20.10.2008 | 07:17
Jón Prímus
Ja þvílíkt og annað eins fréttaleysi. Mér tókst m.a.s. að spila í messu síðustu helgi án þess að rausa um það. Spilaði í nokkur hundruð ára gamalli sveitakirkju í Ölstað þar sem á nafnspjaldi prestsins stendur "præst og maskinarbejder". Mikið fjör. Hrúga af forsöngvaraköllum á efri árum aftast hjá orgelinu. Safnaðarsöngurinn þvílíkur, ég var yfir mig bit þegar pupullinn hóf upp raust sína í fyrsta erindi fyrsta sálms, en presturinn var ekki jafnsáttur, greip fram í eftir þetta fyrsta erindi, húðskammaði liðið "kalliði þetta að syngja, eruði enn sofandi eða hvað?"
Síðan er Ágúst í íslenskri orgelnördaferð í Þýskalandi og mamma mætti til Horsens til að hafa ofan af fyrir okkur mæðginum á meðan, gengur prýðilega.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
16.10.2008 | 13:28
Labbakútur er myndaður í bak og fyrir
Ágúst Ísleifur chillar meðan Ágúst undirbýr tónleika:
Settist líka aðeins við orgelið með pabba:
Síns eigins þríburi (púff einn er nú alveg nóg):
Pabbi veitir harða samkeppni í finguráti, virðist fyrirhafnarminna hjá Ágústi Ísleifi, sem verður þó svekktur yfir samkeppninni.
Hallveig frænka kom með í "babysalmesang" í Klosterkirken (nafnið er ekki mjög lýsandi):
Jæja gott í bili, nóg eftir. Best að baka brauð oní mömmu sem situr sársvöng í lestinni á leið til Horsens, átti bara 50 danskar krónur í vasapeninga, aleigan...
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
15.10.2008 | 09:05
Heimsfrægðin að oss sækir
Jæja núna er Ágúst orðinn alþjóðlegur organisti, búinn að halda tónleika á erlendri grund! Og hvar annars staðar en í mekka orgeltónlistarinnar, Hrossanesi í Baunaveldi.
(smellið á myndina til að lesa textann)
En svona alveg grínlaust þá voru þetta þrusuflottir tónleikar, gengu mjög vel og fulltrúar Íslands geta vottað það, þ.e. ég, Hallveig og Erla Elín (sem er að sjálfsögðu einnig sérlegur fulltrúi Hallgrímskirkju...). Hamingjuóskir vel þegnar!
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (11)
13.10.2008 | 07:14
Nefnilega
Sýnum mjólkandi mæðrum stuðning
Huld Hafliðadóttir skrifar um brjóstagjöf ungbarna
Huld Hafliðadóttir Huld Hafliðadóttir skrifar um brjóstagjöf ungbarna: "Stuðningur við mjólkandi mæður frá upphafi til enda brjóstagjafar er undirstaða farsællar brjóstagjafar." Alþjóðlega brjóstagjafavikan er nú í fyrsta skipti formlega haldin hátíðleg á Íslandi. Þema vikunnar í ár er Stuðningur við móður: stefnum saman á toppinn og með þessu slagorði leitast skipuleggjendur brjóstagjafavikunnar og WABA (world alliance for breastfeeding action) eftir auknum stuðningi við mjólkandi mæður. Að umhverfi þeirra bjóði upp á að brjóstagjöf sé eina fæða ungbarna til sex mánaða aldurs og svo með fjölbreyttum og næringarríkum mat til tveggja ára aldurs og jafnvel lengur, eins og Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með.Hvers vegna brjóstagjöf?
Þegar dóttir mín fæddist, fyrir rúmum 9 mánuðum, vissi ég sama og ekkert um brjóstagjöf. Ég hafði jú ákveðið með sjálfri mér að hafa barnið á brjósti, en ástæðan var einfaldlega sú að mér virtist það svo mun þægilegra en hita pela með þurrmjólk. Áður en ég átti barnið hafði ég litla hugmynd um hversu mikilvæg móðurmjólkin er ungbarni fyrstu dagana, vikurnar, mánuðina, jafnvel árin. Ég vissi ekki að brjóstamjólk innihéldi um 300 efni (mótefni, ensím, hormón, auk vítamína og næringarefna) sniðin að þörfum ungbarnsins og alla þá næringu sem barnið þarf fyrstu 12 mánuðina (til viðmiðunar inniheldur þurrmjólk 30 af þessum efnum).Stuðningur og réttar upplýsingar
Þegar kom að því að leggja barnið á brjóst í fyrsta skipti var það bara alls ekki svo auðvelt! Hvað var um að vera? Af hverju byrjaði þessi litla vera ekki bara að sjúga eins og öll nýfædd börn áttu að gera? Hvers vegna hafði enginn látið mig vita að þetta yrði svona mikið bras? Hvers vegna hafði enginn sagt mér að þetta tæki svona á andlegu hliðina? Eða hafði einhver sagt mér það? Ég veit það ekki enn í dag og þó svo að einhver hefði sagt mér frá þessu öllu saman áður en barnið kom í heiminn hefði ég ekki skilið það. Einfaldlega vegna þess að ég gat ekki sett mig í spor nýbakaðrar móður, fullrar af nýjum tilfinningum og upplifunum, ásamt öllu því óöryggi sem fylgir því að hefja fyrstu brjóstagjöfina. Þess vegna tel ég stuðning frá upphafi og til loka brjóstagjafar mjög mikilvægan. Réttar upplýsingar skipta einnig sköpum. Í dag er vitað meira um brjóstagjöf heldur en fyrir 20 árum, en það virðist, því miður, ganga hægt að koma þeim upplýsingum áleiðis til þeirra sem þurfa þeirra með, þ.e.til nýbakaðra mæðra. Þeir sem næst standa vilja allt gera til að létta undir með nýju móðurinni. Henni eru gefin hin og þessi ráð, sem því miður eiga ekki alltaf við rök að styðjast og gætu auk þess átt lítið skylt við brjóstagjöf. Til dæmis má nefna hinar óteljandi fæðutegundir sem mjólkandi móðir ætti að forðast, til þess að barnið fái síður í magann. En það sem fæstir virðast vita er að það er í undantekningartilvikum sem mataræði móður hefur áhrif á það hvort barnið fái í magann eða ekki (og þá helst af völdum óþols og/eða ofnæmisvalda eins og kúamjólkur eða jafnvel fisks). Ungbörn fá oft svokallaða vindverki, sem eiga lítið skylt við lauk, kál, krydd eða annað sem móðirin gæti hafa borðað, þar sem fæðan sem hún innbyrðir er brotin niður í örsmáar einingar og aðeins valinn hluti af henni berst í móðurmjólkina. Það er því ekki á óöryggi móðurinnar bætandi að hún þurfi að tipla á tánum yfir því hvað hún megi eða megi ekki borða.Gamlar mýtur um brjóstagjöf
Hinar og þessar mýtur lifa því miður enn góðu lífi, þrátt fyrir bættar upplýsingar. Ein sú stærsta sem ég hef orðið vör við er á þá leið að næringarefni móðurmjólkurinnar hverfi eftir að barnið nær 6 mánaða aldri. Að mjólkin verði einfaldlega óþörf, jafnvel óholl og að tími sé kominn til að gefa eitthvað annað í staðinn. Eins og um sé að ræða einhverja töfrastund þegar barnið þarf ekki lengur á þeim næringar- og mótefnum að halda sem móðurmjólkin inniheldur. Að mjólk úr öðru, mun stærra og ólíku spendýri sé jafnvel betri kostur. Þetta gæti ekki verið fjær lagi. Við lifum á tímum upplýsinga og rannsóknir á brjóstamjólk hafa sýnt að næringargildi mjólkurinnar rýrnar ekki eftir því sem barnið eldist. Hins vegar breytist samsetning mjólkurinnar og aðlagast aldri barnsins. Meðallengd brjóstagjafar í heiminum er 4,2 ár, þrátt fyrir að við Vesturlandabúar drögum meðaltalið ansi langt niður með okkar fremur stuttu brjóstagjöfum, sem léttilega má rekja til nútímavæðingar og tímaleysis. Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO) mælir með brjóstagjöf einni og sér til 6 mánaða og brjóstagjöf með fjölbreyttri fæðu til 2ja ára aldurs eða lengur. Stuðningur samfélagsins alls við mjólkandi móður getur skipt sköpum, mjólkandi móðir sem fer út á vinnumarkað eftir barneignarleyfi á ekki að þurfa að hætta brjóstagjöf, mjólkandi móðir á ekki að þurfa að fara afsíðis til að gefa barni sínu bestu fæðu sem völ er á og mjólkandi móðir þarf hvorki á röngum og óviðeigandi upplýsingum né gagnrýni að halda. Sýnum mjólkandi mæðrum stuðning frá upphafi til enda. Með brjóstagjafakveðju.Höfundur er móðir og áhugamanneskja um brjóstagjöf.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (1)
10.10.2008 | 07:41
Ég á afmæli í dag
Svona voru afmælisveislurnar fínar í gamla daga, rjómaterta, ístertan hennar mömmu (fræg í hverfinu, allar aðrar mömmur þurftu að hringja í mömmu og fá uppskriftina þegar börnin heimtuðu svoleiðis í sína afmælisveislu), brauð með reyktum Másvatnssilungi.
Frá vinstri Guðrún Inga, Þóra Tómasdóttir, alsælt afmælisbarn, ekki alveg viss en gæti heitið Kristín, Una.
Á myndinni til hliðar er ég eldri og þroskaðri og brosi breitt í jólapilsinu sem mamma saumaði. Ofan frá: Jórunn, Herdís, Arnar frændi, Ásta Guðlaug, Lára Kristín frænka, Jóna sýnist mér hálf á bakvið, Kristín, Sonja, Erna, Rósa, ég og Guðrún Lilja.
Stefni á að bjóða öllum sem ég þekki í Horsens í afmælisköku á morgun, það verður aldeilis fjölmennt . Gott að Hallveig mætti með lestinni frá Belgíu í gærkvöldi til að fylla upp í veisluna...
Bloggar | Breytt s.d. kl. 07:43 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (12)
9.10.2008 | 07:45
Svarið við gátunni
7 (síns eigins) puttar, 4 hægri og 3 vinstri. Hafði ekki spáð í flóknari samsetningar með fingrum foreldranna. Hins vegar kemur hann auðveldlega upp í sig einu brjósti og einum litlum vísifingri, er býsna fljótur að lauma fingrinum ef mamman fylgist ekki með.
P.S. er aum í skrokknum eftir kellingaleikfimina, álíka neyðarlegt og að vera rúmliggjandi eftir morgunleikfimi með Halldóru Björns.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
8.10.2008 | 19:20
Ó hve létt er þitt skóhljóð
Lára litla lipurtá sveif um göturnar í Horsens fyrir klukkan 9 í morgun takk fyrir, skokkandi með hjólavagninn (það fylgdi nebla líka "nefhjól" til að breyta vagninum í hlaupavagn). Og hvað var ég að gera? Ég var á leiðinni í kjedddlingaleikfimi, gerði mér reyndar ekki alveg grein fyrir því fyrirfram, skráði mig bara í tíma í ræktinni sem ein í mömmuleikfiminni sagði að væri ekkert mál að taka krútt með í því það væri fámennt og lágstillt tónlist, og síðan gerði ég Pilates-líkar æfingar með að ég held gymnastikkdeild kvenfélagsins, nokkur grá hár. En var bara ljómandi fínt.
Hins vegar var ekki létt í mér hljóðið þegar Æslander hringdi í mig í annað skiptið til að breyta flugi, ég flýg til Íslands í nóvember og desember og núna er búið að breyta 3 flugum af 4. Var búin að kaupa lestarmiða fyrir nóvemberferðina, þarf að kaupa nýja (660 DKR) fyrir aðra leiðina því fluginu til Íslands var flýtt um 2 tíma og bíða svo aukalega 3 tíma á Kastrup ein með strákinn á bakaleiðinni, ekki glöð. Reyndi ekkert að leyna því í símann áðan.
Og svo er gáta, hvað getur Ágúst Ísleifur troðið mörgum puttum upp í sig í einu?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
6.10.2008 | 10:45
Ágúst Ísleifur skoðar litla strákinn í speglinum
Nýtt líf í Lindeparken eftir að barnið fór að sofa í vagninum sínum. Setti hann m.a.s. vakandi út áðan, hljóp inn að gera eitthvað og ætlaði síðan að vagga honum í svefn, en (úbs) gleymdi barninu og það sofnaði sjálft... Hamast síðan við að nýta tímann sem best meðan hann sefur (hóst, hvað er ég þá að gera í tölvunni?).
Er algjör fyrirmyndarmóðir í dag greinilega, var að búa okkur mæðgin undir átök í morgun (þ.e. gera okkur klár fyrir leikfimi) og skildi ekki hvað Ágúst Ísleifur var önugur (svona krakki, vertu þægur og hættu að vola), heillengi að fatta að ég var að gleyma að gefa barninu að drekka
Við skulum bara gleðjast yfir að ég mundi að taka hann með í leikfimina og heim aftur. Rámar í að hafa heyrt að það hafi áhrif á vitræna frammistöðu að fá ekki samfelldan nætursvefn.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
5.10.2008 | 16:27
Dauflegt í fæðingarorlofi.
Jújú slaka bara á þægilegum hægindastól með litla búttaða smábarnið á brjósti, mjólkin streymir og drengurinn horfir kærleiksríkum og gáfulegum augum á móður sína, síðan fær hann sér lúr í fangi mínu, ég líð líka út af og finn alla þreytu streyma úr líkamanum. Þegar við erum bæði úthvíld strauja ég taubleiurnar meðan hann hjalar og leikur sér, skelli kannski í eina köku og sauma síðan út fangamark sonarins í nokkur koddaver. Ef tími gefst til áður en faðirinn kemur heim úr vinnunni strýk ég yfir gólfin og passa svo að hafa kvöldmatinn tilbúinn á réttum tíma. Þegar ættingjar og vinir koma og gista reyni ég að baka minnst þrjár til fjórar sortir og geri hvað ég get til að gesturinn njóti frísins sem best.
DJÓÓÓÓÓÓÓK...
Einhvern veginn rýkur tíminn áfram og frekar mikið að gera, sérstaklega þegar ég helli mér í framkvæmdir á heimilinu. Var að klára að mála stofuna og úff púff það tók sinn tíma. Haukur bró var mér til halds og trausts, hann sagði reyndar strax að hann kynni ekkert að mála svo hann lenti í því að þrífa pípureykstjöruviðbjóðinn af veggjunum með málningarsápu og svo passa Ágúst Ísleif meðan ég málaði eins og vitleysingur. Byrjuðum að undirbúa málningarvinnuna á miðvikudaginn og ég kláraði á hádegi í dag sunnudag, eftir að raða mublunum aftur á sinn stað samt og ganga frá.
Ég missti út úr mér við Hauk að Ágúst yrði alltaf svo glaður þegar kæmu gestir því þá tæki ég til og eldaði góðan mat, já og bakaði köku, en Haukur komst eiginlega að þeirri niðurstöðu að hann væri greinilega ekkert sérstaklega eftirsóknarverður gestur. Ég tók sem sagt ekki til, kotið var svo matarlaust að hann fór sjálfur í búðina til að fá eitthvað að borða, ekki einu sinni til súkkulaði, endaði með því að Ágústi sjálfum blöskraði kökuleysið og bakaði eplaköku, og svo var Haukur náttúrulega látinn þræla í málningarvinnunni. Ætli hann komi aftur?
Reyndar urðu Haukur og Ágúst Ísleifur góðir vinir. Haukur virðist eiga auðveldara með að "bonda" við svona strákafrænda en stelpufrænkurnar systurdætur sínar, hann lendir nefnilega í sífelldum teboðum hjá Selmu en sér fram á að sleppa við það hjá frændanum, maður veit samt aldrei. Síðan kenndi ég Hauki almenn krúttafræði og hann var steinhissa hvað það virkaði. T.d. hætti Ágúst Ísleifur að skæla þegar Haukur talaði nógu krúttlega við hann (helst í falsettu) og hefðbundið bútsí bútsí gafst vel.
Haukur fékk að fara í einn hjólatúr, en sá hængur var á að hann lenti í því að hjóla á hálfónýta hjólinu hans Ágústar (sem hafði farið á mínu niður í bæ) með vagn og barn í eftirdragi, en ég brunaði á racernum og blés ekki úr nös meðan Haukur másaði og blásaði (bíddu er ekki eitthvað bogið við þessa setningu)
Frekar kalt úti svo Ágústi Ísleifi var pakkað vel inn (Haukur samt á stuttermabol því það var svo erfitt að draga vagninn).
Núna ætla að sýna stillingu í framkvæmdagleðinni í nokkra daga (lofa engu um hvað gerist þegar Hallveig kemur í 5 daga heimsókn á fimmtudaginn), reyna að ná aftur stjórn á heimilishaldinu og vera dugleg að æfa mig á orgel því við Ágúst erum að halda þessa fínu tónleika 9. nóvember og mér fannst ég endilega þurfa að spila eitthvað erfitt. Ágúst sjálfur er á fullu að æfa sig fyrir tónleikana sína hérna í Horsens 12. október (einmitt þess vegna sem ég minntist ekki á hann í sambandi við málningarvinnuna...).
Annars er ég að gleyma einni stórfrétt, Ágúst Ísleifur var að læra að sofa daglúr í barnavagninum sínum, 3 tíma takk fyrir í dag og í gær. (Þarf ég að taka fram að hann er settur í vagninn vafinn vandlega inn í burðarsjalið?)
Ein mynd í lokin af Ágústi Ísleifi með Ólöfu:
Bloggar | Breytt s.d. kl. 16:31 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
Þegar við keyptum húsið erfðum við fullt af innbúi í leiðinni og þar á meðal forláta ljósakrónu. Eini gallinn að að hann Tage gamli reykti pípu eins og verksmiðjustrompur og ekki aðeins eru veggirnir í borðstofunni dökkbrúnir heldur voru líka tóbakstaumar og annað ógeð á kristöllunum (ojæja, kannski ekki alveg ekta kristall). Tengdamamma sló ekki vindhögg þegar hún stakk upp á að ég skellti draslinu bara í uppþvottavélina. Ég tók mig svo loksins til í gær og pillaði ljósakrónuna niður og raðaði í uppþvottavélina.
Það kom allt glansandi fínt úr oppvaskemaskínunni, en síðan er heilmikil gestaþraut að púsla krónunni saman aftur (rétt eins og íslensku krónunni) en það er að hafast.
Ólöf Júlía (sem var í heimsókn og fór í morgun) studdi mig mjög í þessu verkefni, en annars var hún að stinga upp á sniðugum heimilisiðnaði fyrir mig - markaðssetja afslöppunarfrí í Horsens. Óvæntur kostur við bæinn að HÉR ER EKKERT HÆGT AÐ GERA. Engin söfn sem eru of merkileg til að missa af þeim, engar búðir sem eru of merkilegar til að missa af þeim, engin náttúruundur sem eru of merkileg til að missa af þeim... Já og danska krónan líka bara allt of há til að nokkrum Íslendingi detti í hug að gera neitt sem kostar peninga.
En við Ágúst eyddum nú peningum í dag. Hann var í fríi í dag og við splæstum í ódýrasta bílaleigubílinn í Horsens.
Höfðum ekki miiiiklar áhyggjur af því þó hann subbaðist aðeins út við nokkrar ferðir í endurvinnsluna, og svo skutluðumst við til Árósa í smá IKEA-skemmtiferð og kíktum aðeins á miðbæinn. Dýrt spaug, eins gott að eiga ekki bíl, bensínið sem við notuðum í smá útréttingar á einum sólarhring kostaði 270 danskar krónur, þorir einhver að reikna það yfir í íslenskar á genginu 19?
Síðan er ekkert lát á gestaganginum, Haukur tekur við af Ólöfu (lendir beint í volgu rúmi) og verður fram á sunnudag, á eftir að finna einhver sniðug verkefni til að þræla honum út. Veit samt ekki hvort hann er rétti maðurinn til að klára að samle kristalsljusekronen
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)