4.12.2008 | 19:45
Æji við vælum bara
Því við erum svo agalega lítil í okkur núna ("við" lesist "aðallega Ágúst Ísleifur"), nebla bólusetning í morgun og þá orgar maður miiiikið seinnipartinn en vonandi ekki fram á nótt. Ágúst eldri fer svo ábyggilega að vola af þreytu einhvern tímann bráðum, fór í vinnuna í morgun og kemur heim kl. 15 á morgun! Vaktafyrirkomulagið er nú ekki alveg svona geðbilað, hittist bara þannig á að lendir saman afleysingarvakt og einhver lærdómsvakt þar sem Ágúst lærir að taka á móti börnum, iss eins og hann kunni það ekki, ég er með sönnunargagn í fanginu.
Hitaveitufréttir: (önnur ástæða til að væla). Þarna fyrir mánuði var okkur talin trú um að við fengjum express afgreiðslu á hitaveitunni, og jújú varmeværket kláraði sitt síðasta mánudag, þá fyrst kom í ljós að verktakinn sem gerir innanhúsvinnuna kemst ekki fyrr en næsta mánudag, grömp. Mér er kalt á tánum og orðin leið á að dæla í olíubrúsa úti á bensínstöð.
Að lokum ein ástæða til að væla alls ekki neitt: Styttist í dúberskemmtilega helgi í Köben . Ekki það að sé ekki ææææðislegt í Horsens, bara fínt að fá smá tilbreytingu .
En sjáið hvað feðgarnir eru fínir í kuldanum, Ágúst Ísleifur (soldið mæddur á upphitunarleysinu þó) í Janus-ullargallanum sínum og pabbi hans í skátapeysunni sinni sem hefur haldið á honum hita frá því sautjánhundruð og súrkál (hvað hefur aftur kviknað oft í henni? Búið að skipta um rennilás nokkrum sinnum, skipta um stroff, bæta út um allt...)
Athugasemdir
Peysan þá svona svipuð og hamarinn hans afa, snilldarhamar, aldrei átt jafngóðan hamar, búinn að eiga hann í 30 ár, bara búið að skipta þrisvar um skefti og tvisvar haus...
Hildigunnur Rúnarsdóttir, 4.12.2008 kl. 20:16
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.