farin, yfir og út.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)