28.1.2008 | 20:52
Ferð til fjár?
Minn kæri súbbarú, sem státar einmitt af tveimur lyklum, státar einnig af tveimur hressilega beygluðum hornum. Tilraun Ágústar til að taka fram úr rútu á Hellu fór algjörlega út um þúfur þegar kom í ljós að rútan keyrði svona hægt af því að hún var að beygja til vinstri. Fyrst lamdist hægra framhorn í síðuna á rútunni, svo hægra afturhorn. En við vorum á lítilli ferð (þetta gerðist nógu hægt til að ég gat bölvað mjög mikið áður en við skullum saman) og enginn meiddist nema súbbinn.
En við vorum einmitt á heimleið úr "sumarbústaðarferð". Tveir vankantar á sumarbústaðarferðinni, annars vegar er "sumarbústaðurinn" eiginlega bara smá kofi með borði og stólum, hins vegar hugkvæmdist ónefndum eiginmanni ekki að taka með lykil (og varalykillinn undir skúrnum lööööngu fokinn út í veður og vind, og já Ágúst átti að sjá um lykilinn því ferðin var að hans frumkvæði, ég fylgdi bara með). Já og svo urðum við líka blaut í lappirnar af því að labba að bústaðnum af því að vegurinn var ófær og nokkrir lækir á leiðinni...
Áskil mér rétt til að vera grömpí.
Athugasemdir
Æ hvað ég er glöð að það skuli vera í lagi með ykkur öll!
Þú getur huggað þig við það að þetta er að minnsta kosti góð saga.
Dagbjört (IP-tala skráð) 29.1.2008 kl. 13:54
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.