Færsluflokkur: Bloggar
10.6.2008 | 15:37
Þetta er orðið gott, Ingibjörg...
Nú eru 37 vikur síðan þroskaferli belgverjans hófst sem hálfþroskað egg djúpt í innviðum móður sinnar (og 35 vikur síðan fullþroskað eggið hitti spennandi frumu af "hinu kyninu") og barnið telst opinberlega fullþroskað og fullburða (en þarf samt að bíða í viku til viðbótar svo pabbinn geti skroppið í brúðkaup á Íslandi næstu helgi).
Tengdamamma er á leiðinni til að fylgjast með framgangi mála, en lestin frá Köben er stopp af på grund af personpåkørsel og guð má vita hvenær frúin hefur það alla leið til Horsens, púff, hún er núna að bíða eftir rútum sem ferja liðið milli Fredericia og Vejle (fyrir þá sem eru klókir í danskri landafræði). Ég kætti ferðalanginn með því að tilkynna henni í símann að ég væri búin að setja upp grjónagraut og henda í brauðvélina þannig að hún verður a.m.k. sæmilega fóðruð þegar hún loksins kemur .
En stærstu fréttirnar af öllu eru kannski að það er ekki sól!! Ekkert sólbað í dag omg stórfurðulegt. Er í staðinn búin að æfa mig dálítið á píanóið (tríósónötu í d moll nánar tiltekið) og er búin að komast að því að ég lendi í stökustu vandræðum þegar vinstri höndin þarf að fara of langt upp til hægri, þá strandar allt á bumbunni . Væri líka mjög áhugavert að reyna að spila þetta á orgel, veit ekki hvort ég gæti haldið balans með yfirþyngd að framan, hendurnar í kross og lappirnar á fullu, mundi líklega detta á nefið og festa það milli cís og dís á 2. borði og búa samtímis til klösterhljóm á 1. borð með bumbunni...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
9.6.2008 | 14:00
Bölvaðir Baunarnir
Jájá við máttum sosum alveg vita það að við værum að flytja til stórreykingalands, en hefðum þó tæplega gert það nema ástandið hefði aðeins verið að skána síðustu árin, meira og minna bannað að reykja á veitingastöðum, verslunarmiðstöðvum og m.a.s. spítalanum. Hugarfarið hefur samt lítið breyst jafnvel þó að hennar hátign æðstistrompur sé hætt að reykja opinberlega, það er nebla ekki þannig að það sem sést ekki sé ekki til.
Og viti menn, komst að því í dag að danskinum finnst alveg sjálfsagt að setjast við hliðiná kasóléttu konunni í strætóskýlinu og kveikja í sígó, oj oj oj ojbarasta. M.a.s. allir Danirnir sem komu í strætóskýlið fengu sér að reykja, ég sá mitt ráð óvænna og flúði.
Mér finnst nógu ógeðslegt og dónalegt að reykja ofan í aðra svona almennt, en sérstaklega yfirgengilegt að pústa beint framan í ófrískar konur og hananú, fjandinn eigi ykkur reykingapakk sem getið ekki haldið ykkur frá mér.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
8.6.2008 | 15:59
Og ég missti af þessu!!!!
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/06/08/naktir_hjolreidamenn_vekja_athygli/
Ekki eins og ég passi í hjólafötin mín hvorteðer, hefði verið kjörið tækifæri fyrir mig að fara í hjólatúr.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
7.6.2008 | 18:10
Grænir fingur okkar hjóna og nýja klósettsetan
Verð að viðhalda nauðsynlegu upplýsingaflæði svo tengdó verði ekki stressuð
Það er ekki nóg með að við eigum hús, heldur eigum við líka garð. Hann þarf að snyrta. Grundvallarforsendan fyrir því að ég gæti gert eitthvað var uppfyllt í næstsíðustu búðarferð, þá keyptum við á mig mjög huggulega rauð- og bleikröndótta garðvinnuvettlinga. Líka grasklippur, greinaklippur o.fl. smotterí. Svo trylltist ég bara á klippunum áðan og komst að því að það er ljómandi skemmtilegt að gera sinn eigin garð fínan. Alls konar litlir sætir runnar sem þarf að snyrta (flestir í góðri hæð til að sitja á garðstól og klippa) og Ágúst fór á kostum við að vökva og klippa það sem var of hátt fyrir mig.
En ekkert af þessu gerðist fyrr en eftir búðarferðina sem við fórum í dag, vantaði enn þá ýmislegt mjög mikilvægt, t.d. klósettsetu með loki! Annað klósettið á heimilinu nebla loklaust (og setan líka svört og ljót), ekki nógu huggulegt. Þar að auki handklæðahengi rétt við hliðina á klóstinu svo handklæðið gæti sogið í sig hvern einasta dropa sem kynni að skvettast upp úr við niðursturtun, næs.
Annað bráðnauðsynlegt sem við keyptum er baðvog. Ég fékk reyndar bakþanka á heimleiðinni því ég var ekki viss um að ég vildi vita hvað fíllinn er þungur. En svo las ég leiðbeiningarnar og viti menn, "Gravide og pacemakerbrugere må ikke benytte vægten" haha ég slepp! (A.m.k. við fansý fitumælingarfídusinn sem sendir einhvern rafstraum gegnum mann, je ræt að það sé nógu merkilegur straumur til að breyta einhverju fyrir óléttar).
En nú er að verða kominn tími á ís til að kæla sig niður eftir erfiði dagsins bæjó.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
6.6.2008 | 20:42
Engar fréttir
Neibbs, ekkert sérstakt að gerast hérna. Nema hvað ég fór í bæinn bæði í dag og í gær, fáránlegur dugnaður. Fór í gær til að oprette en bank-konto nema hvað engum nema íslenskum nýfluttum aula dettur í hug að fara í banka á grundlovsdagen sem ku verða þjóðhátíðardagur Bauna. Kom að luktum dyrum og ákvað að þá væri best að nota þessar 17 DKR sem ég átti í veskinu (svona er að eiga engan bankareikning og enga peninga) til að kaupa mér ís, en halló! ísbúðirnar líka lokaðar! Labbaði hálfa göngugötuna með viðkomu á öllum bekkjunum til að hvíla mig og fór svo aftur heim í strætó, svaka stuð.
Næsta ferð gekk betur, bankadrengurinn varð allur uppveðraður þegar kom í ljós hver maðurinn minn var, mundi vel eftir ríka lækninum sem fékk voða fín kjör og auðvitað konan hans þá líka, gaf mér vatnsglas og allt. Ég var svo kát eftir þetta að ég keypti mér pulsu, íhugaði að útskýra fyrir pulsukonunni að pulsubrauðið væri allt of stutt m.v. pulsuna, en hafði lúmskan grun um að það mundi ekki skila neinu. Tölti svo alla göngugötuna eins og ekkert væri (með stoppum á næstum því hverjum einasta bekk, sumir voru uppteknir því bærinn var fullur af fólki). Þetta ku reyndar vera breiðasta göngugata í Danmörku eeeeen ekki sú lengsta. Lagði nú ekki á mig að fara inn í búðirnar nema eina skóbúð, garnbúð og barnabúð. Fór svo heim, alveg útkeyrð, sagan búin.
Fyrir utan hefðbundið sólbað þá er ég að dunda við að gera barnaherbergið klárt, veit samt ekki alveg klárt fyrir hvað því það er ekki eins og barnið sé að fara sofa þar eða gera yfirleitt eitthvað sérstakt þar á næstunni, en hvað um það, gerir ekkert til að hafa það doldið fínt (þó ekki sé nema af því að það mun þjóna hlutverki gestaherbergis til að byrja með, orðið mjög fínt fyrir þig tengdó!). Reyndum m.a.s. að setja saman barnarúmið (sem blessað barnið er einmitt ekki að fara að sofa í fyrr en hann vex upp úr vöggunni býst ég við) en ahemm, hvar eru skrúfurnar? Mundi óljóst eftir einhverjum skrúfum sem höfðu verið að þvælast í bílnum hjemme på Island og sá ljósið, mamma er að leita að þeim.
Gleymdi einu smáatriði úr símafarsanum (hann er kominn í lag a.m.k. svona yfirleitt, hringja í mig takk). Þegar Ágúst var mættur til landsins og fór að þreifa fyrir sér um síma og net talaði hann fyrst við Telia. Telia kannaðist bara ekkert við að væri hægt að fá hjá þeim einhvers konar pakka eins og eru agalega mikið í tízku á Íslandi með heimasíma, gemsa og neti. Já og ef hann vildi tala um internet þurfti hann að hringja annað og á öðrum tíma, já og heimasíma, nei þú getur ekki fengið heimasíma nema hafa verið með heimasíma í 3 mánuði. Ha hvernig á maður þá að geta fengið síma, augljóslega vantar mann ekki síma ef maður er með síma og hefur verið með hann í 3 mánuði. Jújú þarft bara að hafa verið með heimasíma hjá öðru fyrirtæki í 3 mánuði og getur svo skipt yfir í Telia. GEMMÉR EINA GÓÐA ÁSTÆÐU TIL AÐ FÁ SÉR HEIMASÍMA HJÁ TELIA!!!! Ruglað lið Danirnir. Ekki það að sæber-eitthvað-síminn okkar rokki neitt sérstaklega feitt heldur (þarf að endurræsa netmódemið af og til svo útlandasímtölin fúnkeri). Er gervihnattaöldin ekki mætt til Danmerkur??
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
4.6.2008 | 11:58
Staðreyndir um det danske liv
Ég hafði ekki gert mér grein fyrir að Danmörk væri hitabeltisland.
- Ég hef ekki farið í sokka síðan ég flutti (f. 2 vikum)
- Ég geng meira í bikini en "alvöru" fötum
- Ég sef við hliðina á sænginni, ekki undir henni
- Ég drekk marga lítra af vökva á dag og það gufar upp út um eyrun
- Þvotturinn þornar á 2 klukkutímum úti á snúru
- Ég er brún og sæt
En nokkrar aðeins furðulegri staðreyndir, það er altså ekki baun ódýrt að lifa í Danmörku.
- Stórt gosglas kostar 880 krónur á kaffihúsi (55 DKK)
- Rúllugardínurnar sem við ætlum að kaupa í svefnherbergið og barnaherbergið kosta 43% minna í rúmfó á Íslandi en í Danmörku (samtals 8.000 kr. minna)
- Grunnlaunin hans Ágústar eru mun lægri hér en heima, svo það er ekki hægt að skrifa allt á gengi krónunnar
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
3.6.2008 | 16:15
Já! Byrja strax!
Var búin að minnast á að stofan væri hentugur æfingastaður fyrir langskrið, og nú er ég búin að finna fyrstu keppnina fyrir ófædda skriðdýrið!
http://mbl.is/mm/folk/frettir/2008/06/02/skreid_5_metra_a_11_sekundum/
Þar fyrir utan styttist í að keppnisbarnið megi fara að fæðast, 36 vikur í dag, eftir viku er krílið fullburða og opinberlega velkomið í heiminn (ekki það að börnin séu ekki alltaf velkomin, en þau teljast "tilbúin" við 37 vikur). Samt ekki alveg því Ágúst skreppur til Íslands aðra helgi og kemur ekki heim fyrr en daginn fyirir 38 vikur, svo það er eiginlega betra að bíða þangað til...
Tengdamamma verður samt hérna á meðan að passa mig eeeeeen... (nó offens tengdó) ég vil samt frekar hafa Ágúst
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
2.6.2008 | 18:04
Verslunarferðin mikla
Best að byrja á því að tilkynna til að forðast allan misskilning að ég er hvorki lauslát né látlaus.
En snúum okkur að léttara hjali. Ég var svo ótrúlega spræk á laugardaginn (tiltölulega samdráttalaus) og enn þá þegar ég vaknaði á sunnudaginn að við Ágúst drifum okkur barasta á kaffihús niðrí bæ! Ekki bara það, heldur tókum við strætó, gat labbað alla leið út á stoppistöð . Sátum svo á rassinum í sólinni eins og menn gera á dönskum kaffihúsum, átum og Ágúst drakk öl en ég blávatn. Ég var að vísu með samdrætti frá ahemm einhverju öðru en himnaríki um kvöldið, en hvað um það, ákváðum samt að gera tilraun með verslunarferð næsta dag.
Í dag tölti ég því aftur út á stoppistöð eins og ekkert væri og tók barnavagnabúðar-express-strætóinn þangað sem Jysk (rúmfatalagerinn), Bilka (einhvers konar risa-Hagkaup), Önskebörn (barnavagnabúðin) o.fl. stórar búðir eru samankomnar. Við byrjuðum á því að ganga endanlega frá drossíukaupum fyrir afkomandann og velja í leiðinni skiptiborð. Svo fórum við í rallý í Bilka, Ágúst fékk lánaðan undir mig hjólastól og þá var sko hægt að gefa allt í botn, aðrir viðskiptavinir áttu fótum fjör að launa þar sem við geistumst um gangana, sérstaklega eftir að ég var komin með sturtuhaus með langri veggstöng í fangið og gleymdi alltaf að halda henni uppréttri...
Stungum svo samviskulaust af með hjólastólinn undir rassinum á mér og tókum rúmfó og verkfærabúðina (sem selur dandalagóða sólbekki) með sama trukki. Verst að þetta er ómerkilegasta rúmfatalagersbúð allra tíma, t.d. er rúmfó á Akureyri eins og heil verslunarmiðstöð miðað við þessa aumu kompu. Fundum samt þennan fína brjóstagjafapúða sem kostar ekki 8.000 eins og þeir gera í barnabúðunum heima, magnað hvað hægt er að láta allt kosta mikið þegar það er fyrir elsku litla krúttið...
Mikið stuð í sólbekkja-verkfærabúðinni. Þar eru vörurnar nebla bara afhentar yfir afgreiðsluborðið eftir vörunúmerum og löööööööng röð! Merkilegt að þetta fyrirkomulag skuli löngu vera aflagt annars staðar? Fyrst gengur maður um búðina, skoðar varninginn og skrifar niður vörunúmer og stykkjafjölda á þar til gert eyðublað, síðan fer maður í langa röð til að afhenda eyðublaðið og fá í staðinn afgreiðsluseðil, svo þarf að bíða aðra eilífð eftir að númerið manns sé kallað upp og þá fær maður loksins dótið í hendurnar, booooooring!
Strætóferðin heim var samt aðalstuðið, allavegana að komast inn og út úr vagninum með splunkunýja óhreinatauskörfu fulla af góssi, risa þvotta-þurrkgrind, samanbrotinn sólbekk, skiptidýnu, kústskaft... (ég hélt á kústskaftinu, mjög dugleg).
Og ekki dauð úr samdráttum enn þá, vona að ég haldi áfram að vera svona spræk, miklu skemmtilegra að geta aðeins hreyft sig úr stað og komist út! Ætla mér líka stóra hluti á morgun, labba niðrá spítala að hitta ljósmóður, það er í húsi sem er tiltölulega langt í burtu á spítalasvæðinu þannig að þetta er lengra en á stoppistöðina, púff. Væri eiginlega frekar vandræðalegt að þurfa að taka leigara þangað því það er of kjánalega stutt...
Húsið mitt stendur nú bara nr. tvö við götuna mína, og innkeyrslan á spítalasvæðið er beint á móti götunni. Leigubílstjórinn næði varla að setja gjaldmælinn af stað höhö. Annars er doldið óljóst hvernig ljósmóðurfundurinn gengur, því það er verið að funda um verkfallið núna (já hjúkkur o.fl. í verkfalli síðan man ekki hvenær) og ef það leysist á ég pantaðan tíma kl. 9, annars á ég bara að mæta einhvern tímann yfir daginn og draga númer! Tek þá bara með mér prjónana og einn Arnald (komin á Vetrarborgina, næstnýjustu, er ekki frá því að ég hafi óljósan grun um hvernig fer enda tiltölulega stutt síðan hún kom út).
Nú ef svo undarlega vill til að einhver óski eftir frekari smáatriðum úr leiðangri þessum þá þýðir ekkert að hringja í mig því heimasíminn tekur ekki við símtölum frá Íslandi. Og hið dásamlega símafyrirtæki cyber-eitthvað er ekki líklegt til að kippa því í liðinn í hvelli, samskipti Ágústar við það hafa allavegana gengið frekar treglega. Besti brandarinn er að hann sendi tölvupóst (í apríl) til að segja að síminn væri ekki kominn í gagnið þegar hann átti upphaflega að vera kominn í gagnið (þýddi ekkert að hringja í þá af því að það svaraði aldrei, og þar að auki var Ágúst skiljanlega ekki með neinn síma til að hringja úr (jú gemsann en sagan er betri hinsegin)). Endaði nú með því að heimasíminn fór að virka, en mööööörgum vikum síðar (bara fyrir nokkrum dögum) fékk hann svar við tölvupóstinum, símamaðurinn skrifaði að hann sæi að Ágúst hefði röflað yfir að síminn virkaði ekki, en hann sæi að það væri komið í lag, bæjó. Ágúst svaraði og sagði að varla hefðu þeir búist við að hann sæti bara á rassinum sambandslaus og biði vikum saman eftir að eitthvað gerðist, auðvitað hefði hann fundið aðra leið til koma þessum kálhöfðum í skilning um að hann vildi síma sem virkaði og látið kippa því í liðinn. Já og svarið kom med det samme - sjálfvirkt svar um að þeir hefðu móttekið póstinn, en það væri dálítið langur biðtími þessa dagana... spennandi hvort hann fái "mannlegt" svar fyrir jól?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.6.2008 | 21:41
Hvort er betra að vera lauslát eða látlaus?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)