Færsluflokkur: Bloggar

Det er så gammen at synge sammen

Eða það finnst Dönunum allavegana, samsöngur á nærri öllum tónleikum sem ég hef farið á og messusöngurinn svakalegur síðasta sunnudag.  Svo spilaði ég í brúðkaupum í dag þar sem var ekkert kjaftæðis ónlí lov og jesterdei heldur "bara" fjórir feitir sálmar úr sálmabókinni í almennum söng, sá stysti ekki nema 5 vers en lengsti 10.  Og í uppáhaldsbrúðkaupssálmnum þeirra er einmitt þessi staðhæfing að það sé svo gammen at synge sammen, og það í hverju einasta versi (og já nóg af versunum).

Rifjast þá upp fyrir mér brúðkaup eitt sem ég spilaði í á Íslandi, brúðguminn hringdi og ræddi tónlistarval, sagði að presturinn vildi endilega hafa einhvern sálm og ok ef ég bara veldi sálm og spilaði.  Ég spurði hvort hann/þau hefðu enga skoðun og reyndi eitthvað að ræða málin, enginn áhugi á þeim bæ, "þú bara velur eitthvað og málið er dautt".  Mér var skapi næst að rukka tvöfalt út af pirringi... 

Við Ágúst erum kannski obbolitlir Danir í okkur hvað sönggleðina snertir, t.d. þegar við horfðum á konunglega brúðkaupið í vor (æ hvor prinsinn var það) sungum við hástöfum með, textinn var að sjálfsögðu á skjánum til heimabrúks.  Saknaði nú skjátexta þegar ég fylgdist með jarðarför Sigurbjörns biskups í dag, ekki heldur ómerkilegir textar þar á ferð, meira og minna allt sálmar eftir hann.  Það held ég nú að sálmabókin væri fátæklegri ef hans hefði ekki notið við.  Svo ekki sé minnst á lögin hans Þorkels við marga sálmana, margir margir gullmolar.

Og já var að finna brettið á hjólið, en það er á efstu hillu og ég get ekki teygt mig upp með stráksa í sjalinu, og braut á mér tánögl við að bauka inn í geymslu, en það er ekki í frásögur færandi.  Ég lenti reyndar í þeim ósóma að hjóla heim á hjólinu hans Ágústar í dag og það var aaaagalegt.  Ágúst fór nefnilega heim á mínu hjóli með Ágúst Ísleif í hjólavagninum og skildi mig eftir í súpunni (að spila brullaupin) með hans hjól með alltof háum hnakki og ónýtum gírum!  Hefur ábyggilega verið kómískt að horfa á mig reyna að hjóla standandi í fáránlega lágum gír, reyndi líka að sitja á hnakknum og teygja mig niður á pedalana með því að vagga mér svolítið...  Kannski ég fari líka að reyna að laga gírana og já hugsanlega að setja frambretti á BÆÐI hjólin (það var rigning í dag).  Er svo að íhuga mjög sterklega að splæsa í aukafestingu fyrir hjólavagninn á Ágústarhjól svo ég lendi ekki svona ósköpum.

Hætt að röfla um söng og hjól, set í staðinn inn gamlar jólamyndir, andlegur undirbúningur fyrir jólaheimferðina.  Hér eru Haukur og Ágúst að taka samtímis upp jólagjöfina hvor frá öðrum, sömu bókina eftir Hugleik Dagsson.

Árið 2007 027

Hallveig og Ágúst þvílíkt ánægð með jólabúðinginn

Árið 2007 031

Húsmóðirin á Sjafnargötunni bísperrt í jólakjólnum og demantasokkabuxunum.  Þess má til gamans geta að fólk var byrjað fyrir jól að pota í magann á mér og þykjast sjá móta fyrir Ágústi Ísleifi.  Mér finnst hann nú ekki sjást vel á þessari mynd, en það getur alveg verið að ég hafi haldið maganum inni...

Árið 2007 036


Vííí!!!! Verðum á Íslandi um jólin!!!

Ágúst datt í lukkupottinn og fékk frí um jólin W00t og við bókuðum flugin í hvelli, ég kem 13. desember og Ágúst 21., förum svo saman hjem igen 29. des.  Það verður ábyggilega mikið stuð á Íslandi því þær systur Selma og Vala ætla að halda uppi fjöri og passa litla frænda sinn Whistling.  Ég nota að sjálfsögðu ferðina og spila á Jólasöngvunum með Kór Langholtskirkju og í miðnæturmessu á aðfangadagskvöld að ævafornum sið.

Og svo erum við barasta líka á heimleið í nóvember að halda orgeltónleika, Jónsi heimtaði "hjóna-orgeltónleika" en spurning hvort náist að þjálfa Ágúst Ísleif svo þetta geti orðið fjölskyldutónleikar Tounge.  9. nóvember kl. 20, setja það í dagbækurnar.

Svo er reyndar best að ég fari að drösla okkur mæðginum niður í bæ að undirbúa sosum eins og tvö brúðkaup í Klosterkirken á morgun, ég er gjörsamlega að raða inn giggunum (bíddunúvið er ég ekki í fæðingarorlofi?).


Stundum kemur slóðaskapurinn í bakið á manni

en stundum kemur hann líka bara beint in jor feis.  Ágúst var búinn að biðja mig um að finna frambrettið á hjólið mitt (hann notaði það þangað til ég púslaði hans saman fyrir skemmstu) en ég var of löt til að leita almennilega.  Svo ákvað ég að besta leiðin til að svæfa drenginn og skemmta sjálfri mér í leiðinni væri að fara í laaaangan hjólatúr, en það kom steypiregn, og vatnið óx og óx.  Ekkert bretti - bunan í andlitið.  Og sofnaði drengurinn? Jújú, eftir 51 mínútu.  Og vaknaði þegar við komum heim 10 mínútum síðar aaaaaaarrrrrggggg.....


Foreldraeðlið lætur ekki að sér hæða

Einu sinni þegar Selma var oggupons kom Elín stormandi út af baðherberginu að springa úr stolti með eyrnapinna: "Viltu sjá!" 

Ég skildi ekki hvað var svona heillandi við eyrnamerg litlu frænkunnar (hélt reyndar fyrst að uppruninn væri í eyrum systur minnar, sá misskilningur var leiðréttur), en nú hef ég séð ljósið.  Ég var nefnilega þvílíkt lukkuleg þegar ég skóf í fyrsta sinn úr eyrum Ágústar Ísleifs, alveg í skýjunum yfir "dugnaðinum" í framleiðslunni.  Mér finnst nefnilega allt æðisleg sem viðkemur syninum.  "Nei sko þetta líka fína kusk milli tánna, mikið er það yndislegt".  Og feitukallaroparnir og önnur búkhljóð hljóma að sjálfsögðu eins og englasöngur í mínum eyrum.  Svo ekki sé minnst á hrósin sem drengurinn fær fyrir afköstin þegar er skipt á bleiu...

Svona er náttúran klók að sjá til þess að foreldrarnir nenni örugglega að hugsa um barnið sitt InLove

Ágúst í lok Ágúst 006

En stundum er maður svolítið mæðulegur þrátt fyrir góða umönnun.


Messimess, skoppiskopp, hjólihjól

Brá mér til Árósa að spila messuna góðu í gær, tók tvo Ágústa með, annan sísvangan mömmustrák og hinn til að passa þennan sísvanga.  Spilaði eins og ég hefði aldrei gert annað en að spila í dönskum messum, ekkert svo agalegt að spila á útlensku.

Síðan vorum við komin í svo góðan hákristilegan gír Halo að Ágúst tók fram tvöfaldan disk með gregorssöng sem hljómaði meira og minna restina af deginum nema rétt á meðan við horfðum á dásamlega steikta grínmynd um mexíkóskan munk (hljómar illa...), Nacho Libre.

Sem minnir mig á það, einhvern veginn tókst mér að steingleyma að taka mynd af Ágústi í munkakufli, nebla af því að Horsens er aðalpleisið þá var heilmikil miðaldahátíð um helgina og karlaraddirnar úr kór Klausturkirkjunnar (sem Ágúst er í) fóru á kostum sem miðaldamunkar i gregorssöng.  Bærinn var troooðfullur af fólki alla helgina, skemmtidagskrá og sölubásar og allir klæddir í miðaldaföt.  Hátíðin er árviss viðburður og greinilega margir búnir að koma sér upp viðeigandi galla.

Dagskráin hjá okkur mæðginum verður sífellt stífari, byrjuðum í mor/barn leikfimissprikli í morgun.  Það fer þannig fram að Ágúst Ísleifur liggur á gólfinu og spriklar eins og hann er vanur, en ég spriklaði eftur settum leikfimisreglum.  Stráksi fékk reyndar að liggja á fína leikteppinu hjá vinkonu sinni Steindísi Elínu og þau gerðu heiðarlegar tilraunir til að sparka og pota í hvort annað (aðallega SE, hún er nefnilega stærri).  Síðan gerðu smábörnin æfingar á boltum meðan mömmurnar hvíldu sig (já jæja verð að viðurkenna að börnin þurftu smá hjálp).

Ég er alltaf með stórkostlega stærðarkomplexa fyrir hönd sonar míns LoL og ég var stórkostlega montin að ÁÍ skyldi ekki vera minnstur í leikfiminni!  En síðan er æsispennandi, var að fá bréf um mödregruppe sem heimsóknarhjúkkurnar sjá um að planta manni í, og minns er barasta elstur! Mjög spennandi hvort hann verði stærstur... 

Síðan get ég ekki hætt að dásama nýja hjólavagninn, geggjað að komast út að hjóla með Ágúst Ísleif í eftirdragi og dásamlega fljótlegt og þægilegt að komast á milli staða.  Og það fer svo vel um hann liggjandi í bílstólnum góða að ég læt mér ekki detta í hug að hafa samviskubit þegar ég prófa að fara í lengri túra með hann Happy.  Búið að koma inn svo miklum ergónómískum fræðum hjá mér, óhollt að sitja lengi í keng í bílstól etc. 

 


Allt að gerast hjá litla kút!

Ég fór loksins á fimmtudaginn og fjárfesti í hjólavagni, skaust til Árósa að sækja hann og í leiðinni snilldarbílstól til að hafa í honum.  Hér er Ágúst Ísleifur að máta:

Ágúst í lok Ágúst 036     Ágúst í lok Ágúst 037

Flotti bílstóllinn / legubekkurinn fyllir nú eiginlega allan tveggja-barna-vagninn, ég kippti bara barnasætunum úr og festi stólinn með strekkbandi úr byggingavörubúðinni sem ég smeygi í bílbeltisfestingarnar.

Fyrsti hjólatúrinn var svo á sundæfingu í gær:

Ágúst í lok Ágúst 050

Við byrjuðum á baksundtökunum:

Ágúst í lok Ágúst 055

Annars veit ég ekki hvort ég á að hlæja eða gráta yfir því að óléttubikiníið skuli passa svona vel...

En svo veit ég ekkert hvað ég var að hugsa þegar ég tók að mér að spila messu í Árósum á morgun! Örf, ég veit ekki einu sinni hvernig ég ætla að fara þangað...  (Messan er í Ellevang kirke, mar hefur nú aldeilis sungið þar og gott ef ekki spilað í einhverri kórferðinni).  Best ég fari að redda mér nótum og jafnvel bíl Bandit


Lahahahangbesta súkkulaðikakan og lahahahangflottustu feðgarnir

Stráksi sprækur aftur eins og sést:

IMG_0778

Og súkkulaðikakan góða frá Elínu:

Skúffukaka      

            175      g          lint smjör

            2                     egg

            4 ½      dl         sykur

            4 ½      dl         hveiti

            1          dl         dökkt kakó

            2          dl         súrmjólk

            1 ½      dl         kalt vatn

            1          tsk        salt

            3          tsk        vanillusykur

            1          tsk        matarsódi

            ½         tsk        lyftiduft

Allt sett í skál og þeytt saman í hrærivél.  Bakað í smurðri skúffu í miðjum ofni í 20 til 30 mínútur við 200 gráðu yfir- og undirhita.

 

Krem

            100      g          brætt smjör

            250      g          flórsykur (ca. 6 dl)

             1         bolli      expresso

            3 ½      msk      dökkt kakó

Kaffi og kakói hrært saman við smjörið og flórsykurinn og þynnt með vatni ef þurfa þykir.  Kreminu smurt á kökuna og skreytt með kókosmjöli, skrautsykri eða því sem hentar hverju tilefni.

 


Litli kútur lasinn og langömmuafmæli

Ágúst Ísleifur virðist hafa nælt sér í einhvers konar gubbupest Frown, kastaði heil ósköp upp í nótt og mamman þorði varla að sofna, síðan hefur bara komið ein gusa eftir morgunmatinn og við vonum að þetta sé búið.  Við mæðgin kúrum bara uppí rúmi og litli Ísleifur sefur og sefur.

En langamma Ágústar Ísleifs (amma í Barmahlíð / Lára amma) er í fínu formi og 95 ára í dag.  Það verður afmæliskaffi á Hrafnistu og hún fær ljómandi fallega mynd í ramma í afmælisgjöf frá fjölskyldunni í Lindeparken, getiði hver er á myndinni...

Hér erum við Lárurnar, ég sem Kolbeinn ungi held ég (úr Þórðar sögu Kakala, áhrif frá Hauki bró)

img309

Ég hafði ekki neitt sérstaklega gaman af þessum myndatökum.

img118       img042

Amma fylgdist alltaf grannt með tónlistarferlinum, hún og pabbi kenndu okkur systkininum fyrstu lögin á píanóið og amma gamla spilar enn sjálf á gamla píanóið úr Fögrubrekkunni þar sem það stendur í herberginu hennar á Hrafnistu.  Seinni myndin er frá burtfararprófstónleikunum mínum frá Söngskólanum 2004, amma lék við hvurn sinn fingur og hélt þrusuræðu!

img044     IMG_0414

Svo í kaupbæti tvær myndir með ömmu á Brún sem lést fyrir bráðum átta árum, hætti aldrei að sakna hennar.  Ég er í uppáhaldsjogginggallanum á báðum myndum...

img043    img028


Grrr... netleysi

Netfyrirtækið okkar heitir cybercity, aka cybershitty, seinómor.  Viðvarandi netleysi síðan á mánudag og símaleysi framan af.  Komið nokkurn veginn í lag, en samt ekki arrrg.

Fátt fréttnæmt á heimilinu, síðasta afrekið var að mála skápana á ganginum að innan og Ágúst sagaði niður hillur inn í þá.

Ágúst Ísleifur verður bara meiri hlunkur með hverjum deginum og að sjálfsögðu sífellt hæfileikaríkari.  Hann er farinn að undirbúa orgelæfingarnar með píanóæfingum.

Afi Ágúst og Hallveig ág.08 061

Síðan er ég líka búin að skrá hann á sundæfingar (í halakörtuliðið), sé nú fram á að þurfa að fylgja honum til að byrja með þangað til hann verður sjálfstæðari.

Og fyrir þá sem höfðu áhyggjur af týnda prjónasokknum, þá er hann fundinn í bílnum hjá Erlu Elínu og verður fluttur til Danmerkur í bílnum í lok mánaðarins, loksins verður stráksa aftur hlýtt á fótunum.

Að lokum til gamans: hárklippistofan við hliðina á kirkjugarðinum hinum megin við götuna heitir Final Cut mwahahaha.


Brjálað stuð!

Nóhóhóg að gera í Lindeparken þessa dagana! Tókum sem fyrr segir tengdapabba með út og hann fær aldeilis að vinna fyrir matnum sínum Whistling.  Komið parket og málning á svefnherbergið og ganginn og núna er baðinnréttingin að fara að galdrast upp.  Fengum líka liðsauka þegar Hallvegi systir Ágústar hoppaði upp í lestina frá Belgíu og var hjá okkur í nokkra daga.  Heimilið er reyndar algjörlega í rúst, hálfsamsettar innréttingar og parketbútar út um allt ásamt almennu drasli púff.  Bættist líka svo mikið inn á heimilið þegar við fórum í svakalegustu IKEA-ferð sem um getur til Árósa.  Einhvern veginn tókst okkur að komast heim á einum (bílaleigu-)bíl með þrjá Ágústa, eina mömmu, svefnsófa, baðinnréttingu og heeeellling til viðbótar.  Segi ekki að það hafi farið vel um mig með annað lærið klemmt utan í bílstól og hitt í borðplötunni á innréttinguna.

Smá sýnishorn af því hvað allir eru duglegir:

Ágúst og Ágúst  Hallveig og pabbi ad leggja parket

lára ad mála_1   lára ad mála

Ég hef farið á kostum við að hjóla heim með það sem vantar, skrýtnasta hugmyndin var kannski að kaupa vask í hinum enda bæjarins og hjóla heim með hann á bakinu á racernum (í hellirigningu), líka dáldið gaman að hjóla heim með gólflista (búin að skipta um föt og líka búið að stytta upp)

Lára rennblauta_2   Lara klara med listana_2

En aðalmaðurinn á heimilinu er að sjálfsögðu Ágúst Ísleifur, og það fer umtalsverður tími í að sinna honum, þó að sem betur fer verði hann syfjaður og leggi sig inn á milli... (Hallveig frænka tók þessar flottu myndir)

ágúst ísleifur_2   ágúst ísleifur_3

ágúst ísleifur_1   ágúst ísleifur_4

Svo hefur hann líka náð talsverðri færni á leikteppinu.

ágúst ísleifur á leikteppinu_1

ágúst ísleifur á leikteppinu_4

Hann fer líka á kostum í nýja baðbalanum (úr IKEA að sjálfsögðu)

Ágúst Ísleifur í badi_1   ágúst ísleifur í badi_2

En nú er svangur drengur farinn að kalla á mömmu sína, yfir og út.


« Fyrri síða | Næsta síða »

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband