12.11.2008 | 23:12
Púff
Heilmikil vinna að breiða út fagnaðarerindið og sýna öllum hvað Ágúst Ísleifur er mikil dásemd. Hámark knússins í dag var þegar við heimsóttum Kötu frænku og öll fjögur hennar börn krúttuðust í Ágústi Ísleifi í einu. Gleymdi minni myndavél en mun innheimta myndir hjá Kötu!
Hér er Auður Agla með tvo í takinu, vinirnir Úlfar Jökull og Ágúst Ísleifur flottir með smekki í stíl.
Annars vona ég að uppeldið bíði ekki hnekki af óreglunni undanfarið, bæði á mér og honum, sei nó mor. Ætti til dæmis ekki að segja frá því að núna sofi hann í bílstólnum í forstofunni upp úr 11 og mamman nenni ekki í háttinn...
Athugasemdir
Heyrðu Lára, hvað er Ágúst Ísleifur með upp í munninum sínum....hum?!?
Hallveig (IP-tala skráð) 13.11.2008 kl. 00:37
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.