16.2.2007 | 17:24
Trúnaðarmál af spítalanum!!
Ágúst stendur sig ekki sem skyldi með þagnareiðinn. Hann sendi mér sms úr vinnunni í morgun og tilkynnti að það væru veikindi á spítalanum (grínlaust) og hann þyrfti að vera lengur. Ég hélt að svona trúnaðarupplýsingar mættu alls ekki fara lengra, en úr því að hann kjaftaði þessu í mig þá get ég alveg eins lekið þessu á netið.
En að öðru, mér finnst ég aðeins eiga í vök að verjast með að sannfæra ykkur um að það sé allt í lagi heima hjá mér. Skoðanakönnunin sýnir:
- Það er ekki allt í lagi heima hjá Láru: 41%
- Það er allt í lagi heima hjá Láru: 11%
- Það væri allt í lagi heima hjá Láru ef hún draslaði ekki svona mikið: 47%
Hvað er til ráða? Mér dettur tvennt í hug:
A: Setja upp netmyndavél heima hjá mér, það ætti að sannfæra alla. (Bara spurning um hvað þeir myndu sannfærast). Þarf að ræða það við Ágúst.
B: Halda áfram myndaherferðinni og sýna umheiminum hvað ég ólst upp hjá góðri fjölskyldu. Færa mig svo smátt og smátt yfir í nútímann, bíðið þið ekki spennt?
Athugasemdir
Þú varst aldrei búin að segja mér að systkini þín væru geimverur. Ennþá rígheldur mamma þín í þig. Varstu óþægt barn?
orgelstelpa (IP-tala skráð) 16.2.2007 kl. 22:18
Þú ert köld Lára......... Ef ég væri Elín storesys myndi ég taka þig Í BAKARÍIÐ.... fyrir að birta mynd af þessu tískuskeiði!!!!!! MÚOHAHAHAHAHAAAAAAAAAAAA......
Sigríður R. Pétursdóttir / SIGGA PÉ, 17.2.2007 kl. 02:15
Það fer að styttast í mynd af grænum náttslopp með þessu áfamhaldi!!
Kv Sibba
Sibba (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 10:27
Það sést greinilega að þú hefur augastað á einhverju á gólfinu sem þú getur ekki beðið eftir að ná í en ekki fyrr en hún móðir þín hefur sleppt þér. Hvað var þetta?
Ef Ágúst verður að vinna í kvöld skal ég útskýra þagnareiðinn fyrir honum í rólegheitunum. Það þarf augljóslega aðeins að hnippa í hann.
Dagbjört (IP-tala skráð) 17.2.2007 kl. 15:40
Bæta við athugasemd [Innskráning]
Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.