Fyrsta keppnisferðin!

Alla leið norður á Akureyri! Fjallahjólakeppni laugardag og götuhjól sunnudag, síðan ætlum við Haukur að hjóla eitthvað um óbyggðir, ég veit ekki hvort eða hvernig...

Hvernig ætli carbon-skósólar séu á bragðið?

Aaaarrg ég gerði ótrúlega heimskuleg mistök í keppninni í gær og missti af titlinum! Aldrei að vanmeta andstæðinginn...  Stelpa sem ég þekki lítið sleit sig frá hópnum á 2. hring (af 4) og ég hélt að hún myndi bara slíta sér út og við næðum henni fljótlega, hélt áfram að chilla með hinum stelpunum en svo kom bara í ljós að þær hjóluðu allt of hægt og þegar ég stakk þær af á 3. hring var það orðið of seint Frown hjólaði svo síðasta hringinn með krampa í lærinu og grábölvandi.

En hugsið ykkur hvað það hefði verið svekkjandi að vera búin að vinna báða götuhjólatitlana, þá hefði leiðin eiginlega bara getað legið niður á við eða í besta falli gæti ég staðið í stað Whistling

Ætli ég fari ekki bara að éta skóna mína núna, samt á mörkunum að ég tími því, þeir eru nefnilega svo hrikalega flottir og góðir.


Íslandsmeistari!!! Ég á bikar!!!

Í "tímatöku" 20 km á götuhjóli, svo er lengri "hópstart"keppni á sunnudaginn, gæti nælt mér í annan titil þá...

 (Var ég búin að minnast á að ég er ósigrandi á götuhjóli?)


Ooooooooooooooooooooooo........

......oooooooooooooooooooooooooo ég skíttapaði á miðvikudaginn, agalega svekkjandi! Kemur í ljós að það borgar sig að æfa, var að stíga á fjallahjólið í annað skiptið í sumar mwahaha.  Hjólaði eins og mörgæs, þurfti að hægja á mér fyrir allar "hættulegu" beygjurnar, rétt svo dreif upp brekkurnar móð og másandi, vantaði bara að ég hefði dottið, fengið blóðnasir, farið að skæla og pissað svo á mig...   Komst samt reyndar skammlaust í gegnum þrautabraut í skóginum í fyrsta skiptið í keppninni sjálfri, hafði ekki tekist það á æfingu!  Ógeðslega erfið braut og ef það segir eitthvað um hossinginn og líðanina í afturendanum þá seig hnakkurinn svo mikið að ég þurfti að stoppa og hysja hann upp...

Fjallahjól 07 1          Fjallahjól 07 2

Fjallahjól 07 3          Fjallahjól 07 4

Bryndís sem vann átti það hins vegar algjörlega skilið, búin að æfa fjallahjól hér um bil frá fæðingu og hjólaði eins og berserkur (ég rústaði henni samt í síðustu götuhjólakeppni...)


Mætt í borgarsollinn

Jahá, komin heim fyrir þó nokkrum dögum.  Gengur á ýmsu og gekk líka á ýmsu í síðustu ferð, omg hvað fólk getur verið með óraunhæfar væntingar um hálendisferð (bíddu nú við, af hverju eru ekki ferskir ávextir með morgunmatnum og salat með kvöldmatnum?) og reyndar endaði með því að það keyrði svo gjörsamlega um þverbak að ég sendi þær tvær fúlustu heim og bara allir kátir með það (nema reyndar Arinbjörn á Brekkulæk sem tók þær með sér heim með því skilyrði að þær færu beint suður...)

 Var að fá sendar nokkrar myndir (650 stk.) úr fyrstu ferðinni.  Ég fór á kostum við að flaka silung og ná upp þrýstingi eftir að vatnsleiðslan fylltist af lofti:

Island Trekking 2007 574Island Trekking 2007 534

Svo var alltaf skemmtilegt þegar menn stukku yfir Skammá með 'ahemm' dálítið misjöfnum árangri.  Það þarf að stökkva yfir 3 kvíslar og ég hef reyndar ekki tekið saman tölfræðina yfir hversu margir skór hafa blotnað...

Island Trekking 2007 522

En svo er það fyrsta Íslandsmeistaramótið í kvöld, fjallahjól við Rauðavatn, mjög skemmtileg en reyndar þrælerfið braut, þetta verður áhugavert...


Farin

í síðustu Arnarvatnsheiðargönguna.  Veðurspáin er nokkurn veginn svona næstu daga:

Mánudagur - sól. Þriðjudagur - sól. Miðvikudagur - sól. Fimmtudagur - sól...

Kem aftur 26. júlí.

P.S. er að borða súkkulaðiköku.


Forgangsröðin á hreinu

Kem heim eftir langa gönguferð.

1. Les Fréttablöð síðustu viku og borða súkkulaði

2. Vökva blómin

3. Fer gegnum tölvupóst og bloggsíður og borða súkkulaði

4. Fer á hjólaæfingu sem varð óvart tæpir 60 km

5. Kem heim og opna bjórinn

6. Hringi í skírnarbarnsmömmu fyrir sunnudaginn og brúðguma fyrir laugardaginn

7. Tek af mér hjálminn

8. Fæ mér meira súkkulaði


Arnarvatnsheiði rokkar

Komin aftur heim. Er að borða súkkulaði. Óska eftir meðætum.

Úff púff

Svei mér þá ef það er ekki bara býsna gaman að tölta um hálendið!  Kom aftur í bæinn á fimmtudaginn, keppti á fjallahjóli á föstudagskvöldið og vann ekki!!!! (það er samt bara af því að það sprakk hjá mér, tæknilega vann ég samt því það var enginn annar í kvennaflokki hrrgrump, fékk m.a.s. "þátttökumedalíu"), svo er messa í fyrramálið, skjótast austur að skoða ör-sumarbústaðinn sem Ágúst og tengdapabbi eru búnir að smíða eins og herforingjar og aftur af stað á mánudagsmorgun með þrettán þýska göngulinga...

Bæjó spæjó

Farin til Slóveníu með Graduale.  Fer svo beint að gæda þegar ég kem heim.  Allt of flókið að pakka fyrir tvennt í einu!

« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband