18.10.2007 | 11:14
Dóra stóra á afmæli
Þessi fallega fermingarstúlka á afmæli í dag og er orðin 27 ára. Við kynntumst fyrst í Gradualekórnum árið 1995 og mér fannst Halldóra hrútleiðinleg. Alveg glatað að hún bjó líka í Kópavoginum og við vorum alltaf samferða. Að hennar sögn breyttist viðhorf mitt þegar kom í ljós að hún átti flygil... Nú eftir að þessi fyrsti erfiði hjalli var að baki (og hún var hætt að nöldra í mér út af skónum mínum, löng saga) urðum við agalega góðar vinkonur og hún er barasta ansi skemmtileg. Við sungum náttúrulega saman í Gradualekórnum alveg endalaust, svo kom hún í MR, svo erum við samtals 1/3 af hinum fræga matarklúbbi, svo sungum við saman í Kór Langholtskirkju, Graduale Nobili (myndin er frá furðulegum nobili-tónleikum) og Kammerkór Langholtskirkju, hefur m.a.s. sést til okkar beggja í einu syngja með Mótettukórnum en ekki segja neinum. Í gamla daga meðan Halldóra var nógu vitlaus fórum við líka í alls konar skrýtin ferðalög eins og frækna hjólaferð til Vestmannaeyja, gengum á fjöll og soleis en Halldóra hefur bara þroskast meira en ég. Núna er hún einhvers konar ofurlíffræðingur eða eitthvað í mastersnámi í lýðheilsublabla og er geðveikt klár.
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.