Færsluflokkur: Bloggar
15.5.2007 | 14:15
Þóra frænka lætur í sér heyra
Um hjónavígslu samkynhneigðra
Ég styð heilshugar giftingu samkynhneigðra, segir Þóra Ingvarsdóttir í þessari grein
Ég styð heilshugar giftingu samkynhneigðra, segir Þóra Ingvarsdóttir í þessari grein: "Það eru engin góð rök gegn hjónavígslu samkynhneigðra, kynhneigð breytir engu um rétt para til fullgilds hjónabands."
Fólki finnst t.d. "ónáttúrulegt" að samkynhneigðir gifti sig vegna þess að þannig hefur það aldrei verið það hefur aldrei þótt eðlilegt að fólk af sama kyni gifti sig, og þess vegna hlýtur að vera rétt að banna það í dag. Jæja, kannski. Ég verð þá að fara og skipta um föt, því ég er kvenkyns og er í buxum og áður fyrr þótti fáránlegt að konur gengu í karlmannsfötum. Það var ónáttúrulegt. Konur eiga auðvitað að vera heima í sínum kvenmannsfötum og sjá um húsverkin, annað er bara ónáttúrulegt. Semsagt, það er ýmis "ónáttúran". Það sem ég á við er að sú staðreynd að eitthvað hafi þótt óeðlilegt áður fyrr þarf ekki endilega að þýða að það sé óeðlilegt í dag. Við lifum í jafnréttisþjóðfélagi (eða reynum a.m.k. að telja okkur trú um það), og það að banna fólki að gifta sig vegna þess eins að það er ekki hrifið af gagnstæðu kyni er u.þ.b. eins gáfulegt og að banna fólki að vinna bara vegna þess að það er ekki með Y-litning.
Nú, síðan gætu einhverjir farið að tala um blessuð börnin. Samkynja pör geta (augljóslega) ekki getið börn saman, og geta þess vegna ekki sinnt því hlutverki hjónabandsins að fjölga mannkyninu. Þar sem fólksfjölgun er heimsvandamál sé ég ekki að þetta ætti að skipta neinu máli það geta heldur ekki öll gagnkynhneigð pör eignast börn. Er annar aðilinn í sambandinu ófrjór? Á þá að banna þeim að giftast, bara vegna þess að þau geta ekki getið barn saman? Það yrði ekki vinsælt.
En ekki er öll nótt úti fyrir samkynja pör sem langar í börn það væri hægt að leyfa pörunum að ættleiða. Að mér vitandi hefur þeim börnum sem alin eru upp af samkynhneigðum ekki orðið meint af því; en sumir myndu kannski segja að það væri ekki gott fyrir barnið að alast upp föður- eða móðurlaust. Að sjálfsögðu er þetta allt annað mál þegar barn elst upp hjá einstæðu foreldri, svo lengi sem það er gagnkynhneigt. Það er allt í lagi að barnið alist upp föðurlaust, svo lengi sem það á bara eina móður. Hvort er í rauninni eðlilegra, að eiga tvo feður (eða tvær mæður) eða eitt foreldri sem er bæði faðir og móðir? Er ekki betra að alast upp hjá tveimur foreldrum sem þykir vænt um barnið og hvoru um annað?
Jæja, nóg af ónáttúrunni (þó það væri vitaskuld hægt að tala lengi enn um hana). Snúum okkur að orðinu "ókristilegt".
Það eru alls ekkert allir trúaðir í íslensku samfélagi í dag, langt frá því. Hins vegar breytist alveg ótrúlegasta fólk í guðhrædda sunnudagaskólaengla þegar umræða um giftingu samkynhneigðra kemur upp, og fer að veifa frösum eins og "ekki skv. Biblíunni", "Guði óþóknanlegt", og hinum klassíska "það er ókristilegt". Ég vil byrja á að taka fram að Biblían segir margt um siðsamlegan lifnaðarhátt, og er ágæt bók að því leyti. En ég hef hvergi fundið að í henni standi "þú skalt ekki elska manneskju af sama kyni", eða nokkuð annað sem mætti túlka sem slíkt nema með mestu herkjum og útúrsnúningum. Ég kíkti á kaflana sem eru oftast gefnir sem rök fyrir því að Biblían fordæmi samkynhneigð, og þeir fordæma ýmislegt djöfladýrkun, heiðnar svallathafnir, nauðganir, og margt fleira sem mér finnst í ágætu lagi að fordæma en ég sé hvergi að þar standi að ekki megi eiga í ástarsambandi við manneskju af sama kyni.
En gleymum því smástund að fordæmingar Biblíunnar á samkynhneigð eru vægast sagt mjög vel faldar, ef þær eru þá þar á annað borð, og hugsum aðeins um önnur mál sem tengjast Biblíunni og kirkjunni gegnum aldirnar. Lögun jarðarinnar, tilurð og aldur heimsins þar hafa skoðanir sem betur fer breyst um það hvað talið sé rétt og rangt. Nú er ég ekki að gera lítið úr Biblíunni, það er hin ágætasta bók. En málið er að sumu sem stendur í henni (eða er jafnvel bara túlkað uppúr henni) verður að taka með góðum fyrirvara.
Ég trúi á Guð, og að honum þyki vænt um okkur. Og einmitt þess vegna held ég að hann fordæmi ekki giftingar samkynhneigðra, vegna þess að ef tveim manneskjum þykir vænt hvorri um aðra, og vilja játa það fyrir heiminum og fyrir Guði, þá hugsa ég að það ætti að vera í góðu lagi hans vegna, óháð því hvort manneskjurnar tvær eru karl og kona, eða karl og karl, eða kona og kona. Erum við ekki öll jöfn fyrir Guði skv. kristnu trúnni? Af hverju ætti það þá að angra hann hvers kyns fólkið er?
Ég styð heilshugar giftingu samkynhneigðra. Það er mín skoðun að ef fólk elskar hvort annað á þann hátt ætti það að drífa sig í hnapphelduna, óháð kyni! Það er fáránlegt að leyfa ekki öllu venjulegu, ástríku fólki að staðfesta ást sína á þann hátt sem það sjálft kýs. Hættum þessari vitleysu og leyfum öllum að gifta sig sem það vilja.
Höfundur er framhaldsskólanemi.
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
14.5.2007 | 12:28
Besti gönguleiðsagnarbekkur í heimi!
(Þó hann sé hægfara)
Vaaaááá hvað bekkurinn minn er skemmtilegur! Það hefði alveg mátt vera skítaveður allan tímann og ferðin samt verið frábær. Veðriðr var sosum ekkert til að hrópa húrra fyrir en við sólbrunnum samt öll og enginn fraus. Ágætis skyggni og flott landsvæði. Menn tóku líka upp á ýmsu öðru sér til skemmtunar en að ganga, t.d. glíma, skylmingar (með göngustöfum), salsa (mjaðmahnykkirnir ótrúlega góðir eftir göngu með þungan poka), línudans, jóga, teygjur, söngur, fyllerí, tröllasögur og draugasögur, Íslendingasögur, lygasögur og meira og meira. Allir höfðu eitthvað fram að færa og ótrúlegt hvaða vitneskja leynist í kollunum á sumum. Ég var náttúrulega óþolandi allan tímann og var spurð á síðasta degi "hefurðu verið greind ofvirk?".
Nokkrar myndir:
Rennum okkur á rassinum niður sinubrekku efst í Grímsdal undir Vikrafelli
Í tjaldstað við Langavatn, Arna reynir að kveikja í öllu lauslegu
Í Gvendarskarði milli Hafravatnsdals (vestur af Langavatnsdal) og Þórarinsdals (austur af Hítardal), aldursforsetinn og brúðuleikkonan Hallveig er ábyggilega að segja skemmtilega sögu.
Jóga-teygjuæfingar í skála við Hítarvatn undir öruggri stjórn Hörpu og Hallveigar (sem báðar stunda Kundalini-jóga, hvað sem það nú er)
En nú ætla ég að halda áfram að læra undir enskupróf, ætla að næla mér í réttindi til að segja "this way, please" fyrir peninga. Úr því að ég náði þýskuprófinu þá ætti ég að fljúga í gegnum enskuprófið... (búin að læra að landvættir er landvætts á ensku, reyndar skrifað landwights)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
8.5.2007 | 23:16
Lokaferð Leiðsöguskólans og verkefni handa ykkur
Nú er komið að lokahnykknum í gönguleiðsögninni, 5 daga gönguferð um Vesturland:
Fer í fyrramálið og kem aftur á sunnudagskvöld. Verið að tékka hvort við höfum lært eitthvað í vetur.
En á meðan er komið að æsispennandi verkefni fyrir ykkur dyggu lesendur! Þið eigið að gjöra svo vel að kvitta fyrir ykkur og viðurkenna hver þið eruð. Þið megið ráða hvort þið kommenterið við þessa færslu eða í gestabókina neðst á síðunni. Það er nokkuð frjálst hvað þið skrifið en hér eru nokkrar tillögur svona til að koma ykkur af stað:
"Hæ ég heiti XX og les alltaf bloggið þitt af því að ég veit að þú verður svo reið ef þú kemst að því að ég geri það ekki"
"Sæl Lára, ég heiti XX og þekki þig nú ekki neitt en les alltaf bloggið þitt og þú hefur smátt og smátt orðið fyrirmynd mín í lífinu"
"Lára mín, ég les nú bara bloggið þitt af því að ég er mamma þín"
"Þetta er XX, ég vildi að ég gæti sloppið við að lesa bloggið þitt en það er bara einhver vírus í tölvunni sem gerir það að verkum að bloggsíðan þín poppar upp hjá mér á hverjum degi, helv.. vesen"
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (6)
7.5.2007 | 22:58
48:15
Héðan í frá megið þið kalla mig "Lára 48:15", var að setja nýtt og glæsilegt met á Esjuna! Bætti reyndar gamla metið um korter og hélt að ég hefði bara verið ágætlega spræk þá, það var fyrir 5 árum og löngu áður en ég fór að æfa hjólreiðar eins og geðsjúklingur í klukkutíma á dag. Haukur kom með undir því yfirskini að hann ætlaði nú ekki að setja neitt met heldur bara fylgja mér (í rólegheitum sem sagt). Annað kom á daginn, hann skrölti á eftir mér í spreng allan tímann þar til ég hristi hann af mér í klettunum mwahahahaha og hann bætti óviljandi sitt eigið met um 4 mínútur bara af því að hanga í mér og endaði í 48:30. Ég best!!! (og óþolandi litlasystir). Og kom sjálfri mér verulega á óvart, vissi að ég væri góð en að ég væri svona góð...
Nánari upplýsingar: 14:10 að vörðunni þar sem maður beygir annaðhvort til hægri yfir brúna eða til vinstri í skriðurnar (fórum til vinstri), 37:45 að Steini fyrir neðan klettabeltið. Meðalpúls 182. Gleymdi göngustöfunum, veit ekki hvort það kom að sök en ætla að hafa þá með næst.
Bannað að kommentera með athugasemdum eins og "Iss ég fór þetta nú á xxx (styttri tími en ég)" Hins vegar má gjarnan segja "vá hvað þú ert góð, ég vildi að ég væri eins dugleg og þú".
Bloggar | Breytt s.d. kl. 23:01 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (5)
4.5.2007 | 20:14
Kjósið rétt
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
3.5.2007 | 22:02
Sigur í höfn!!!
Fyrsta hjólakeppnin mín búin, 12 km sprettur upp Bláfjallaafleggjarann og hver haldiði að hafi rústað kvennaflokknum?!?!?! Með 2 mínútna forskot á næsta (kven)mann (og þess má til gamans geta að mig vantaði ekki nema ca. 3 mínútur upp á að hafa Hauk stórabróður undir líka mwahahaha tek hann næst). 17. sæti af 21 í heildarkeppninni. Medalíurnar gleymdust reyndar heima en ég fæ gullið mitt á morgun :)
Úrslitin: http://www.hjolamenn.is//2007-05-03%20blafjoll.mht
Hér er verið að rannsaka úrslitin, allt mjög tæknivætt
P.S. þýðir lítið að ná í mig í gemsa (til að hella yfir mig hamingjuóskum), búin að kæra þjófnað og láta lögguna fá e-ð framleiðslunúmer svo vodafone geti rakið hvar síminn er ef það er kveikt á honum, kannski þeir finni hann svo undir sófa heima hjá mér...
Bloggar | Breytt 4.5.2007 kl. 20:38 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (4)
3.5.2007 | 11:01
Hver stal símanum mínum?
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)
1.5.2007 | 14:58
Halló! Halló! Ég er að hjóla! Ég er að hjóla!
Ég vissi ekki hvaðan á mig stóð veðrið (jú reyndar stíf SA-átt) þegar gaur fyrir aftan mig á hjólaæfingu fór að tilkynna hátt og snjallt að hann væri að hjóla. Ég var líka að hjóla. Margir fleiri voru að hjóla og jú vissulega var hann að hjóla en við vissum það alveg. Jújú við nálguðumst gangandi vegfarendur en þeir sáu okkur vel (og mig á undan) og vissu alveg að hann væri að hjóla og við öll værum að hjóla.
Boðskapurinn í sögunni: Það er svolítið þangað til ég venst því að hjólandi menn séu með bluetooth handfrjálsan búnað í eyranu og svari í símann upp úr þurru.
En annað merkilegt, við vorum í mat hjá tengdamömmu ásamt vinkonu hennar og dóttur vinkonunnar (7-8 ára). Mér og dótturinni finnst hvor önnur mjög skemmtileg og hún gerði sér lítið fyrir og teiknaði handa mér flotta mynd með gullfiskum og kerti og á henni stóð "Til Láru frá Karitas". Þetta er barasta í fyrsta skipti sem einhver teiknar handa mér mynd og ég var náttúrulega himinlifandi og smellti henni beint upp á ísskáp :)
Bloggar | Slóð | Facebook | Athugasemdir (0)
30.4.2007 | 13:32
Fjör í Markarfljóti og fyrsta gaffalstungan
"Þverun straumvatna" var á dagskrá í skólanum á laugardaginn. Ég hef reyndar hingað til kallað þetta bara að vaða ár, en ætli ég verði ekki bara að þvera straumvötn héðan í frá. Við fórum og djöfluðumst í Markarfljóti heilan dag og skemmtum okkur hið besta!
Hér eru rassarnir okkar í þurrbúningsbuxunum
Fyrst vorum við bara að dúlla okkur yfir meinlausar kvíslar en færðum okkur svo upp á skaftið. Við áttum nefnilega bæði að komast að því hvað við gætum
En svo fór ég líka austur í Fljótshlíð á sunnudaginn með Ágústi og tengdapabba og við mældum fyrir skúrnum góða sem á að byggja í sumar
og ég tók "fyrstu gaffalstunguna" að kálgarði. Hann er reyndar frekar skondinn, u.þ.b. 80 cm í þvermál og inniheldur ca. 20 radísur og 10 kartöflur. En mjór er mikils vísir...
Bloggar | Breytt 4.5.2007 kl. 10:36 | Slóð | Facebook | Athugasemdir (2)