Færsluflokkur: Bloggar
25.6.2008 | 18:31
Barn er oss fætt, sonur er oss gefinn
Ágúst Ísleifur Ágústsson fæddist í gærkvoldi 24. juni kl. 20.04 a donskum tima. Drengurinn er rumar 11 1/2 mork og 50 cm, foreldrunum finnst hann fullkomnasta barn sem faedst hefur her a jord.
Fyrstu merki um ad eitthvad væri ad gerast var undarlegur vatnsleki adfaranott manudags, akvadum ad kikja nidur a spitala seinnipartinn ad tjekka a malunum, oljost hvort eg væri i raun og veru ad missa vatnid eda ekki (altså hvort thetta væri ulfur ulfur) eda hvort barnid væri a leidinni. Fekk tima morguninn eftir (thridjudag) kl 8.30 til ad taka stoduna.
Vid forum sidan ad sofa i rolegheitum, logdumst upp i rum, budum hvort odru goda nott, svo sagdi Agust eitthvad sem var bara pinulitid fyndid og eg svaradi "heh", tha kom gusan! Ekki alveg eins og i biomyndunum samt en adeins i attina. Gerdi svo adra tilraun til ad fara ad sofa 2 timum sidar, gekk illa ad sofna, akvad ad draga nu djupt andann, slaka a og sofna barasta. Andadi djupt inn - og tha kom naesta gusa... Endadi med ad eg svaf litid um nottina, for lika ad fa sma verki med minum hefdbundnu samdrattum.
Maettum svo a spitalann eins og til stod um morguninn, var tha komin med 1.5 i utvikkun og akvedid ad gefa mer leghalsmykjandi stil til ad hjalpa til (ma ekki dragast of lengi ad barnid faedist eftir ad vatnid fer vegna sykingarhaettu). Sidan atti eg bara ad liggja og slappa af, stod til ad reyna bara ad sofna en smidavinna a spitalanum og mavagarg kom i veg fyrir thad. Svo foru verkirnir bara ad aukast thangad til eg sa soma minn i ad haetta ad kalla thad samdraetti og skilgreina thetta sem hridir.
Agust fekk nog ad gera vid ad sinna konunni, nudda a mer bakid i hridunum og peppa mig upp fyrir framhaldid. Seinni partinn thegar meira fjor var farid ad færast i leikinn færdum vid okkur inn a fædingarstofu og fljotlega skellti eg mer i badkerid til ad na ad slaka vel a milli hridanna. Endadi tho med thvi ad eg var rekin upp ur thvi mer og barninu var liklega ordid fullheitt. Sidan gekk thetta bara sinn gang, eg kvartadi tooooluvert medan a hridunum stod (adallega inn i surefnisgrimu sem dempadi adeins ohljodin) en sem betur fer klarudust thær yfirleitt innan skikkanlegs tima.
Thegar var farid ad glitta i kollinn a drengnum skiptu Agust og ljosmodirin um stodu og pabbinn tok sjalfur a moti syninum sem skaust allur ut i einum vænum rembingi kl. 20.04 ad stadartima (eg var mjog fegin ad thad drost ekki fram yfir midnaetti thvi tha hefdi komid upp skilgreiningarvandamal hvada dag guttinn fæddist! tveggja tima mismunur milli landa er ekkert grin).
Strakurinn var ordinn dalitid threyttur eftir lokaatokin thannig ad hann var adeins "hristur i gang", sogid upp ur honum fosturvatn og hann nuddadur rækilega. Eftir thad var hann eins og nyr (enda var hann nyr) og kurdi hja foreldrum sinum til skiptis medan fylgjan fæddist og sidan voru tekin nokkur puntuspor i mig.
Agust Isleifur hefur nu litid gert sidan hann kom i heiminn nema ad sofa, en hefur adeins skodad umheiminn med fallegum dokkum augum og bragdad a broddinum hja modur sinni. Vid verdum afram a spitalanum thar til a morgun, forum ekki heim fyrr en brjostagjofin er komin i godan gir og svo er eg reyndar frekar luin eftir atokin, roddin er samt oll ad koma til (fæ kannski mænudeyfingu næst svona til ad spara sopranroddina, hefdi verid gaman ad hafa desibelmæli...)
Thar sem vid komumst ekki a netid gegnum eigin tolvu fyrr en vid komum heim tha verda myndir ad bida, en Isleifur litli er obbolitid likur pabba sinum, med fallegt raudbrunt har, tærnar fra modur sinni en storar og myndarlegar hendur fra pabbanum. Thad er ekki komid i ljos hvort eyrun verda samhverf (eru enn kramin eftir flutninginn).
(p.s. ef einhver er modgadur ad hafa ekki fengid sms um faedinguna tha er skyringin liklega su ad nokkur simanumer hja mer eru af einhverjum astaedum bara a islenska simakortinu og eg gleymdi ad tjekka hverja vantadi!)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (24)
23.6.2008 | 21:26
Dýraríkið
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
23.6.2008 | 14:20
Ég stend mig ekki
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
22.6.2008 | 20:14
Það er ekki sama jólakaka og jólakaka
Bakaði jólaköku í dag (m.ö.o. fimleikarnir í gær dugðu ekki til að barnið reyndi að flýja úr belgnum) nema hvað eftir snarvitlausri uppskrift. Borðaði fyrstu sneiðina og hringdi svo beint í mömmu að heimta "rétta" uppskrift. Ekki það að kakan sé neitt vond, hún er bara ekki eins og hún á að vera.
En svo er ekki sama jólakaka og enska jólakakan hans Ágústar. Yfirleitt eru enskar jólakökur agalega vondar með alls konar eiturbragði (kirsuber, marsipan, möndludropabragð) en óekki, ekki kakan hans Ágústar. Man ekkert hvernig honum datt fyrst í hug að baka þessa köku fyrir mörgum árum en baksturinn varð strax að órjúfanlegri hefð. Kannski ekki margir sem vita af því og hafa smakkað kökuna því okkur finnst hún svo guðdómlega ljúffeng að við tímum henni helst ekki ofaní óvita , bara þeir sem geta sýnt það og sannað að þeim finnist kakan yfirnáttúrulega góð fá bita...
Baksturinn fer fram 2 mánuðum fyrir jól, 2 risastórar kökur fullar af hnetum, ávöxtum, súkkati (með góðu bragði, ekki vondu) og súkkulaði af fínustu gerð. Síðan er kakan vökvuð með koníaki í lítravís (ýki aðeins, en samt..) fram að jólum og af hreinni illgirni og þrjósku tekst Ágústi að koma í veg fyrir að ég fái að smakka fyrr en jólin eru komin (tókst samt að væla út bita aðeins fyrr síðustu jól )
Stóra vandamálið með síðustu köku var reyndar óléttuhysterían, kakan hefur stundum orðið svo rammáfeng að að eftir eina sneið ei aki neinn (æ þetta rímar ekki). Ágúst brá því á það ráð til að vera sjálfum sér samkvæmur sem læknirinn á heimilinu að vökva aðra kökuna miklu minna svo verðandi barn kæmist óskaddað gegnum jólahátíðina.
Meðal-Daninn hefði nú ekki haft svona miklar áhyggjur, hér þykir alveg normalt að sulla í solitlum bjór og léttvíni, bara ekki neitt aaaallltof mikið. Þarf ekki að segja neitt um reykingarnar, en var samt að lesa í danskri fæðinga- og brjóstagjafabók að að það sé best að fá sér að reykja strax eftir brjóstagjöf frekar en á undan (eða á meðan??). Svo var líka tillaga um að setja reykingareglur á heimilinu, líka fyrir gesti, og láta ekki á sig fá þótt fólk hneykslist á því...
Er orðin mjög sleip í dönskum fæðingarorðaforða eftir að hafa dúndrast gegnum slatta af bókum og bæklingum, uppáhalds orðið mitt er "millikjöt", mellemködet, sem á íslensku útleggst spöng (sem er álíka skondið orð). Þeir sem vita ekki hvar spöngin er þurfa ábyggilega ekki á því að halda.
Svo kalla Danirnir sprellann í fúlustu alvöru "tissemand", mér finnst það alveg hreint dandalafyndið. Hélt að kannski notuðu þeir þetta bara sem krúttlegt hugtak yfir smáguttatyppi (í bókinni var verið að fjalla um umönnun smábarna, ekki hvernig viðkomandi smábarn varð til), en Ágúst fræddi mig á því að fullorðinstyppi hétu líka pissimenn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
21.6.2008 | 15:46
Hugleiðingar um belgvídd
Þar sem ég nálgast óðum "settan dag" krílisins (1. júlí) þá dettur mér ekki í hug að láta eins og ég hugsi um eitthvað annað en barnið í maganum, þannig fúnkerar einfaldlega (verðandi-) móðurheilinn. Og varla á það eftir að batna þegar afkomandinn er kominn í heiminn, ætli komist nokkuð annað að í hausnum á mér þá nema barn og slef og bleiur og grenj etc, prófið að tala við mig eftir svona ár ef þið viljið losna við kúkatalið (held ég, kannski verð ég fyrir varanlegum skaða).
En það er ekki bara barnið sem er milli tannana á fólki, líka bumban löngu áður en barnið mætir á svæðið. Ég hef gengið í gegnum marga bumbustærðarfasa og lengi vel fannst mér ég alltaf vera með kúlu í "vitlausri" stærð, fékk til skiptis athugasemdir um hvað hún væri stór eða lítil og dró náttúrulega magann inn og út eftir því til að falla betur í kramið
Síðan gerðist það að vatnið óx og óx og ég breyttist í fíl, þá komu tvíburaspurningarnar (ertu aaaalveg viss...) og fullyrðingar um reikningsskekkju, ég væri ábyggilega komin miklu lengra. Enda leit ég út fyrir að vera á leiðinni beint upp á fæðingardeild þegar ég var komin 7 mánuði. En þetta var allt blekking, belgverjann langaði bara í innanhússundlaug svo hann hefði nóg pláss og ég lét það eftir honum, danska ljósmóðirin sagði m.a.s. að það væri rigeligt med vand derinde. Síðan stækkaði kúlan ekki neitt meira! Belgvíddin er sú sama og fyrir mánuði og sést enginn munur á myndum! Barnið bara spratt og fyllir betur út í, rassinn skýst stundum langt út fyrir skynsamleg mörk og hné og iljar í allar áttir, en núna er bumban bara nett miðað við 9 mánuði
Boðskapurinn í sögunni: Það er ekki til neitt sem heitir rétt bumbustærð og hananú.
(Hvað varð annars af tánum á mér?)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
20.6.2008 | 07:50
Ofvirknin að mér sækir
Einhvern tímann hef ég heyrt sögur af konum sem byrja alltaf að mála 2 sólarhringum fyrir fæðingu eða skella sér í einhverjar álíka framkvæmdir sem henta ekki ófrískum. Ég vona að þetta sé almennur sannleikur því ég byrjaði í gær að príla upp á stól að festa upp rúllugardínur í svefnherbergið. Heilmikið mál satt best að segja, fyrst skrúfa niður brautina fyrir venjulegu gluggatjöldin (þarf að færa hana utar), setja upp festingarnar fyrir rúllugardínurnar (og laga þær til nokkrum sinnum því ég setti vitlausar festingar og á vitlausa staði etc, smá hafragrautur í hausnum), mæla svo og klippa gardínurnar og saga niður stangirnar, líma gardínurnar á stangirnar (ahemm hversu vel skyldi það hafa verið gert) og loksins smella draslinu í festingarnar. Þetta tók aaaaaallllllan daginn og helling af samdráttum huh (nema hvað það er besta mál því blessað barnið er ákaflega velkomið í heiminn).
Svo fórum við að sofa. Svo losnaði límingin á rúllugardínu nr. 1 og Ágúst lagaði það, svo sagði hann mér í morgun að líming á nr. 2 hefði líka losnað í nótt, þarf aaaaðeins að kíkja á þetta...
En allavegana á ég bara eftir að setja gluggatjaldabrautina upp og hengja nýþvegnu "venjulegu" tjöldin á sinn stað, þá verður orðið fínasta myrkur í svefnherberginu og hægt að kenna barninu mun á nóttu og degi. Merkilegt nokk þá er nefnilega ótrúlega bjart í Danmörku í júní, dimmir reyndar um svipað leyti og við förum að sofa, en birtir fáránlega og óþægilega snemma.
En ofvirknin náði ekki bara til stólaprílsins og skrúfjárnsins, mér fannst nefnilega nauðsynlegt að fara út að hjóla áðan þegar ég var búin með morgunmatinn! (sem var reyndar súkkulaðikaka og kókómalt, hrærivélin hefur greinilega slæm áhrif á annars leiðinlega heilsusamlegt mataræði mitt). Settist á mitt kæra fjallahjól, hjólaði endilanga götuna og til baka geðveikt góð. Maginn liggur reyndar aðeins niður á hnakknefið, lærin rekast í og stýrið mætti vera hærra, þyrfti eiginlega að vera á hollensku hjóli þar sem maður situr alveg uppréttur. En þetta get ég nú samt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
19.6.2008 | 06:59
Nýjasta heimilistækið og gestagangurinn
Núna erum við að tala um alvöru heimili með alvöru heimilistæki, hrærivélin er mætt!
Búið að standa til í mörg ár að fjárfesta í hrærivél en vegna almenns plássleysis hefur því verið frestað þar til nú. Kenwood Chef vél varð fyrir valinu (og að sjálfsögðu tókst mér að fá fínni týpu en ég borgaði fyrir, hagsýna húsmóðirin rokkar feitt að vanda) og var vígð með súkkulaðikökubakstri í gærkvöldi, mmm.... (er einmitt að moka í mig köku í morgunmat líka núna, samt búin að fá mér holla skammtinn af múslí og brauði á undan, engar áhyggjur).
Annars er það að frétta af heimilishaldinu að við vorum að senda tengdó af stað í lestinni til Hallveigar, 12 tíma lestarferð suður til Belgíu púff. En ætli hún sé ekki bara fegin að losna , búið að þræla henni þvílíkt út í hjólastólaakstri, innkaupum, saumaskap, prjónaskap, þvottum, strauningu (hún straujaði m.a.s. taubleiurnar en það var ekki mér að kenna
) etc. Vona að hún jafni sig fljótlega og þori að heimsækja okkur aftur...
Dagbjört læknastúlka gerði sér lítið fyrir og mætti líka í heimsókn á mánudaginn, var í Odense að heimsækja systur sína sem þar býr (og er nýbúinn að fæða lítinn fínan gutta) og skaust hingað og gisti eina nótt. Hún tók þátt í hjólastólarallinu og við örkuðum þrjár um allan bæ með tilheyrandi ískaupum o.fl. og bæði hún og tengdamamma stóðu sig býsna vel í fatakaupunum (gulljakkinn er bara gordjös), ég lét mér nægja að skoða hvað ég ætla að kaupa þegar ég passa aftur í eðlileg föt!
Þarna sést burðardýrið fyrir innkaupakonurnar bíða eftir strætó (búið að taka hrúguna ofan af mér svo þetta líti betur út), hvert fór annars sólin?
Svo náðist þessi fína mynd af mér að veifa mallanum framan í jordbærtorten.
Þrengslin í belgnum eru farin að há mér töluvert, t.d. komst ég að því í gærkvöldi að það er alls ekki pláss bæði fyrir barnið og tvær vel troðnar tortilla-kökur plús súkkulaðiköku, hélt að ég myndi í alvörunni springa æjæjæj. Af hverju lét ég mér ekki bara nægja eina tortilla eins og Ágúst og tengdamamma???? Ekki að spyrja að græðginni í þessum óléttu konum.
Fór nú til ljósmóðurinnar í gærmorgun og var sár og svekkt og stórhneyksluð þegar hún gaf mér tíma næst 2. júlí, ætla að vera lööööngu búin að fæða barn þá takk fyrir. Best að drífa mig út að hjóla til að það fari eitthvað að gerast...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
15.6.2008 | 18:52
Islandsrejsen hans Ágústar og spítalaævintýrið mitt
Ágúst flaug til Íslands á föstudagskvöldið til að mæta í brúðkaup Huldu og Óskars (Hulda vinkona Ágústar frá því fyrir ca. 25 árum) fyrir hönd okkar hjóna. Að sjálfsögðu var pilturinn ekki aðeins ráðinn sem veislugestur heldur líka organisti, en á laugardagsmorgni komst hann að því að brúðarmarsinn varð eftir í Danmörku. Yfirleitt er hundfúlt að spila eftir annarra manna lánsnótum svo eitthvað varð Ágúst að gera í málinu. Hvað var þá til ráða annað en að senda frúnni sms, biðja hana um að skreppa niðrá spítala og faxa. Svo komu langar leiðbeiningar sem innihéldu lykilorðið "hægri". Eftir að hafa reynt allar leiðir til hægri á spítalanum fór mig að gruna að hann hefði meint hitt hægri, en vissi samt eiginlega ekki hvern fj... hann meinti. Ekki hægt að ná í hann fyrr en eftir dúk og disk (á kóræfingu í Hallgrímskirkju) þegar ég náði loksins í kirkjuvörð sem reif hann út úr kórnum.
Þá hófst ævintýrið með Ágúst í símanum að lóðsa mig á réttan stað. Hann hafði auðvitað meint mjög eindregið vinstri þegar hann skrifaði til hægri, en ekki bara það heldur þýddi "inn ganginn" inn um pínulitlar dyr sem mér hefði aldrei dottið í hug að fara inn um af sjálfsdáðum. Síðan komu fleiri dyr og fleiri dyr eins og hjá Lísu í Undralandi þangað til ég kom að harðlæstum dyrum sem stóð á "lokað um helgar". Þá rifjaðist upp fyrir Ágústi að það væri laugardagur. Og best að snúa við. Nema hvað dyrnar læstar, en jú hægt að komast með talnakóða sem Ágúst kunni sem betur fer. En næstu dyr enn læstari og þar þurfti aðgangskort, hjaaaáálp ég var læst inni! (hafði mætt manni í harðlæstu dyrunum á leið inn um þær, hefði annars ekki komist svona langt inn í myrkviði spítalans, þetta er líklega spítalinn þar sem Nattevagten gerðist). En ég slapp út með aðstoð lyftu upp á næstu hæð hjúkket.
Ágúst kom mér inn á einhverja aðra deild þar sem ég fann voða elskulegar konur sem vildu alveg leyfa mér að faxa, en ovkors tókst það samt ekki þrátt fyrir ítrekaðar tímafrekar tilraunir og hin og þessi faxnúmer aaaaarrrrrrrg... En ég fæ allavegana plús fyrir viðleitni. Og ætla að kaupa skanna við fyrsta tækifæri, sakna skannans sem ég var með í láni vegna biskupsstofuvinnunnar mjööööög mikið!
Svo má þess til gamans geta að þegar ég mætti á spítalann sat nýbökuð móðir í spítalagalla fyrir utan (á rögfría områðinu) og svældi í sig retturnar með barnið í vagninum við hliðina á sér, og haldiði ekki að hún hafi enn setið þar að eitra fyrir krílinu þegar ég kom út klukkutíma síðar. Engir fordómar gagnvart reykfíklum, neeeeeeiiiii.....
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (3)
14.6.2008 | 12:21
Hmm..
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)